Morgunblaðið - 07.04.2017, Qupperneq 13
Morgunblaðið/Golli
son var kosinn forseti í síðasta
sinn,“ upplýsir hann og heldur
áfram: „Við hjónin vorum á Hólma-
vík á leið í Árneshrepp þar sem við
ætluðum að skoða okkur um. Þá
rifjaðist upp fyrir mér að amma
Lilju fæddist á Gjögri svo við
ákváðum að finna leiði ættingja
hennar í kirkjugarðinum. Ég kíkti
því í Íslendingabók og sá að þegar
langamma konu minnar lést aðeins
27 ára frá fjórum börnum var hún
sú 11. af 14 systkinum til að deyja.
Flest systkini hennar dóu á fyrsta
ári. Í framhaldinu fór ég að skoða
aðrar langömmur okkar og -afa og
sá að þetta var algengt mynstur
lengst af 19. öldinni. Barnadauði
var mikill og erfið lífskjör leiddu
fólk til dauða langt um aldur fram.“
Stefáni var vitaskuld kunnugt
um að líf forfeðranna og -mæðr-
anna margra hverra var enginn
dans á rósum og býsna ólíkt lífi
niðjanna; blómabarnanna um 150
árum síðar, sem hann var um þetta
leyti að færa til bókar. Samt kom
honum á óvart hversu harða lífsbar-
áttu fjölskyldur þeirra hjóna höfðu
háð og varð æ forvitnari um hvern-
ig þeim tókst að fóta sig og skapa
sér lífsskilyrði.
„Ég gæti sagt margar hörm-
ungarsögurnar, þó ekki væri nema
bara þær sem ég hef lesið á net-
inu,“ segir hann en lætur þess getið
að þau hjónin séu býsna fjarskyld, í
áttunda lið nánar tiltekið, og að í
ættum beggja séu líka prestar,
hreppstjórar og sjálfseignar-
bændur.
Annars værum við ekki hér
„Ég þekkti sögu langafa míns í
móðurætt, Böðvars Magnússonar,
bónda og sveitarhöfðingja á
Laugarvatni, því ævisaga hans er
til. Ólíkt var lífshlaup föðurafa
míns, sem lengi var leiguliði á Aust-
urlandi. Hann missti föður sinn á
barnsaldri, heimilið leystist upp og
hann varð tökubarn. Síðar gerðist
hann vinnumaður á bæ þar sem
hann kynntist vinnukonu og
kvæntist henni. Þau
bjuggu yfir 20 ár á leigu-
jörðum þar til honum, hátt
á fimmtugsaldri, tókst að
eignast eigin jörð. Ég býst
við að á námskeiðinu kom-
ist flestir að raun um að
þeir séu meðal annars
komnir af fátækum leigulið-
um eins og föðurafi minn var
og finni hliðstæðar sögur af
sjálfstæðu fólki, sem tókst á
við sára fátækt, barnadauða,
vistarbönd, farsóttir og hall-
æri. Og hafði betur. Okkar fólki
tókst það, annars værum við ekki
hér. Reynsla áanna hefur ábyggi-
lega áhrif og mótar kynslóðirnar
sem á eftir koma með einum eða
öðrum hætti.“
Stefáni finnst athyglisvert
hversu hagir embættismanna, til
dæmis eins langafa Lilju, prests og
prófasts, voru til mikilla muna betri
en alþýðufólks á 19. öld. „Flest
börn hans menntuðu sig og urðu
m.a. læknar og lögfræðingar. Frá
öðrum langafa hennar sem var
leiguliði kom fyrsti stúdentinn hins
vegar ekki fram á sjónarsviðið fyrr
en tveimur kynslóðum síðar. Að-
stæður ungs fólks til að mennta sig,
koma undir sig fótunum og eignast
jörð voru því afar misjafnar eftir
því hverrar ættar það var. Fátækt
og skortur á jarðnæði urðu meðal
annars til þess að margir fluttust
vestur um haf. Einhverjar frásagnir
af Vesturförum á efalítið eftir að
reka á fjörur þátttakenda þegar
þeir fara að grúska í heimildum um
fjölskyldu sína.“
Dýrmæt saga
Þegar Stefán hóf ættfræði-
grúskið fannst honum lífshlaup
margra forfeðra og -mæðra þeirra
Lilju svo áhugavert að hann íhugaði
að skrifa bók. Raunar hefur hann
ekki gefið hugmyndina upp á bátinn
en ætlar að bíða aðeins átekta.
