Morgunblaðið - 07.04.2017, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2017
Fæst íapótekum,Hagkaup,Fjarðarkaup,
NettóogGrænheilsa.
Bragðlaust duft í kalt vatn
5 mán skammtur
Styður:
Efnaskipti og öflugri brennslu
Minni sykurlöngun
Slökun og svefn
Vöðva og taugastarfsemi
Gott á morgnana og kvöldin
1/3 tsk = 350mg - ekkert bragð
Mikil virkni
Náttúrulegt
Þörungamagnesíum
ENGIN
MAGAÓNOT
Nýjar
umbúðir
sömu gæði
ÚR BÆJARLÍFINU
Skapti Hallgrímsson
Akureyri
Miklar framkvæmdir hafa verið við
Sundlaug Akureyrar síðustu mán-
uði. Nú hillir undir að breytingum
ljúki en tvær nýjar rennibrautir
verða teknar í notkun í lok júní.
Önnur rennibrautin verður 86 m
á lengd, hin nokkru styttri. Lokað,
upphitað stigahús verður við renni-
brautirnar þannig að ekkert ætti að
koma í veg fyrir að þær verði opnar
allt árið. Að auki verður nýrri
barnarennibraut komið fyrir og
laugin sem börnin enda í eftir ferð í
henni verður mun stærri en sú
gamla var.
Tvískiptur heitur pottur verður
á svæðinu, annars vegar hefðbund-
inn, hins vegar vaðlaug. Gert er ráð
fyrir að framkvæmdum við þetta
verði lokið seinni partinn í júní.
Árleg AK Extreme hátíð hófst á
Akureyri í gær en þar sýna snjó-
brettamenn listir sínar utandyra og
tónlistarmenn trylla lýðinn innan-
húss á völdum stöðum. Hátíðinni
lýkur á sunnudag en hápunktur AK
Extreme verður Eimskips-gáma-
stökkið í Gilinu, þar sem flestir
bestu brettamenn landsins mæta til
leiks og einnig nokkrir útlendir. Þar
hafa síðustu ár safnast saman þús-
undir áhorfenda.
Einhvern tíma hafði ég á orði á
þessum vettvangi að ómögulegt væri
að verða bensínlaus á Akureyri; ekki
að það væri markmið í sjálfu sér, en
til þess væru einfaldlega of margar
bensínstöðvar í bænum. Nú er
sennilega ómögulegt að verða
svangur – þó það sé heldur ekki
markmið í sjálfu sér. Veitingastöð-
um fjölgar bara svo hressilega og
voru þó alls ekki fáir fyrir.
Á Akureyri hefur lengi verið
fjöldi alls kyns veitingastaða en
þeim fjölgaði um tvo í gær.
Annars vegar var opnaður Sushi
corner á horni Kaupvangsstrætis og
Drottningarbrautar, hins vegar
Salatsjoppan á jarðhæð við
Tryggvabraut 22 en á efri hæðum
reka hjónin Davíð Kristjánsson og
Eva Ósk Elíasardóttir líkamsrækt-
arstöðina Heilsuþjálfun, en þau eiga
líka veitingastaðinn.
Í vor verður opnað útibú frá Lem-
on í Reykjavík við Glerárgötu og á
dögunum spurðist út að ein sýr-
lenska fjölskyldan, sem kom til Ak-
ureyrar sem flóttamenn fyrir nokkr-
um misserum, hygðist selja
sýrlenskan og tyrkneskan skyndi-
bita í göngugötunni í sumar, t.d.
falafel, shawarma og baklava. Bragð
verður sögu ríkari og víst að margir
fengu vatn í munninn við tíðindin!
Teklúbbur Háskólans á Akur-
eyri efndi til teboðs fyrir skemmstu,
í tilefni 30 ára afmælis skólans á
þessu ári. Í fagurlega skreyttu and-
dyri skólans var forvitnilegur ilmur
af ýmiskonar tegundum og boðið var
upp á smökkun, fræðslu og
marsípantertu að auki. Lukas
Blinka, aðjunkt við HA, hélt stutt er-
indi um teið Darjeeling sem þykir
vera einstakt og er oft kallað kampa-
vín tesins.
Teklúbbur HA hefur verið starf-
ræktur frá árinu 2015 en í honum
eru starfsmenn úr öllum deildum
skólans. Hópurinn hittist einu sinni í
mánuði, smakkar á ýmsum teteg-
undum og skiptist á fróðleik um
þennan göfuga drykk.
Morgunblaðið/Skapti
Breytingar Miklar framkvæmdir hafa verið við Sundlaug Akureyrar. Tvær nýjar rennibrautir verða tilbúnar í júní.
Af sundferðum, mat og tei
Skagaströnd | Gamla Salthúsið
sem stendur syðst á höfðanum
hefur verið í niðurníðslu í mörg ár.
Það var í eigu verktaka á Skaga-
strönd sem notaði báðar hæðar
þess sem geymslur fyrir efni og
verkfæri sem tilheyra starfsemi
hans.
