Morgunblaðið - 07.04.2017, Síða 23
23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2017
Blúsdagur Blúshátíð í Reykjavík 2017 verður sett á morgun klukkan 14.00 á Skólavörðustígnum. Þar verður heiðursfélagi Blúsfélags Reykjavíkur 2017 kynntur og boðið upp á lifandi blús.
Eggert
Stjórnmálasaga að-
ildarumsóknar Íslands
að ESB er óskráð.
Þetta er saga svart-
asta kaflans í sögu ís-
lenskra utanríkismála.
Sumir lýstu undrun yf-
ir að ríkisstjórn Sig-
mundar Davíðs Gunn-
laugssonar skyldi ekki
strax vorið 2013 rjúfa
öll tengsl við Evrópu-
sambandið og segja á svipstundu
skilið við stefnuna sem Jóhanna
Sigurðardóttir og Steingrímur J.
Sigfússon mótuðu með ESB-aðild-
arumsókninni sumarið 2009. Víst er
að kjósendur veittu vorið 2013 skýrt
umboð til að ljúka aðildarviðræðun-
um í eitt skipti fyrir öll.
Í stað þess að höggva strax á við-
ræðuþráðinn við ESB var hag-
fræðistofnun Háskóla Íslands falið
að semja skýrslu um aðildarum-
sóknina og ferlið. Skýrslan kom út í
febrúar 2014. Þar er að finna skýr-
ar upplýsingar um hvernig að mál-
um var staðið, staðreyndir sem ekki
verður hnikað, grundvöll fyrir frek-
ari ályktanir. Skýrslan sýnir að allt
frá fyrsta degi aðildarferlisins var
illa staðið að málum. Þeir sem lögðu
grunninn að umsókninni höfðu ekki
fyrir því að kynna sér til hlítar
hvaða kröfur ESB gerir til umsókn-
arríkis.
Nú þegar Guðlaugur Þór Þórð-
arson utanríkisráðherra kynnir að
unnið sé að heildstæðu mati á störf-
um og hagsmunagæslu utanríkis-
þjónustunnar er óhjákvæmilegt að
líta sérstaklega til þess hvernig
staðið var að ESB-
aðildarmálinu.
Mat umsóknarsinna
á hvað aðildarviðræður
tækju langan tíma
reyndist alrangt. Efn-
islega var látið eins og
sama gilti um Ísland og
Möltu í sjávarútvegs-
málum. Stjórnvöld á
Möltu stjórna í raun
veiðum innan 25 mílna
lögsögu sinnar af því að
þar er aðeins heimilað
að veiða á bátum undir
tólf metrum að lengd. Finnum tókst
að skilgreina hluta síns landbúnaðar
sem heimskautabúskap og fengu
leyfi til að greiða bændum þar hærri
styrki en almennt leyfist innan ESB.
Var sagt að íslenskum sjávarútvegi
og landbúnaði yrði borgið innan
ESB með vísan til þessara fordæma.
Viðræðum lokið
Viðræðurnar sigldu í strand strax
vorið 2011 vegna ágreinings um
sjávarútvegsmál. Höfundur umsókn-
arinnar, Össur Skarphéðinsson ut-
anríkisráðherra, sá sér þann kost
vænstan að binda enda á viðræðu-
ferlið í ársbyrjun 2013 í von um að
minnka umræður um málið fyrir
þingkosningarnar þá um vorið. Sam-
fylkingin, flokkur hans, tapaði veru-
legu fylgi í kosningunum 2013 og
varð næstum að engu í þingkosning-
unum haustið 2016.
Eftir útkomu skýrslu hagfræði-
stofnunar héldu ESB-aðildarsinnar
áfram að hafna staðreyndum. Þeir
vildu ekki heldur að tekið yrði mið
af því að í þingkosningunum 2013
hafnaði þjóðin ESB-aðildarflokk-
unum.
Snemma árs 2014 hófu ESB-
aðildarsinnar að flytja boðskapinn
um svikabrigslin. Að ríkisstjórn
sem var mynduð vorið 2013 eftir
fall ESB-flokkanna skyldi ekki
halda áfram aðildarviðræðunum og
ætlaði að slíta þeim. Sérstaklega
var sótt gegn forystumönnum
Sjálfstæðisflokksins og þess krafist
af þeim að þeir efndu til þjóðar-
atkvæðagreiðslu um aðild að ESB
þótt þeir, flokkur þeirra, ríkis-
stjórnin og meirihluti alþingis væri
á móti aðild.
Málflutning ESB-aðildarsinna á
árunum 2013 til 2016 ber að brjóta
til mergjar ekki síður en það sem
þeir sögðu og gerðu á meðan rætt
var við ESB.
ESB var formlega tilkynnt á
árinu 2015 að Ísland væri ekki í
hópi umsóknarríkja ESB.
