Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.03.2017, Blaðsíða 43
12.3. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 43
Starfi mínu fylgir mikill lestur en
aðallega á fræðilegum textum og
eins og mér finnst gaman í vinnunni
þykir mér gott að skilja fræðilega
hluta lífsins eftir á skrifstofunni í lok
dags. Ég hef alltaf lesið
mikið, og þá marg-
víslegar bókmenntir.
Ég er rétt að klára
magnaða bók nígerísku
skáldkonunnar Chi-
mamanda Ngozi Adichie sem heitir
Half of a Yellow Sun. Sagan byggir
á því þegar baráttan um að stofna
sjálfstætt ríki Biafra stóð sem hæst í
lok sjöunda áratugarins. Sagan er
vel skrifuð og persónusköpunin sér-
lega sannfærandi og
óvenjugóð innsýn gefin
í vonir, væntingar og
vonbrigði þau sem
fylgdu stríðinu í Biafra.
Á náttborðinu hjá
mér hefur í nokkurn tíma verið
áhugaverð bók Sigrúnar Stefáns-
dóttur og Eddu Jónsdóttur; Frú ráð-
herra. Ég hef gripið reglulega niður
í kafla og kafla þar sem kvenráð-
herrar segja sögur sínar og miðla
reynslu sinni úr stjórnmálum.
Á allra síðustu árum hef ég þó les-
ið minna og í stað yndislestrar fyrir
svefninn hefur Vera Illugadóttir út-
varpskona tekið við hlutverki sögu-
manns og við hlustum á kvöldin á
einhvern af frábærum sagnaþáttum
Veru; Í ljósi sögunnar, Lemúrinn
eða Leðurblökuna, sem ég get ekki
mælt nógsamlega með.
Andrea
Hjálmsdóttir
Andrea er lektor við félagsvísinda-
deild Háskólans á Akureyri
fleiri, en ljóðaunnendur elska þig
meira.
„Það er engin spurning, ljóð kalla á
dýpri eða annars konar lestur, annan
tíma, en ég vil bæði ást og rödd sem
ferðast víða,“ segir Soffía og hlær.
- Skáldsaga komin og tvær ljóða-
bækur, en hvernig er með leikrit?
„Ég er búin að skrifa tvö verk en
þau hafa verið í leiklestri, en aldrei
farið að alla leið. Það er flókið ferli að
koma leikriti frá sér, það þurfa svo
margir að koma að því til að skila því
á leiðarenda,“ segir Soffía en því má
bæta við hér að önnur af tveimur
meistaragráðum hennar er í bók-
menntafræði og hluti af náminu var
leikhúsfræði sem hún nam í Kaup-
mannahöfn. Hin gráðan er í ritlist.
- Aftur að Ég er hér: Það er hiti í
bókinni og smá harka. Ég er ekki að
segja að ljóðin séu ruddaleg eða frek
heldur er í þeim ólga.
„Hún er hrá kvika og það er eins
og trú og losti fari saman í henni,
jafnvel ákveðin víma. Hún fjallar líka
um ástina, en ég hugsa hana líka eins
og jörðina, sem við getum ekki verið
án.“
- En jörðinni er sama um okkur.
„Já, kannski er það eins með ást-
ina, en við getum ekki verið til án
hennar, ekki frekar en án jarðar-
innar – ástin er ekki bara tilfinning.
Ég kem líka inn á kynlíf og trú,
ákveðna leit, þorsta eftir einhverju
æðra hvort sem það er ást, losti, trú
eða fegurð og það fylgir því alltaf
þjáning.“
- Mér fannst samt sem það væri
lausn í bókinni.
„Það er gott að heyra, af því að mig
langar til að leita í ljósið. Líka í skáld-
skap. Þó að ég laðist mikið að myrk-
um skáldskap og hann sé nauðsyn-
legur finnst mér vonin mikilvæg.
Vonin er mikilvægasta og hættuleg-
asta vopn sem við höfum.“
Morgunblaðið/Golli
BÓKSALA 2.-8. MARS
Listinn er tekinn saman af Eymundsson.
1 LögganJo Nesbø
2 Dalalíf 4 - Logn að kvöldiGuðrún frá Lundi
3 Andartak eilífðarPaul Kalanithi
4 Eftir að þú fórstJojo Moyes
5 KviksyndiMalin Persson Giolito
6 Óvættaför 26 HaukdrekiAdam Blade
7 Allt sem ég man ekkiJonas Hassen Khemiri
8 MóðurhugurKári Tulinius
9 SpeglabókinEugen Ovidiu Chirovici
10 Þögult ópAngela Marsons
1 LögganJo Nesbø
2 Dalalíf 4 - Logn að kvöldiGuðrún frá Lundi
3 Eftir að þú fórstJojo Moyes
4 KviksyndiMalin Persson Giolito
5 Allt sem ég man ekkiJonas Hassen Khemiri
6 MóðurhugurKári Tulinius
7 SpeglabókinEugen Ovidiu Chirovici
8 Þögult ópAngela Marsons
9 PetsamoArnaldur Indriðason
10 SvartalognKristín Marja Baldursdóttir
Allar bækur
Íslenskar kilja
ÉG ER
AÐ LESA
fellsbæjar hélt lokahá-
tíð og fagnaði 1.177
lesnum bókum í 1.-4.
bekk, Seljaskóli las
næstum þúsund bækur
og voru víst allir krakk-
arnir þar búnir að
samþykkja það að
vera breytt í geimveru
í bókinni ef þau yrðu
fyrir valinu,“ segir
Ævar. Hann fékk send-
ar myndir af krökkum í
bæði Svíþjóð og Dan-
mörku að taka þátt í
átakinu og þannig mætti
lengi telja.
10 vinsælar bækur/bókaflokk-
ar í lestrarátaki Ævars vísinda-
manns að þessu sinni
voru: Skúli Skelfir;
Óvættaför; Mynda-
sögusyrpur; Vonda
frænkan; Pabbi pró-
fessor; Leyndarmál
Lindu; Gæsahúð; Lóa
– Myndasaga; Þín eig-
in hrollvekja; Rökk-
urhæðir.
Þegar úrslit voru
tilkynnt dró forseti
Íslands nöfn fimm
þátttakenda í átakinu
og verða hinir heppnu
persónur í næstu bók
Ævars.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Guðni Th Jóhannesson, forseti Íslands, dregur nöfn fimm þátttakenda úr lestr-
arátakspotti Ævars þegar úrslit voru tilkynnt í Borgarbókasafninu.
Skútuvogi 1c 104 Reykjavík Sími 550 8500 Fax 550 8510 www.vv.is
Traka 21 lyklaskápurinn skráir hver hefur lykla fyrirtækisins undir
höndum hverju sinni. Skápurinn opnast og afhendir lykil aðeins þeim
sem hefur leyfi til þess. Þetta sparar utanumhald og eykur öryggi.
Lyklar tapast miklu síður og kostnaður vegna þess lækkar.
Lyklaskápur sem
alltaf veit betur
Verð: 179.000 kr.