Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.03.2017, Blaðsíða 44
MÁLMUR Bandaríska málmbandið Quiet Riot, sem átti
blómaskeið sitt á níunda áratugnum, er ekki aldeilis af baki
dottið. Bandið kom sér á dögunum upp sínum sjöunda
söngvara, James Durbin, sem sló í gegn fyrir nokkrum ár-
um í raunveruleikaþættinum vinsæla American Idol. Hann
tekur við hljóðnemanum af Seann nokkrum Nichols, sem
gerði stutt stopp en náði þó að syngja inn á þrettándu breið-
skífu Quiet Riot, Road Rage, sem kemur út í næsta mánuði.
Durbin mun þreyta frumraun sína á sviði með bandinu
um næstu helgi. Quiet Riot var stofnuð árið 1975 og
þá voru meðal annarra um borð söngvarinn
Kevin DuBrow og gítarséníið Randy Rhoads.
Þeir eru báðir látnir. Lengst hefur verið í
bandinu trymbillinn Frankie Banali, frá 1982.
Til liðs við Quiet Riot
44 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.3. 2017
LESBÓK
SJÓNVARP Hollenskir sjónvarpsþættir rata
ekki oft á skjái landsmanna en dagskrár-
stjórar stöðvanna ættu ef til vill að gefa
spennuþáttunum The Swingers gaum, því
þeir eru að fá glimrandi dóma í Bretlandi
þessa dagana, þar sem þeir hafa verið sýndir
á Channel 4. The Swingers fjalla um ung hjón
sem eiga von á sínu fyrsta barni og festa
kaup á húsi í úthverfi Amsterdam. Þau
vingast fljótlega við hjónin í næsta húsi en
bjóða um leið heim atburðarás sem auðveld-
lega getur farið úr böndunum. The Swingers
hefur meðal annars verið líkt við Apple Tree
Yard sem Stöð 2 sýndi fyrir skemmstu.
Svíngslega spennandi hollenskur þriller
Úr hollensku spennuþáttunum The Swingers.
Global Series
Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir.
Söngvakeppni
RÚV Bein útsending hefst klukkan
19.45 á laugardagskvöld frá úrslit-
um Söngvakeppninnar 2017 í Laug-
ardalshöllinni. Sjö lög etja kappi og
verður sigurlagið fulltrúi Íslands í
Eurovision-keppninni sem fram fer
í Kænugarði í vor. Sérstakur gestur
verður Svíinn Måns Zelmerlöw,
sem sigraði í keppninni fyrir tveim-
ur árum. Dagskrárgerð annast
Helgi Jóhannesson og Ragnhildur
Steinunn Jónsdóttir, sem jafnframt
er kynnir Söngvakeppninnar.
RÁS 1 Þriðji og
síðasti hluti þátt-
arins Viðdvöl í
Borgarnes er á
dagskrá rásar-
innar klukkan 15 á
sunnudag. Þátt-
urinn er frá árinu
1974, þegar Jónas
Jónasson hafði þar
viðdvöl og tók nokkra bæjarbúa
tali. Þættirnir eru endurfluttir í til-
efni þess að liðin eru 150 ár frá því
að konunglegt verslunarleyfi var
gefið út fyrir Borgarnes við Brák-
arpoll í Mýrasýslu, eins og segir í
konungsbréfinu. Rætt er við Jón
Guðmundsson verkamann, Ásbjörn
Jónsson, bifvélavirkja og áhuga-
leikara, og Bjarna Bachmann safn-
vörð.
Viðdvöl
Jónas Jónasson
STÖÐ 2 Lokaþáttur af Satt eða
logið, íslensku útgáfunni af hinum
geysivinsælu þáttum Would I Lie to
You? sem hafa slegið í gegn á Bret-
landi undanfarin ár, er á dagskrá á
sunnudag klukkan 20.35. Þátta-
stjórnandi er Logi Bergmann Eiðs-
son og tveir fastir liðsstjórar, Katla
Margrét Þorgeirsdóttir og Auðunn
Blöndal. Í hverjum þætti keppa tvö
þriggja manna lið.
Katla Margrét Þorgeirsdóttir.
Satt eða logið?
Ég hef átt í ástar/haturssam-bandi við nýju Metallica-plötuna, Hardwired ... to
Self-Destruct undanfarna mánuði,
eða frá því hún kom út 18. nóvem-
ber síðastliðinn. Niðurstaðan er sú
að hún sé allt í lagi; þarna eru góðir
sprettir og slappara efni. Auðvitað
er alltaf gaman að fá nýja Metall-
ica-plötu en hvers vegna það tók
þessa menn, sem flestir málm-
hausar myndu skilgreina sem snill-
inga (nema nördin sem hafa óbeit á
öllu sem lekur út úr reykmettuðum
bakherbergjum), átta ár að gera
svona plötu er skilningi mínum of-
vaxið. Ég meina, það tók þá ekki
nema fáeinar vikur að semja og
taka upp Master of Puppets, þrjá-
tíu árum fyrr; plötu sem margir
telja þá bestu í málmsögunni (líka
nördin sem hafa óbeit á öllu sem
lekur út úr reykmettuðum bakher-
bergjum).