Utanríkisráðherra sendi orðsend-
ingu um þetta en ESB-aðildar-
sinnar létu ekki af kröfum sínum og
snerust þær nú um að þjóðin kysi
um að misheppnuðu aðildarviðræð-
unum sem hófust á röngum for-
sendum af Íslands hálfu yrði haldið
áfram!
Tveir flokkar sem höfðu þessa
stefnu fyrir þingkosningarnar, Við-
reisn og Björt framtíð, settust í rík-
isstjórn undir forsæti Sjálfstæðis-
flokksins að kosningum loknum.
Stjórnin hefur ESB-aðild ekki á
stefnuskrá sinni.
Áfram rætt um ESB
Í lýðræðisríki verður engum,
hvorki einstaklingi né flokki manna,
bannað að viðra skoðun á því hvern-
ig hag þjóðarinnar sé best borgið.
Einmitt þess vegna er bráðnauð-
synlegt að ræða áfram um ESB-
málefni hér á landi og meta þau í
ljósi þess sem gerist á vettvangi
ESB.
Meðal annars má læra af reynslu
Breta eftir að þeir samþykktu úr-
sögn úr ESB í þjóðaratkvæða-
greiðslu 23. júní 2016. Charles
Moore, einn fremsti blaðamaður
Breta, segir í grein í The Daily
Telegraph laugardaginn 1. apríl að
hann hafi grunað að talsmenn ESB-
aðildar, forystumenn meðal ráðandi
afla í Bretlandi í hálfa öld, hefðu
gert áætlun um að breyta tapi sínu í
þjóðaratkvæðagreiðslunni sér í vil
með ýmsum stjórnarfarslegum
brögðum.
Þeir hefðu vissulega ekki setið
aðgerðalausir. Nefnir Moore dæmi
máli sínu til stuðnings. Breska rík-
isútvarpið, BBC, hafi verið virkjað.
Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar
dregin í efa, naumur sigur í henni
hefði unnist vegna „lýðskrums“ og
„lyga“. Fall pundsins benti til efna-
hagshruns og atkvæðagreiðslan
hefði ekki meira gildi en skoðana-
könnun. Grein 50 í ESB-sáttmál-
anum mundi að lokum leiða til þess
að Bretland yrði áfram í ESB, úr-
sagnarviðræðurnar tækju 10 ár. Lá-
varðadeildin reyndi að hindra fram-
gang málsins. Leitað var til dóm-
stóla í sama skyni, allt í hæstarétt.
Moore segir að nú þegar 50. gr.
sáttmála ESB hafi verið virkjuð og
fyrir breska þinginu liggi frumvarp
um að ógilda ESB-löggjöf í Bret-
landi blasi við að andstæðingar úr-
sagnar hafi ekki sýnt mikla snilld í
viðbrögðum sínum. Þeir hafi tapað
áttum. Aðildarsinnar hafi í raun
aldrei stuðst við neina áætlun við
mótun og framkvæmd stefnu sinn-
ar. Þeim hafi mistekist að ná vopn-
um sínum og sækja fram á ný.
„Sem úrsagnarsinna er mér létt en
eftir langvinn kynni af hæfileikum
ráðandi afla í Bretlandi er ég í
áfalli,“ segir Moore.
Full ástæða er einnig til að efast
um hæfileika þeirra sem hafa árum
saman unnið að því leynt og ljóst að
koma Íslandi í Evrópusambandið.
Eftir hraklega útreið ESB-
aðildarumsóknarinnar með hruni
sjálfs ESB-flokksins, Samfylking-
arinnar, reyna þeir enn að halda lífi
í aðildarmálstaðnum. Að vísu án
þess að segjast vilja aðild, bara að
fá að vita hvað í henni felst. Hvert
er vopnið núna? Að tala niður krón-
una. Það er ljótur leikur og dæmd-
ur til að misheppnast.
Þegar litið er til ótrúlega mikils
hagvaxtar hér, lítils atvinnuleysis,
lítillar verðbólgu og mikils kaup-
máttar er stórundarlegt að nokkr-
um detti í hug að boða bjartari tíð
með aðild að evru-svæði lítils hag-
vaxtar og mikils atvinnuleysis.
Fréttaskýrandi Reuters, George
Hay, líkti því við aprílgabb að fjár-
málaráðherra Íslands vildi festa
krónuna við evru – það væri álíka
gáfulegt og afhenda þorski reiðhjól.
Eftir Björn
Bjarnason »Eftir hraklega útreið
ESB-aðildarum-
sóknarinnar með hruni
sjálfs ESB-flokksins,
Samfylkingarinnar,
reyna þeir enn að halda
lífi í aðildarmálstaðnum.
Björn Bjarnason
Höfundur er fv. ráðherra.
Lengi lifir í glæðum ESB-aðildarumsóknarinnar