Morgunblaðið - 07.04.2017, Side 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2017
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
Íslensku
þjónustufyrirtækin
eru á finna.is
VEISTU UM GÓÐAN
RAFVIRKJA?
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Bandaríkjamenn ýttu fast á það í gær
að greidd yrðu atkvæði í öryggisráði
Sameinuðu þjóðanna um ályktun, þar
sem þess yrði krafist að rannsókn færi
fram á meintri árás með efnavopnum
á þorpið Khan Sheikhun síðastliðinn
þriðjudag. Rússar, bandamenn Sýr-
landsstjórnar, stóðu hins vegar þverir
gegn því að ályktunin næði fram að
ganga með óbreyttu orðalagi. Lögðu
þeir fram sína eigin ályktun, þar sem
kröfum um að Sýrlandsstjórn myndi
veita upplýsingar um hernaðarað-
gerðir sínar á þriðjudaginn.
Sífellt bætist í fjölda þeirra sem
staðfest er að hafi látist á þriðjudag-
inn, en í gær var greint frá því að 86
manns, þar af 27 börn, hefðu fallið í
árásinni. Fyrstu niðurstöður krufn-
ingar virðast staðfesta þann grun að
saríngasi hafi verið beitt, sögðu tyrk-
neskir læknar, sem framkvæmdu
hana.
Var talið mjög ólíklegt að sættir
myndu nást á milli Rússa og vestur-
veldanna um efni ályktunarinnar.
Francois Delattre, sendiherra
Frakka, sagði að viðræðurnar við
Rússa færu fram í góðri trú, en að
nauðsynlegt væri að efnistök álykt-
unarinnar væru „sterk“. Sagði De-
lattre að Rússar yrðu dæmdir hart af
sögunni ef þeir myndu beita neitunar-
valdi sínu á ályktunina, en þeir hafa
beitt því sjö sinnum á undanförnum
árum til þess að fella ályktanir þar
sem Sýrlandsstjórn er gagnrýnd.
„Óásættanlegar ásakanir“
Vladimír Pútín Rússlandsforseti
sagði í gær að það væri óásættanlegt
að bera fram ásakanir á hendur Bas-
har al-Assad Sýrlandsforseta þegar
engin sönnunargögn væru til staðar.
Tyrknesk stjórnvöld, sem stutt
hafa við bak uppreisnarmanna, sögðu
á móti að stuðningur Rússa við Assad
væri „alfarið rangur“ og efuðust um
að friðarviðræður, sem Tyrkir og
Rússar hafa staðið að, gætu haldið
áfram að óbreyttu.
Ólíklegt að sættir náist
Rússar gagnrýndir fyrir stuðning sinn við Assad Tala látinna komin upp í 86
AFP
Öryggisráðið Safronkov, sendi-
herra Rússa, við umræður þar.
Donald Trump Bandaríkjaforseti tók á móti Xi Jinping,
forseta Kína, við Mar-a-Lago, afdrep Trumps í Flórída,
í gær. Gert var ráð fyrir að forsetarnir myndu snæða
saman kvöldverð og ræða ýmis alþjóðamál.
Samskipti ríkjanna eru talin á viðkvæmu stigi en
Trump hefur lagt áherslu á að rétta hlut Bandaríkj-
anna í viðskiptum gagnvart Kína. Þá hefur hann einnig
gagnrýnt stefnu Kínverja í málefnum Norður-Kóreu.
AFP
Trump og Xi hittast í fyrsta sinn
Maha Vaj-
iralongkorn,
konungur Taí-
lands, undirrit-
aði í gær nýja
stjórnarskrá sem
styrkir þátt hers-
ins við stjórn
landsins, en á
einnig að tryggja
það að kosningar
verði haldnar á
ný í landinu á næsta ári eftir
þriggja ára herstjórn.
Þetta er tuttugasta stjórnarskrá
Taílands frá árinu 1932 þegar kon-
ungur landsins afsalaði sér einveldi
sínu. Talsmenn hersins segja að
stjórnarskráin muni róa öldur og
koma í veg fyrir spillingu.
Stjórnarandstæðingar halda því
aftur á móti fram að ýmis ákvæði
hennar, eins og það að efri deild
þingsins verður að öllu skipuð af
konungi og ráðgjöfum hans muni
þýða að lýðræðið verði af skornum
skammti.
Konungur undirritar
nýja stjórnarskrá
Maha
Vajiralongkorn
TAÍLAND
Hamas-samtökin létu í gær hengja
þrjá menn, sem þau sögðu hafa
gerst seka um samstarf við Ísrael.