Nýverið keypti Hrafnhildur Sig-
urðardóttir myndlistarkona húsið
og hefur þegar hafið uppbyggingu
á því. Hugmynd Hrafnhildar er að
koma þar á fót gistiheimili með 14
herbergjum, meðal annars með
listamenn í huga sem viðskiptavini.
Kosturinn við staðsetningu hússins
er gríðarlega fallegt útsýni þar
sem það stendur fremst á kletta-
snös syðst á höfðanum.
Með tilkomu þessa nýja gisti-
heimilis verður í raun sprenging í
framboði á gistirými á staðnum en
fyrir eru þó ein fimm gistiheimili
með mismikla gistigetu.
Gistiheimili gert úr
gamla Salthúsinu
14 herbergi með listamenn í huga
Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson
Salthúsið Væntanlegt gistiheimili stendur á fallegum stað á Höfðanum
með útsýni yfir hafið og höfnina. Gamla Salthúsið fær nýtt hlutverk.
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Heildarfjármagnið í verkefninu
Hverfið mitt hjá Reykjavíkurborg
býður sjaldnast upp á að stærri
verkefni komi til framkvæmda í
hverfunum, jafnvel þótt þau hljóti
flest atkvæði íbúanna.
Í lok mars lauk hugmyndasöfnun
fyrir Hverfið mitt 2017 og bárust
rúmlega þúsund hugmyndir. Þar til
á morgun er mögulegt að gefa
ákveðnum hugmyndum vægi á vefn-
um hverfidmitt.is. Hugmyndir sem
fá fylgi tíu íbúa eða fleiri eru teknar í
áframhaldandi vinnslu hjá fagteymi
umhverfis- og skipulagssviðs sem
sendir þær síðan áfram til hverfis-
ráðanna sem taka ákvörðun um 25
hugmyndir fyrir borgarhlutana tíu.
Íbúar kjósa svo á milli þeirra hug-
mynda í október og þær sem hljóta
mest fylgi eiga að koma til fram-
kvæmda á næsta ári.
Verkefnið Hverfið mitt er fyrir
smærri nýframkvæmdir og viðhalds-
verkefni, að sögn Sonju Wiium,
verkefnastjóra hjá Reykjavíkur-
borg. 450.000.000 kr. hafa verið sett-
ar í verkefnið en hverfin fá á bilinu
14 til 70 milljónir hvert, upphæðin
reiknast út frá íbúafjölda.
Bætt lýsing og bekkir vinsæl
Sonja segir verkefnið Hverfið mitt
ekki vettvang fyrir mjög stórar
framkvæmdir eins og íþróttamann-
virki eða bílastæðahús sem kosta yf-
ir 100 milljónir kr. „Það er engin
stefna að leggja áherslu á lítil verk-
efni og útiloka stór verkefni, verk-
efnum er hleypt í gegn kosti þau ekki
meira en framkvæmdapottur hverf-
isins og samrýmist gildandi skipu-
lagi,“ segir Sonja sem minnist þess
ekki að eitt verkefni hafi kostað allan
pott hverfisins, það dýrasta hingað
til hafi kostað á bilinu 20 til 30 millj-
ónir.
Í hugmyndasöfnuninni núna fyrir
Hverfið mitt má sjá verkefni eins og
göngubrú og lagfæringu á skólalóð
meðal vinsælustu hugmyndanna í
ákveðnum hverfum. Spurð hvort
þær gætu hlotið brautargengi segir
Sonja verkefni eins og göngubrú
kosta meira en heildarpottur hverf-
ana býður upp á. „Hvað varðar
skólalóðirnar, þá eru þær oft í ein-
hverskonar ferli hjá umhverfis- og
skipulagssviði og margar þeirra bíða
eftir hönnunarferli en hönnun heillar
skólalóðar og endurnýjun hennar
kostar oft á tíðum meira en heildar-
pottur hverfis.“ Sonja segir þó að
kosið hafi verið um fjölgun leiktækja
á skólalóðum, sem getur verið innan
fjárhagsrammans.
Hugmyndir á borð við bætta lýs-
ingu, að setja bekki og drykkjar-
brunna við göngustíga eru vinsælar
hjá borgarbúum og eru oft metnar
tækar í kosningunni þar sem þær
eru tiltölulega einfaldar í fram-
kvæmd, að sögn Sonju en engin
áhersla sé lögð á að þær hugmyndir
fái frekar framgang í verkefninu en
aðrar. „Hverfið mitt er góður vett-
vangur til að koma ábendingum á
framfæri, öllum hugmyndum er vís-
að áfram, ýmist sem ábending til við-
komandi sviðs eða í Betri Reykjavík,
þar sem efsta hugmyndin í hverjum
mánuði er send fagráði til umfjöll-
unar.“
Ekki fyrir stórar
framkvæmdir
Verkefnið Hverfið mitt er fyrir smærri
nýframkvæmdir og viðhaldsverkefni
Morgunblaðið/Eggert
Hverfið mitt Bætt aðstaða til úti-
vistar fær oft góðan hljómgrunn.