Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.03.2017, Qupperneq 42
42 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.3. 2017
LESBÓK
Ég erfði taugakerfi sem hangir í einni
flókabendu
um borgina Kaoz. Rafmagnið fer af
mörgum sinnum
á dag. Hér eru engir ljósastaurar og
hundarnir gelta.
Svo hefst Ég er hér, ljóðabók
Soffíu Bjarnadóttur sem kom út í
vikunni. Í upphafi bók-
arinnar leggur lesandinn
í ferðalag, eða það var í
það minnsta mín upplifun
sem ég nefni við Soffíu í
spjalli. Hún tekur undir
það og bætir við að lýsa
megi bókinni sem um-
breytingarferli: „Ég var í
Nepal í þrjá mánuði fyrir
þremur árum og þar fann
ég sterkt fyrir þessari
hreyfingu innra með mér. Lífið hafði
tekið nokkuð á, en þarna í Himalaja-
fjöllum fór eitthvað af stað og þá
urðu fyrstu ljóðin til.“
- Þú vísar í Bardo Thodol, dauða-
bókina tíbetsku, í tilvitnun fremst í
bókinni, þar „sem sálin ferðast á milli
dauða og endurfæðingar“.
„Ég vitna í bókina The Tibetan
Book of Living and Dying eftir Sogy-
al Rinpoche en það er meira eins og
myndhverfing fyrir hugmyndina um
endurfæðingu, að við séum stöðugt
að endurfæðast í lífinu.“
- Fyrir þremur árum brast semsé
stífla.
„Já,“ segir Soffía og hlær við, „það
fór mikið í ferli í gang og margt sem
liggur til grundvallar. Í grunninn
koma þessi ljóð sem holskeflur í
tveimur eða þremur atrennum, en
mér fannst svo mikil kvika í þessu að
ég gat ekki hugsað mér að sýna þau
nokkrum manni og var
lengi að velta því fyrir
mér hvað ég gæti gert
við þessi ljóð.
Smám saman efldist
kjarkurinn og þessi ljóð
létu mig hreinlega ekki
í friði svo ég sendi þau
á Guðmund Andra og
Sigþrúði ritstjóra
minn, en svo lét ég ljóð-
in eiga sig í smá tíma.
Þegar ég tók þau svo upp í vor brast
ný stífla umbreytingaljóða fram á
vetur og batt þetta að lokum saman.
Ég var svolítið smeyk við þetta, því
maður þarf að geta staðið sterkur
með verkinu sínu, sterkur í ber-
skjöldun, en ég tók skjálftann út fyrir
fram.“
- Það er þráður í ljóðunum.
„Ég hugsa þau sem sögu sem eina
heild, þótt það sé kannski brotakennd
heild.“
- Þetta er önnur ljóðabók þín og
skáldsagan, Segulskekkja, sem kom
út fyrir tveimur árum, var ljóðrænn
texti, eins og við ræddum áður en
eiginlegt viðtal hófst. Áttu frekar
heima í ljóði en skáldsögu?
„Ég hef verið ljóðastelpa frá því ég
var barn og lesið mikið af ljóðum, en
ég ætlaði mér að verða leikskáld, það
er það sem ég hafði mesta ástríðu
fyrir. Ég á vel heima í ljóðinu, kann
vel við mig þar, en hinsvegar hefur
frásagnarlistin kallað á mig líka og
ég er að vinna að annarri skáldsögu.
Ég vissi það líka að maður þarf að
senda frá sér skáldsögu til að ná
máli,“ segir Soffía og kímir.
- Skáldsögurnar ná kannski til
Ást, losti, trú
og fegurð
Í nýrri ljóðabók, Ég er hér, hrífur Soffía
Bjarnadóttir lesandann í ferðalag og leiðir hann
í gegnum umbreytingarferli. Hún segir að stífla
hafi brostið innra með sér á ferð í Nepal.
Árni Matthíasson arnim@mbl.is
Soffía Bjarnadóttir
rithöfundur, ljóðskáld
og leikskáld.
Svartalogn Kristínar Marju Baldursdóttur er
komið út í kilju. Í bókinni, sem hefur heiti sitt frá
því veðrafyrirbrigði fyrir vestan þegar það er
svo mikið logn í fjörðum að fjallskugga slær á
sjóinn, segir frá Flóru, sem stendur skyndilega á
krossgötum á miðjum aldri, fráskilin og atvinnu-
laus. Eftir árangurslausa atvinnuleit mánuðum
saman býðst henni að gera upp hús vestur á
fjörðum á meðan hennar íbúð er í útleigu.
