Morgunblaðið - 07.04.2017, Page 18
BAKSVIÐ
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Útlán til ferðaþjónustu hafa aukist
töluvert að undanförnu samfara auk-
inni fjárfestingu í greininni, upplýsti
Már Guðmundsson seðlabankastjóri
á fundi um fjármálastöðugleika í gær.
Slík útlán nema rúmlega 14% af
heildarútlánum viðskiptabankanna til
fyrirtækja og mældist ársvöxtur
þeirra 27% á síðasta ári.
„Þrátt fyrir að útlán viðskipta-
bankanna til ferðaþjónustunnar hafi
vaxið mun hægar en komur erlendra
ferðamanna, er mikil uppbygging í
greininni. Sú uppbygging er að ein-
hverju leyti fjármögnuð utan banka-
kerfisins, af einstaka fagfjárfesta-
sjóðum eða með stofnun
samlagshlutafélaga um einstaka
fjárfestingar. Lífeyrissjóðirnir eru í
mörgum tilfellum kjölfestufjárfestar
þar,“ segir í ritinu Fjármálastöðug-
leiki sem Seðlabankinn gaf út í gær.
Þriðji stærsti í útlánasafni
Fram kom í máli Hörpu Jónsdótt-
ur, framkvæmdastjóra fjármálastöð-
ugleikasviðs, að ferðaþjónustan væri
nú þriðji stærsti atvinnuvegaflokkur-
inn í útlánasafni bankanna á eftir fast-
eignafélögum og sjávarútvegi. Vikið
er að því í Fjármálastöðugleika að
ferðaþjónustan hafi vaxið mjög hratt
á undanförnum árum og sé nú
stærsta útflutningsatvinnugrein
landsins.
„Miklum útlánavexti fylgir alltaf
áhætta og mikilvægt er að fylgst sé
vel með henni,“ sagði Már, sem benti
á að útlán til ferðaþjónustu hefðu auk-
ist frá lágri stöðu áður en ferða-
mannabylgja síðustu ára reis. Hann
nefndi að í Fjármálastöðugleika sem
gefinn var út síðastliðið haust voru
birtar niðurstöður álagsprófs sem
sýndu að vegna góðrar eiginfjárstöðu
bankanna gætu þeir staðið af sér
verulegt áfall í ferðaþjónustu og út-
lánatöp sem af því hlytust.
Útlán til greinarinnar nema um
8,5% af heildarútlánum viðskipta-
bankanna til viðskiptavina, að því er
fram kemur í nýju riti Seðlabankans
um fjármálastöðugleika.
Þar segir að útlán beintengd ferða-
þjónustunni vegi enn sem komið er
ekki mjög þungt í bókum viðskipta-
bankanna, útlánaáhætta þeim tengd
gæti þó verið hlutfallslega nokkuð
mikil. Komi til verulegs samdráttar í
greininni gætu efnahagsaðstæður
versnað og útlánatap aukist einnig í
öðrum greinum, segir í skýrslunni.
13% útlána Íslandsbanka
Íslandsbankinn er eini bankinn
sem upplýst hefur um umfang lána til
ferðaþjónustunnar. Fram kom í
áhættuskýrslu bankans fyrir síðasta
ár að útlán til ferðaþjónustu hefðu
numið 13% af heildarútlánum um ára-
mótin, samanborið við 10% ári áður.
Bankinn er umsvifameiri í útlánum til
ferðaþjónustu en viðskiptabankarnir
að meðaltali.
Vakin skal athygli á að skilgrein-
ingar um hvað séu útlán til ferðaþjón-
ustu kunna í einhverjum tilvikum að
vera mismunandi á milli stóru við-
skiptabankanna þriggja.
Fram kom í áhættuskýrslu Ís-
landsbanka að bankinn væri vakandi
fyrir áhættu sem fylgdi vexti í lánveit-
ingum til ferðaþjónustu og vandaði
því valið í útlánum.