Var litið á refsinguna sem hefnd
fyrir dauða eins leiðtoga samtak-
anna í síðasta mánuði.
Mannréttindasamtökin Human
Rights Watch gagnrýndu aftök-
urnar og sögðu þær „villimanns-
legar“. Tóku önnur mannréttinda-
samtök í svipaðan streng.
Hamas sakar ísraelsku leyni-
þjónustuna Mossad um að hafa,
ásamt palestínskum kvislingum
sínum, náð að drepa Mazen Faqha
nálægt heimili sínu hinn 24. mars
síðastliðinn. Taysir, al-Batsh, lög-
reglustjóri Hamas á Gaza-svæðinu,
sagði hins vegar að mennirnir þrír
væru ekki grunaðir um beina að-
komu að því máli, heldur hefðu
þeir verið sakfelldir fyrir fyrri
landráð sín. Dauðdagar þeirra
væru „skilaboð til óvinarins, leyni-
þjónustu þeirra og samstarfs-
manna.“
Þrír hengdir fyrir
samstarf við Ísrael
GAZA
Norður-Kóreumenn segjast vera til-
búnir til þess að greiða Bandaríkj-
unum „vægðarlaust högg“ við
minnstu ögrun. Kim Hyong-jun,
sendiherra landsins í Rússlandi, til-
kynnti þetta í gær í kjölfar þess að
Donald Trump Bandaríkjaforseti
lofaði því að hann myndi halda uppi
öflugum vörnum fyrir bandamenn
sína í nágrenni landsins, sama dag
og Norður-Kóreumenn skutu á loft
langdrægri eldflaug í tilraunaskyni.
„Við höfum getuna til þess að
mæta öllu sem Bandaríkin geta gefið
okkur,“ sagði Kim. Gagnrýndi hann
um leið sameiginlegar heræfingar
Bandaríkjanna með Japönum og
Suður-Kóreumönnum.
Evrópusambandið herðir á
Í tilkynningu sem ríkisútvarp
Norður-Kóreu flutti sagði jafnframt
að Bandaríkjamenn lifðu í „villtum
draumi“ ef þeir teldu sig geta knúið
Norður-Kóreumenn til þess að láta
kjarnorkuvopn sín af hendi með
refsiaðgerðum.
Forsvarsmenn Evrópusambands-
ins tilkynntu í gær að sambandið
hefði samþykkt að herða á refsiað-
gerðum sínum gagnvart Norður-
Kóreu vegna stöðugra tilrauna
landsins með langdrægar eldflaugar
og kjarnorkuvopn.
Hvatti Evrópusambandið Norður-
Kóreu til þess að snúa aftur til við-
ræðna við alþjóðasamfélagið um
kjarnorkuvopnaáætlun sína og að
hætta öllum frekari tilraunum með
slík vopn sem og önnur gjöreyðing-
arvopn.
Í hinum hertu aðgerðum felst
meðal annars að evrópskum fjárfest-
um verður meinað að styðja við
vopnaframleiðslu, járnblöndun og
málmvinnslu auk loftferða í Norður-
Kóreu, auk þess sem fjórum var
bætt á ferðabannlista sambandsins.
Lofa „vægðar-
lausu höggi“
Norður-Kóreu-
menn hóta Banda-
ríkjunum
AFP
N-Kórea Vegfarendur í Seoul fylgj-
ast með fréttum af eldflaugarskoti.
Öldungadeild Bandaríkjaþings lenti í
írafári í gær þegar demókratar komu
í veg fyrir að hægt væri að staðfesta
val Donalds Trumps Bandaríkja-
forseta á Neil Gorsuch sem dómara í
hæstarétti Bandaríkjanna.
Þegar greidd voru atkvæði um það
hvort að binda ætti enda á umræðuna
og kjósa um útnefninguna greiddu 44
demókratar á móti því, en sextíu at-
kvæði af hundrað þarf til þess að
ljúka umræðu um dómara.
Í kjölfarið samþykktu repúblik-
anar í deildinni breytingu á þing-
sköpum þannig að einfaldur meiri-
hluti myndi duga til þess að staðfesta
Gorsuch í embættið. Chuck Schumer,
leiðtogi demókrata í deildinni, varaði
hins vegar við því að afleiðingarnar af
því gætu orðið skelfilegar í framtíð-
inni. Betra væri að útnefna hófsamari
dómara í sætið, sem losnaði þegar
Antonin Scalia lést snemma á síðasta
ári.
Gorsuch
staðfestur
í dag
Repúblikanar
breyta þingsköpum