Þó að Flóra reyni að mála yfir minningarnar
gengur henni illa að ná völdum í líf sínu, en kynni hennar af organista
og þremur útlendum fiskverkakonum verða til þess að hún nær áttum
og smám saman þokar hún sér úr fjallskugganum.
JPV gefur bókina út.
Úr fjallskugganum
Bandaríski rithöfundurinn John Kennedy Toole
varð aðeins rúmlega þrítugur. Honum voru veitt
Pulitzer-verðlaunin árið 1981 fyrir skáldsöguna
Aulabandalagið, þótt Toole hefði þá hvílt í gröf
sinni í 12 ár. Sagan var talin eina verk höfundar
en nokkrum árum síðar fannst handrit að Neon-
biblíunni (The Neon Bible), uppvaxtarsaga sem
þessi merki höfundur hafði skrifað aðeins 16 ára
að aldri.
Í Neonbiblíunni segir frá lífinu á fjórða og
fimmta áratug aldarinnar sem leið í smábæ í Suðurríkjum Bandaríkj-
anna þar sem trúin skipar höfuðsess í lífi þeirra bæjarbúa sem eitt-
hvað mega sín og hafa efni á safnaðargjöldunum. Það á hins vegar
ekki við um drenginn David og foreldra hans, sem hrekjast út á jaðar
samfélagsins. Uggi Jónsson þýddi bókina. Sæmundur gefur út.
Neonbiblían á íslensku
Mál og menning hefur gefið út í kilju Pass-
íusálma Einars Kárasonar sem komu út inn-
bundnir fyrir jól. Bókin er einskonar framhald
af Stormi, skáldsögu Einars sem kom út 2003,
en höfuðpersóna í þeirri bók, Eyvindur Jónsson
Stormur, var ekki sátt við myndina sem dregin
var upp af honum í bókinni að því kemur fram í
inngangi Einars að Passíusálmunum.
Í innganginum segist Einar þannig hafa feng-
ið í hendur nokkurskonar varnarrit frá Eyvindi
sem honum fannst sem hann yrði að vinna úr:
„Að ég eiginlega skuldaði okkur báðum það, þótt erfitt sé að skýra út
hvernig.“
Mál og menning gefur bókina út.
Passíusálmarnir í kilju
Skólar alls staðar á
landinu tóku þátt í
lestrarátaki Ævars
vísindamanns sem
lauk í vikunni, rúm-
lega 130 skólar. Ekki
nóg með það heldur
tóku íslenskir krakk-
ar í útlöndum líka
þátt, en Ævar hafði
samband við Íslend-
ingahópa um allan
heim í gegnum Face-
book og lét vita af
átakinu. Eftir taln-
ingu kom í ljós að ís-
lenskir krakkar í
Bandaríkjunum, Eng-
landi, öllum Norð-
urlöndunum, Lúx-
emborg, Þýskalandi,
Belgíu og Perú tóku
þátt.
Ekki var merkj-
anlegur munur á því
hvað krakkarnir lásu á
hverju landsvæði fyrir
sig; íslenskir krakkar virðast með
nokkuð svipaðan smekk á bókum.
Alls voru lesnar meira en
63.000 bækur í átakinu.
Þetta var þriðja
átak Ævars og í
þessi þrjú skipti
hafa íslenskir
krakkar lesið alls um
177.000 bækur.
Meðan á átakinu
stóð fékk Ævar fjölda
skilaboða, bæði frá
foreldrum og kenn-
urum, með sögum af
krökkum sem tóku
þátt. „1. bekkur í
Hvolsskóla hélt til
dæmis 500 bóka
veislu í vikunni sem
leið, Grunnskóli Snæ-
LESTRARÁTAK ÆVARS VÍSINDAMANNS
Ævar Þór Benediktsson
Allir í Seljaskóla til í að
vera geimverur í bók …
Síðumúla 22 | Sími 517 0404 | serefni.is
Opið: 8-18 virka daga 10-14 á laugardögumSvansvottuð
betra fyrir umhverfið, betra fyrir þig
u Frábær þekja
u Mikil þvottheldni
u Hæsti styrkleikaflokkur
Almött veggmálning
Dýpri litir – dásamleg áferð