Lán til ferðaþjón-
ustu jukust um 27%
Flokkun útlána banka - augum rennt til ferðaþjónustu
Staða í lok árs 2016
Þar af ferðaþjónusta
By
gg
in
ga
rs
ta
rfs
em
i
Fa
st
ei
gn
af
él
ög
Fi
sk
ve
ið
ar
og
-v
in
ns
la
Ið
na
ðu
r
La
nd
bú
na
ðu
r
Sa
m
gö
ng
ur
og
flu
tn
in
ga
r
Ve
itu
r
Ve
rs
lu
n
Þj
ón
us
ta
Ófl
ok
ka
ð
He
im
ili
(h
.á
s)
H
ei
m
ild
:S
eð
la
ba
nk
iÍ
sl
an
ds
20%
16%
12%
8%
4%
0%
48%
42%
36%
30%
24%
18%
12%
6%
0%
Útlán til ferðaþjónustu nema 14% af fyrirtækjalánum
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2017
Fáð þé ýj i il H í f á
PI
PA
R
\
TB
W
A
••
SÍ
A
•
16
5
4
5
5
, j
u rn anogg rn egan app s r
Emmessís ekta íslenskanr ómaís.
7. apríl 2017
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 112.2 112.74 112.47
Sterlingspund 139.76 140.44 140.1
Kanadadalur 83.53 84.01 83.77
Dönsk króna 16.085 16.179 16.132
Norsk króna 13.04 13.116 13.078
Sænsk króna 12.463 12.537 12.5
Svissn. franki 111.78 112.4 112.09
Japanskt jen 1.0124 1.0184 1.0154
SDR 152.16 153.06 152.61
Evra 119.62 120.28 119.95
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 151.8487
Hrávöruverð
Gull 1253.75 ($/únsa)
Ál 1960.0 ($/tonn) LME
Hráolía 54.22 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Stjórn Nýherja
tók í gær ákvörð-
un um að auka
hlutafé félagsins
um 8.739.986
krónur að nafn-
verði. Það sam-
svarar tæplega
255 milljónum
króna að markaðs-
virði miðað við
dagslokagengi
félagsins í Kauphöllinni gær.
Hlutafé Nýherja fyrir hækkunina var
450.000.000 krónur að nafnvirði og
er að henni lokinni 458.739.986 krón-
ur að nafnverði. Hlutafjáraukningin er
gerð til þess að mæta innlausn starfs-
manna á kauprétti sem tilkynnt var
um hinn 31. mars síðastliðinn.
Á aðalfundi hinn 3. mars fékk stjórn
Nýherja heimild til að hækka hlutafé
félagsins í einu lagi eða í áföngum um
allt að 150 milljónir króna að nafn-
verði.
Nýherji eykur hlutafé
vegna kaupréttar
Finnur Oddsson,
forstjóri Nýherja.
Hugbúnaðarfyrirtækið Meniga hefur
lokið fjármögnun að fjárhæð 7,5 millj-
ónir evra, eða jafngildi 900 milljóna
íslenskra króna. Fjármögnunin er í
formi nýs hlutafjár frá sænska fjár-
festingasjóðnum
Industrifonden.
Jafnframt auka
núverandi fjár-
festar í Meniga;
Frumtak, Kjöl-
festa og Velocity
Capital við hlut
sinn.
Georg Lúðvíks-
son, forstjóri
Meniga, segir að
gengið í viðskipt-
unum hafi verið hærra en í síðustu
hlutafjáraukningu árið 2015. Verð-
mæti félagsins hleypur nú á nokkrum
milljörðum íslenskra króna.
Georg segir í samtali við Morgun-
blaðið að hlutur Industrifonden í
Meniga sé umtalsverður eftir kaupin.