„Fyrst ætla ég að halda námskeiðið
og reyna að átta mig á hvað það er
sem þátttakendur hafa áhuga á og
koma þeim á sporið í eigin fjöl-
skyldusögu. Þeir þurfa ekki að hafa
áhyggjur af að vera eins og í messu
þar sem bara presturinn talar. “
Og þótt námskeiðið verði fólki
kannski hvorki til framdráttar á
ferilskránni né fjárhagslegs ávinn-
ings vonar hann að það auðgi líf
þess. „Ríkidæmi í formi fróðleiks og
ánægju. Saga forfeðranna og
-mæðranna er dýrmæt og verður
ekki metin til fjár,“ segir hann.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2017
Á námskeiðinu fer Stefán yfir aðferðir til að leita
og greina upplýsingar á sístækkandi gagnasöfnum
á netinu, t.d. í Íslendingabók, manntölum á vef
Þjóðskjalasafnsins allt frá 1703 og ýmsum tíma-
rits- og blaðagreinum á timarit.is og Google.
Fjallað er um sögu og einkenni íslensks sam-
félags á 19. og 20. öld til að varpa ljósi á upplýs-
ingar sem þátttakendur finna um ættingja sína.
Enn fremur verða skoðaðar aðferðir ættfræðinga
og sagnfræðinga sem hafa lagt áherslu á fjöl-
skyldusögu.
Námskeiðið er ætlað öllum sem vilja fræðast um
sögu forfeðra sinna og -mæðra með eigin grúski.
NÁMSKEIÐIÐ
Grúsk og greining
1703 Manntalið
1703 er líklega elsta
manntal í heimi sem
enn er varðveitt þar
sem getið er allra þegna
heillar þjóðar með
nafni, aldri og stöðu.
Endurmenntun Háskóla Íslands.
Ættfræðigrúsk – fjölskyldusaga
þín á netinu. Þrjú skipti, kl. 19.30 –
21.30, miðvikudagskvöldin 26.
apríl og 3. og 10. maí. Snemm-
skráning til og með 16. apríl.
Gersemar Stefán segir vitneskju um sögu forfeðranna og -mæðranna dýrmæta þótt ekki verði hún metin til fjár.
Austurvegur 69 - 800 Selfoss // Lónsbakk i - 601 Akureyr i // Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir // Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is
Jötunn kynnir
Goes Iron og
Goes Cobalt
• Lengd: 2.130 mm
• Þyngd: 371 kg
• Vél: Vatnskæld fjórgengis SOHC
• Drif: 2x4 / 4x4 / 4x4 LOCK
• Driflæsing 100% læsanleg framan og aftan
• Stillanlegir demparar, sjálfstæð afturfjöðrun
• Rafléttistýri (EPS)
• Diskabremsur framan og aftan
• Bensíntankur 18 L
• Bein innspýting (EFI)
• Götuskráð
• Dekk framan 25x8x12
• Dekk aftan 25x10x12
með vsk
IRON 450 Kr. 1.259.000
• Lengd: 2.330 mm
• Þyngd: 383 kg
• Vél: Vatnskæld fjórgengis SOHC
• Drif: 2x4 / 4x4 / 4x4 LOCK
• Driflæsing 100% læsanleg framan og aftan
• Stillanlegir demparar, sjálfstæð afturfjöðrun
• Rafléttistýri (EPS)
• Diskabremsur framan og aftan
• Bensíntankur 18 L
• Bein innspýting (EFI)
• Götuskráð
• Dekk framan 25x8x12
• Dekk aftan 25x10x12
með vsk
Kr. 1.499.000COBALT MAX 550
• Lengd: 2.330 mm
• Þyngd: 383 kg
• Vél: Vatnskæld fjórgengis SOHC
• Drif: 2x4 / 4x4 / 4x4 LOCK
• Driflæsing 100% læsanleg framan og aftan
• Stillanlegir demparar, sjálfstæð afturfjöðrun
• Rafléttistýri (EPS)
• Diskabremsur framan og aftan
• Bensíntankur 18 L
• Bein innspýting (EFI)
• Götuskráð
• Dekk framan 25x8x12
• Dekk aftan 25x10x12
með vsk
Kr. 1.299.000IRONMAX 450