Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.03.2017, Síða 48
SUNNUDAGUR 12. MARS 2017
„Ég ber djúpa virðingu fyrir prófessor Wenger, en hann
þarf að víkja. Á undanförnum árum hefur hann sankað að
sér léttfættum en nokkuð léttvægum leikmönnum, sem
spila fallegan reitabolta, en án mikillar ógnunar. Wenger
virðist haldinn þeirri þráhyggju að hann sé að skapa n.k.
enskt Barcelona. Það er göfugt markmið að vilja spila
silkimjúkan ballett-bolta, en á Englandi þarf stál með
silkinu til að ná toppnum.“
Þetta segir Stefán Hilmarsson söngvari en hann er í
hópi áhangenda Arsenal sem vilja losna við stjórann um-
deilda, Arsène Wenger. Óskar Þór Axelsson kvikmynda-
leikstjóri og Freyr Bjarnason blaðamaður eru á sama
máli. „Svar mitt er já. Komst á þessa skoðun í fyrra um
svipað leyti. Helsti gallinn hjá Arsenal er að við erum með
eiganda sem skiptir sér ekkert af stjórn liðsins og hann er
ekki með neinn í stjórninni sem hefur vald yfir Wenger.
Þessi strúktúr er ekki nógu góður. Og hann mun ekki
breytast nema ef annaðhvort Wenger hættir eða Kroenke
selur. Þannig að, það er kominn tími á Wenger,“ segir
Óskar og Freyr bætir við: „Liðið er fast í sama farinu.
Þrátt fyrir komu Sánchez, Özil og Cech virðist alltaf vanta
eitthvað upp á til að liðið stígi næsta skref og vinni deildina
eða komist lengra í Meistaradeildinni,“ segir Freyr.
Blendnar tilfinningar bærast með Lúðvík Arnarsyni,
forstöðumanni Vita Sport: „Wenger er klárlega besti
framkvæmdastjóri í sögu Arsenal. Ég er hins vegar á
þeirri skoðun að nú sé komið að þeim tímapunkti að hann
stígi til hliðar. Óskastaðan væri sú að Wenger myndi til-
kynna fljótlega að hann ætli að hætta í sumar og þá geta
stuðningsmenn félagsins sýnt honum það þakklæti sem
hann á skilið fyrir sína frábæru vinnu hjá félaginu.“
Hörður Sigurðarson, „gooner for life“, hefur keimlíka
sýn: „Wenger er besti stjóri í sögu félagsins og það er
sorglegt að heyra hvernig margir sem kalla sig Arsenal-
menn tala um hann. Að því sögðu tel ég að hann þurfi nú
að stíga til hliðar og hleypa öðrum að.“
Sigmundur Ó. Steinarsson rithöfundur er á báðum átt-
um: „Ég hef alltaf verið mikill Wenger-maður og er. Upp á
síðkastið, eins og stundum áður, hef ég leitt hugann að –
hvort það sé komin tími til að karlinn dragi sig í hlé. Ef
Wenger heldur áfram verður hann að gera stórátak í leik-
mannakaupum – hreinsa til, koma burtu miðlungs-
mönnum og fá alvörumenn! Arsenal hefur vel efni á því að
fá til sín öfluga leikmenn. Gleymum því ekki að það eru
leikmennirnir sem eru inni á vellinum, ekki Wenger.“
Tveir viðmælendur blaðsins vilja halda Wenger, Tómas
Jónsson lögmaður og Finnur Thorlacius bílablaðamaður.
„Ég hef alltaf staðið með kallinum í blíðu og stríðu,“ segir
Tómas og Finnur bætir við: „Nei, hann á ekki að hætta.
Hann hefur gert kraftaverk fyrir liðið, t.d. komið okkur í
Meistaradeildina, hvað er það 16 eða 20 ár í röð? Auk þess
hefur verið farið afar vel með peninga á hans tíma.“
Arsène Wenger er
milli tannanna á fólki.
AFP
Fleiri vilja Wenger burt
Öll spjót standa nú á Arsène Wenger,
knattspyrnustjóra Arsenal. Skiptar
skoðanir eru um það hjá íslenskum
aðdáendum hvort hann eigi að hætta.
„Það kom til mála fyrir skemstu
að hugsa um það, að koma upp
skemtistað í Kaupmannahöfn,
þar sem safnað væri saman
dvergum og dyrgjum, og þau
höfð til augnagamans gestum.“
Með þessum orðum hófst frétt í
Morgunblaðinu fyrir eitt hundr-
að árum, 12. mars 1917.
„En þessi hugmynd vakti þeg-
ar í stað mikla mótspyrnu,“ hélt
fréttin áfram. „Þótti mönnum
sem það væri dvergunum nóg
raun, hvernig þeir væru skapaðir
þótt eigi væru þeir hafðir til sýn-
is og athlægis. Og enn jókst
mótþróinn þegar farið var að
tala um það í blöðunum að
þarna gæti orðið gróðurstöð,
þar sem dvergarnir ykju kyn sitt,
kynslóð eftir kynslóð – nokkurs-
konar kynspillingarstofnun.“
Sá, sem aðallega stóð fyrir
þessum undarlegu áformum hét
Wittcower, en eigi vissi Morg-
unblaðið með vissu hverrar
þjóðar hann var. „Undirtekt-
irnar, sem fyrirætlun hans fékk,
voru slæmar, að ætla má að ekk-
ert verði úr framkvæmdum við
»dvergaborgina«. Forgöngu-
maðurinn þóttist meðal annars
ætla að vinna þægt verk með
þessu og bjóða til sín skóla-
stjórnum frá Norðurlöndum til
þess að skoða manna-örverpin,
en þar missást honum ef til vill
allra hrapallegast.“
GAMLA FRÉTTIN
Dvergar til augnagamans
Þessi mynd, sem birtist með frétt
Morgunblaðsins fyrir heilli öld, var
sögð vera af dvergum sem áttu að
vera til sýnis í Kaupmannahöfn.
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Jason Mewes
kvikmyndaleikari
Daði Freyr Pétursson
keppandi í Júróvisjón
Kelly Olynyk
körfuboltamaður
ILVA Korputorgi, s: 522 4500
www.ILVA.is laugardaga 10-18, sunnudaga 12-18,
mánudaga - föstudaga 11-18:30
25% afsláttur af Nordic
matarstelli.
Lake-borðstofuborð.Hvít laminat borðplata, fætur úr eik. 90x150 cm.
129.900 kr. Nú 89.900 kr.
25%
Lake-borðstofuborð
Nú89.900
Amalfi-borðstofuborð.Olíuborin eik. 90 x 160/210 cm. Framlenging fylgir.
149.900 kr. Nú 99.900 kr. Bow-stóll. Grátt áklæði. Svartbæsaðir fætur.
24.900 kr. Nú 11.900 kr.
Amalfi-borð
90x160/210 cm
149.900 kr.
Nú99.900
SPARAÐU
50.000
25-50%
AF ÖLLUM
BORÐSTOFUHÚSGÖGNUM
OG VÖLDUM BORÐBÚNAÐI
Paris-stóll.Hvítur eða svartur. Plastseta,
viðarfætur. 14.900 kr. Nú 7.450 kr.
50%
Mikið úrval af Guardian
húsgagnahreinsivörum.
Link-stóll. Plastseta. Ýmsir litir.
12.900 kr. Nú 8.900 kr.
Nú8.900
Nú7.450