Fyrirtækið sér nú fram á mikinn
tekjuvöxt. „Vöxtur félagsins hefur
komið í sveiflum. Fyrstu árin var
hann mjög hraður, en hefur verið
hægari síðastliðin þrjú ár. Tekjur
hafa þó vaxið á hverju ári, en starfs-
mannafjöldi staðið að mestu í stað
síðastliðin tvö ár. Nú sjáum við fram
á mikinn tekjuvöxt og einhverja fjölg-
un starfsmanna,“ sagði Georg.
Starfsmenn Meniga eru 70 á
Íslandi, 7 í Svíþjóð og 12 í London.
Félagið er átta ára gamalt.
„Það eru miklar tæknibreytingar
að eiga sér stað í bankaþjónustu og
hefðbundnir bankar hræðast að
smærri fyrirtæki og smáforrit taki
við hlutverki þeirra, eða risafyrirtæki
eins og Google og Facebook. Reglu-
gerðarbreytingar í Evrópu hafa líka
áhrif, því bankar koma til með að
þurfa að leyfa fólki að flytja færslu-
sögu sína á milli, og leyfa þriðja aðila
að hefja millifærslur í bankanum.
Þess vegna er mikil fjárfesting í
gangi í netbönkum í Evrópu. Al-
mennt vilja menn gera netbankana
persónulegri, og við getum hjálpað til
með það, bæði hvað ráðgjöf varðar,
og við að bjóða sérsniðin tilboð byggð
á viðskiptasögu.“
Bankar auglýsingahagkerfi
Hann segir að eftirspurn eftir
vörum Meniga hafi aldrei verið meiri.
„Fjármögnunin mun búa okkur undir
aukin umsvif. Úti er hugmyndin að
bankar búi til auglýsingahagkerfi inni
í netbönkum, byggt á fjármálasögu
viðskiptavinanna, með þeirra sam-
þykki, rétt eins og Facebook og
Google hafa gert. Okkar vaxtaráætl-
anir ganga út á að við fáum ríflegar
tekjur af þessum auglýsingum í gegn-
um tekjuskiptasamninga. Það er okk-
ar stóri draumur til að verða risa-
fyrirtæki.“
Spurður að því hvort Meniga geti
hugsað sér skráningu í kauphöll, seg-
ir Georg að sem stendur henti þeim
betur að fá fjármagn frá sérhæfðum
fjárfestum.
Meniga sér fram á að skila hagnaði
í ár, en síðustu ár hefur félagið verið
rekið með tapi. „Við höfum reyndar
orðið fyrir barðinu á styrkingu krón-
unnar, enda með 90% af tekjum í
evrum en langmestan kostnað í krón-
um.“
Meðal viðskiptavina Meniga eru
margir stærstu bankar heims en
þeirra á meðal eru Santander,
Commerzbank, ING Direct og Intesa
Sanpaolo. Lausnir Meniga eru not-
aðar í um 20 löndum af rúmlega 40
milljón virkum notendum.
tobj@mbl.is
Meniga metið
á milljarða
Industrifonden meðal nýrra hluthafa
Georg
Lúðvíksson
STUTT
● Ný spá greiningardeildar Arion banka gerir ráð fyrir að það hægi talsvert á verð-
hækkunum á húsnæðismarkaði þegar líður á árið. Samkvæmt spánni á húsnæðis-
verð eftir að hækka samtals um 18% frá því nú í mars til fjórða ársfjórðungs 2019,
sem þýðir að hægja muni á hækkunum húsnæðisverðs á næstu mánuðum. Tekið er
fram að spáin sé háð óvissu.
Arion banki segir að aðstæður til verðhækkana séu enn til staðar þar sem sölu-
framboð sé lítið og útlit fyrir talsverðan innflutning vinnuafls á næstu árum. Á móti
vegi að nú stefni í meiri íbúðafjárfestingu en áður og að fjölgun íbúða muni bráð-
lega fylgja fólksfjölgun, sem hafi ekki verið raunin upp á síðkastið að því er segir í
greiningu Arion banka.
Spá því að hægi á verðhækkunum fasteigna