Það er einmitt kjarni málsins;
hvers vegna svona mörg málmbönd
senda frá sér allra bestu verk sín á
fyrstu starfsárunum. Oftast fyrir
þrítugt. Allar bestu Metallica-
plöturnar komu áður en bandingjar
urðu þrítugir. Um það hljóta allir
að vera sammála. Sama máli gegnir
um önnur helstu málmbönd sög-
unnar, svo sem Slayer, Sepultura,
Iron Maiden, Black Sabbath,
Megadeth og Guns N’ Roses. Pan-
tera náði líka að toppa fyrir þrítugt
enda þótt þeir ágætu menn fyndu
ekki fjölina sína fyrr en að nokkr-
um plötum útgefnum. Judas Priest
hleypti líka á gott skeið um og upp
úr þrítugu. Það er helst að bönd
sem byrja seint, eins og Lamb of
God og jafnvel Mastodon, toppi
seinna. Nýjasta plata fyrrnefndu
sveitarinnar, VII: Sturm und
Drang, var til dæmis geggjuð og á
miklu brýnna erindi við samtímann
en Hardwired ... to Self-Destruct.
Eins og það er óþægilegt að við-
urkenna það.
Eins með bítl og roll
Í fljótu bragði sýnist mér þetta
mynstur ekki bundið við málminn.
Tökum gamla rokkið sem dæmi;
Bítlarnir voru hættir fyrir þrítugt
og lauk ekki gullöld The Rolling
Stones fyrir sama aldur; alltént í
sköpunarlegum skilningi? Hafa
Rollingarnir bætt miklu sem skipt-
ir máli við eftir þrítugt? Flestir eru
betur til þess fallnir að svara því en
ég.
Á ekki sama við um yngri rokk-
bönd sem notið hafa fádæma lýð-
hylli? Eiga seinni plötur U2 eitt-
hvað í fyrstu plöturnar? Eiga seinni
plötur Coldplay eitthvað í fyrstu
plöturnar? Hvað með Radiohead?
REM? Og hvað þetta allt heitir.
Sjálfsagt veltur svarið á því
hversu grjótharður aðdáandi þess-
ara sveita tekur til svara/varna.
Rokksveit sem í eina tíð var á
hvers manns vörum, Red Hot Chili
Peppers, mun skola hingað upp á
Íslandsstrendur í sumar. Streyma
menn þangað til að hlusta á nýtt
efni? Varla. Sjálfur sá ég Chris
Cornell í fyrra. Ekki til að kynna
mér hvað hann er að sýsla í dag.
Sömu sögu má segja af Slash um
árið. Þakið fauk ekki af Laug-
ardalshöllinni fyrr en hann hlóð í
GNR-stöffið.
Hvað veldur þessu? Í öðrum at-
vinnugreinum toppa fæstir fyrir
þrítugt; alltént ekki lögfræðingar,
bakarar og læknar. Og afar sjaldan
klassískir tónlistarmenn, allra síst
óperusöngvarar. Í þessum skilningi
eiga rokktónlistarmenn mesta
samleið með íþróttamönnum, en
hjá flestum þeirra liggur ferillinn
hratt niður á við eftir þrítugt.
Nema þá helst kylfingum.
Ætli ferskleiki sé ekki nærtæk-
asta skýringin. Flestar þær hljóm-
sveitir sem hér hafa verið nefndar
hafa fundið upp hjólið. Svo að
segja. Komið með ný viðmið, nýjan
hljóm. Síðan fer nýjabrumið af því.
Heldur má auðvitað ekki gleyma
því að eftir að plata slær í gegn lep-
ur enginn dauðann úr skel lengur.
Og listamenn þurfa að þjást. Það
sanna dæmin.
Er Metal- gamla -lica
orðin Gaga?
AFP
Ungur temur, gamall nemur
Hvers vegna toppa málmbönd og aðrir rokktónlistarmenn þessa heims svona ungir? Langflestir þeirra
senda frá sér bestu og vinsælustu verk sín áður en þeir verða þrítugir. Eða er það rangur skilningur?
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Í ljósi þess sem sagt er hér til hlið-
ar má gera því skóna að ekki hefði
endilega verið mikils að vænta af
27 ára klúbbnum fræga, hefðu
liðsmenn hans náð að verða eldri.
Ekki nema þá helst næstu þrjú ár-
in á eftir.
27 ára klúbbnum tilheyra meðal
annarra Brian Jones úr The Roll-
ing Stones, Jimi Hendrix, Jim
Morrison úr The Doors, Janis Jopl-
in, Kurt Cobain úr Nirvana og
Amy Winehouse.
Þess utan hafði allt þetta fólk
siglt inn í mikla vanlíðan vegna
neyslu áfengis og fíkniefna. Það
kallar sjaldnast fram það falleg-
asta og besta í fólki. En á móti
kemur að ríkari ástæða er til að
harma það sem aldrei varð.
Það sem
aldrei varð
Janis
Joplin
James
Durbin.