Morgunblaðið - 07.04.2017, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2017
HARÐPARKET
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Verðmatið var ársgamalt
Miðað var við ellefu mánaða gamalt verðmat við sölu á lóð borgarinnar til Festis
Framsókn fer fram á að nýtt verðmat verði lagt fyrir borgarráð Reykjavíkur
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
Miðað var við ellefu mánaða gamalt
verðmat þegar Reykjavíkurborg
seldi Festi, félagi Ólafs Ólafssonar,
lóð í Vogabyggð. Gengið var beint til
samninga án auglýsingar og var lóð-
in seld fyrir tæplega 326 milljónir
króna, sem var meðaltal tveggja
verðmata.
Í reglum um skrifstofu eigna og
atvinnuþróunar Reykjavíkurborgar
(SEA), sem sá um framkvæmd söl-
unnar, segir að heimilt sé að semja
við þriðja aðila án auglýsingar ef
málefnalegar ástæður mæli með því.
Leita skuli þá eftir og hafa hliðsjón
af verðmati tveggja óháðra fast-
eignasala eða sérfróðra aðila. Aðrar
leiðir eru að auglýsa eignir á vef
SEA og í blöðum, auglýsa til sölu
með útboðsfyrirkomulagi eða leita
líklegra kaupenda.
Endurspeglar ársgamalt verð
Sveinbjörg Birna Sveinbjörns-
dóttir, borgarfulltrúi Framsóknar
og flugvallarvina, segir æskilegt að
útboðsleiðin sé farin sem oftast. Í
þeim tilfellum þar sem útboðsleiðin
sé ekki farin sé þó hægt að fá verð-
mat frá óháðum aðilum sem endur-
spegli markaðsverð. Með því að
styðjast við ársgömul verðmöt sé
hins vegar verið að selja lóðina á árs-
gömlu markaðsverði, segir Svein-
björg.
Á skjön við reglur borgarinnar
Þegar málið fór fyrir borgarráð
stóð aðeins í skjölunum að verðmatið
væri 326 milljónir, en hvergi kom þar
fram hvenær verðmatið hefði verið
gert. Segir Sveinbjörg Birna að
Framsókn og flugvallarvinir hafi
fyrir borgarráðsfund sl. þriðjudag
óskað eftir nánari upplýsingum um
verðmatið þar sem það kom í ljós að
það væri ársgamalt. Segist hún hafa
staðið í þeirri trú að farið hefði verið
eftir settum reglum við verðmatið.
„Við teljum að með þessu hafi
borgin brotið gegn sínum eigin
reglum,“ segir Sveinbjörg. Hún hef-
ur borið upp tillögu þess efnis að lagt
verði fyrir borgarráð nýtt verðmat á
lóðinni svo hægt sé að meta hvort
borgin hafi orðið fyrir fjárhagslegum
skaða vegna þessa.
Fulltrúar Garðabæjar og fjármálaráðuneytisins, fyrir
hönd ríkissjóðs, hafa náð samkomulagi um kaup bæjar-
félagsins á jörðinni Vífilsstöðum. Undir er rösklega 200
hektrara svæði í kringum Vífilsstaðaspítala og austan
þess, núverandi golfvallarsvæði GKG, friðland í Vífils-
staðahrauni og á Rjúpnahæð á móts við hesthúsa-
byggðina á Kjóavöllum.
Kaupverðið er 558,6 milljónir króna og greiðir Garða-
bær tæplega 100 millj. króna við undirritun en aðrar
greiðslur koma á næstu átta árum í takti við hvernig
uppbyggingu í hverfinu miðar. Til viðbótar grunnverði
á seljandi rétt á hlutdeild í ábata af sölu byggingar-
réttar á svæðinu. Í sjúkrahúsbyggingunni á Vífils-
stöðum er í dag starfrækt öldrunardeild á vegum Land-
spítala. Undanskildar í samningunum eru allar
húseignir ríkisins á Vífilsstöðum, en gerðir verða lóða-
samningar um eignirnar.
Með kaupum á landinu tryggir Garðabær sér forræði
yfir eignarhaldi landsins sem mun auðvelda bæjarfélag-
inu að vinna að gerð skipulagsáætlana fyrir svæðið. Í
tillögu að nýju aðalskipulagi Garðabæjar er gert ráð
fyrir að svæði Vetrarmýrar, Hnoðraholts og Vífilsstaða
verði eitt skólasvæði með 1.200-1.500 íbúðum þar sem
fléttast saman ólíkir hagsmunir með uppbyggingu
íbúðabyggðar, skóla- og íþróttasvæðis og atvinnu- og
þjónustusvæðis. sbs@mbl.is
Vífilsstaðaland selt Garðabæ
200 hektarar Kaup-
verðið er nær 560 millj. kr.
Morgunblaðið/Sverrir
Vífilsstaðir Sveitarfélagið kaupir landið en ríkið held-
ur eftir fasteignum, svo sem spítalabyggingunni.
Friðjón Björgvin
Gunnarsson,
fyrrv. eigandi net-
verslunarinnar
buy.is og bestbuy-
.is, hefur í héraðs-
dómi verið dæmd-
ur í tveggja ára og
sex mánaða fang-
elsi og til að
greiða 307,6 millj. kr. vegna skatt-
svika. Honum ber að greiða sektina
innan fjögurra vikna, en sæti ella
fangelsi í eitt ár. Eiginkona hans sem
einnig var ákærð var dæmd í fjögurra
mánaða skilorðsbundið fangelsi.
Maðurinn var ákærður fyrir stór-
felld undanskot á virðisaukaskatts-
greiðslum hjá tveimur fyrirtækjum
sem hann var í forsvari fyrir. Einnig
að hafa ekki gefið upp tekjur 2011-
2013 og þar með svikist um að greiða
16,5 milljónir kr. í tekjuskatt.
Þá var hann fundinn sekur um pen-
ingaþvætti með því að hafa látið hluta
ávinnings af brotum sínum renna inn
á bankareikning sinn og bankareikn-
ing eiginkonu sinnar. Neitaði mað-
urinn undanskotum einkahlutafélag-
anna og peningaþvætti, en játaði að
hafa skilað röngum skattframtölum
fyrir sig. Var hann engu að síður
fundinn sekur í öllum ákæruliðum.
Eiginkona hans var fundin sek um
peningaþvætti með því að hafa veitt
viðtöku 11,5 milljónum kr. á reikning
sinn. Þá féllst dómurinn á að gera
upptækar 4,9 milljónir kr. á reikningi
konunnar auk þess sem mikill fjöldi
raftækja og tölvutækja sem fundust á
heimili þeirra var gerður upptækur.
Dæmdur
fyrir svik
Undanskot Sekt
er rúmar 308 millj. kr.
Leyfilegur heildarafli Íslendinga á
kolmunna í ár verður 264 þús. lestir
samkvæmt reglugerð sem gefin var
út í gær. Af leyfilegum heildarafla er
einungis heimilt að veiða 218 þús.
lestir í lögsögu Færeyja. Þannig tak-
markast það magn sem hvert skip
má veiða í lögsögu Færeyja við
82,5% af aflamarki þess. Ekki fleiri
en tólf íslensk kolmunnaskip mega á
hverjum tíma vera á Færeyja-
miðum.
Á síðasta ári máttu íslensk skip
veiða 124.484 lestir af kolmunna og
er aukningin milli ára því mikil. Það
er einkum og helst úr höfnum á
Austfjörðum sem sótt er í þennan
fiskistofn, enda er þaðan í raun ekki
langt að fara á miðin við Færeyjar.
Kolmunna-
kvóti aukinn
Hveragerðiskirkja var þéttsetin í gærkvöldi
þegar þar var haldin minningarstund um
Mikael Rúnar Jónsson sem lést af slysförum
við heimili sitt í Hveragerði síðastliðinn laug-
ardag, 1. apríl. Hann var 11 ára gamall. Séra
Jón Ragnarsson, sóknarprestur Hvergerð-
inga, annaðist athöfnina, sem var látlaus og
hlýleg.
Áberandi við athöfnina voru skólasystkini
Mikaels Rúnars, börn sem þarna voru með
foreldrum sínum. Jarðarförin verður auglýst
síðar.
Fjölmenni við minningarstund í Hveragerði
Morgunblaðið/Eggert