Morgunblaðið - 07.04.2017, Síða 37
DÆGRADVÖL 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2017
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Farðu varlega í að gagnrýna vinnu-
félaga þína, því þeir vinna undir öðrum for-
merkjum en þú. Gakktu frá gömlum málum
og stefndu ótrauður fram á við.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú veist hvað þú sættir þig við, hvað er
rétt og hvað þú líður alls ekki. Gættu þess að
það sem þú færð í staðinn fyrir það sem þú
leggur á þig sé fyrirhafnarinnar virði.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það getum stundum tekið á að
hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd.
Skoðaðu þær vel áður en þú gerir einhverjar
ráðstafanir.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Aðgerðaleysi er ekki alltaf ávísun á
hvíld, stundum er það bara merki um að sitja
fastur. Fortíðarþráin gerir vart við sig. Fortíð
og nútíð renna saman í eitt.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Allt í einu uppgötvar þú að það sem þú
hélst að væri leyndarmál er á allra vitorði.
Gættu þess að valda fólki ekki vonbrigðum
við nánari kynni.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Reyndu að sýna samstarfsfólki þínu
skilning og þolinmæði í dag. Of margir val-
kostir eru af hinu illa fyrir þá sem ekki
þekkja sjálfa sig nægilega vel til þess að velja
rétt.
23. sept. - 22. okt.
Vog Takturinn í lífi þínu verður hraðari á
næstunni og á næstu vikum getur þú átt von
á meira annríki en venjulega. Mundu að
þolinmæði þrautir vinnur allar.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Yfirmenn þínir taka eftir þér í
dag og þess vegna skaltu vanda verk þín.
Gerðu nú viðeigandi ráðstafanir svo þú kom-
ist hjá því að lenda í slíkum aðstæðum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Reyndu að forðast erfiðar sam-
ræður við fólk með völd í dag. Vertu óhrædd-
ur við að leita aðstoðar á þeim sviðum sem
ekki eru á þínu valdi.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Nýjar aðstæður ná fram því besta
í þér, en gera þig líka varnarlausan. Ef þú
lætur óttann ekki ná tökum á þér mun allt
fara vel.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Reyndu að fá sem mest út úr
sköpunarþrá þinni og það á bæði við um leik
og starf. Gerðu þér far um að kynna þér alla
málavexti áður en þú kveður upp þinn dóm.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það reynir á þig í sambandi við lausn
á viðkvæmu vandamáli. Hún er líka sú
skemmtilegasta og það sem skrýtnara er, sú
sannasta.
Páll Imsland var í fylgd morgun-hanans á Leirnum:
Ég ligg hér í sæng minni’ og sef
og svolítinn óhug ég hef,
að sæki’ að mér mara,
en svo er það bara
lítið og lágfleygt eitt stef.
Davíð Hjálmar Haraldsson fór í
fuglaskoðun í fjörunni á mánudags-
morgun:
Vorið gleður vængjaþjóð
um vík og klettagjögur.
Mávar syngja morgunljóð
sem mávum þykja fögur.
Tveim dögum síðar varð Ólínu
Kjerúlf Þorvarðardóttur litið út um
gluggann á hríðakófið fyrir utan – þá
hrukku henni þessi vísuorð af vörum:
Til beggja vona brugðið getur,
brigðul gerast auðnuspor.
Enn er kominn illskuvetur
eftir þetta bjarta vor.
Magnús Halldórsson kippir sér
ekki upp við það þó „venjulegt vor-
hret mælist misjafnlega fyrir“:
Grár er nú fauskurinn fúni
og fólkið er dálítið svekkt.
Þagnaður tjaldur í túni
sem telja má skiljanlegt.
Samt er nú Blakkurinn brúni
á beit þó að framboð sé tregt.
Enn sendi Ólafur Stefánsson
hringhendu frá sólarlöndum sem Sig-
rún Haraldsdóttir setti á Leirinn:
Út við sanda vogur vær,
vaktar landið sáttur.
Laufum bandar léttur blær,
líkt og andardráttur.
„Já, já! Flott vísa, enda búin að fara
í gegnum Sigrúnu,“ var athugasemd
Sigmundar Benediktssonar og hann
bætti við:
Vaxandi vísuorðin
voru honum um megn.
Sigrún mun andsett orðin.
Ólafur kemur í gegn.
Sigrún svaraði og sagði, að þetta
væri ekki illa meint – „datt þetta bara
sí svona í hug þegar ég las vísu Sig-
mundar“ :)
Ýmsu lífið upp á fann,
önug gnísti jöxlunum
hafa þarf nú heilan mann
hangandi á öxlunum.
Síðan þorði Sigrún ekki annað en
yrkja bragarbót:
Kenndur létt, með kálfa bera
kropp sinn er að sóla;
flott er þá að fá að vera
fjölmiðill hans Óla :)
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Fuglaskoðun og hring-
henda frá sólarlöndum
Í klípu
TÆKIFÆRI TIL
AÐ PÚSTA
Snarl
Kaffi
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„JÆJA, SKO, ÉG HUGSAÐI
„ÞÚ VERÐUR FJARRI Í TÍU MÍNÚTUR.
BEST AÐ FÁ SÉR EINA PYLSU Á MEÐAN.““
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... róandi baknudd.
STEIK!
ÉG GET
BEÐIÐ
HÚN ER ENNÞÁ
FROSIN, GRETTIR!
HELGA! PAKKAÐU SAMAN!
VIÐ ERUM AÐ FARA Í
FJÖLSKYLDUFRÍIÐ!!
FRÁBÆRT!
ÞAÐ VERÐUR
GOTT AÐ
KOMAST Í
BURTU!
ÞÚ HEFUR SVO
RÉTT FYRIR ÞÉR!
Reglulega koma upp tilvik þar semíbúar mótmæla breytingum sem
þykja raska ró á grónum svæðum.
Tilfærslur í skipulagsmálum þessa
efnis eru uppskrift að deilum, að ekki
sé talað um þegar í íbúðahverfum skal
búa samastað fólki í húsnæði á vegum
borga eða bæja. Svona mál kom upp í
Seljahverfi í Breiðholti fyrir nokkrum
vikum þar sem Reykjavíkurborg
hugðist koma fyrir tveimur mönnum
sem glímt hafa við vímuefnavanda.
Víkverji þekkir ekki nákvæmlega til
þess tiltekna máls, en viðbárur fólks-
ins sem fyrir býr í hverfinu einkennd-
ust af vorkunnarverðri fáfræði. For-
svarsmaður borgarinnar sagði í
fréttum að fengju þessir einstaklingar
hjálp ætti allt að vera í góðum málum
og því verðum við að trúa.
x x x
Sjónarmið Breiðhyltinga rifja ým-islegt upp og eru um margt kunn-
ugleg. Flestir sem hafa búið í fjöl-
býlishúsum þekkja að í stiga-
ganginum er oft leiðinlega týpan:
maður sem er öllum til ama og þó
myndi sá eiga heill að heita sam-
kvæmt almennum viðmiðum. Þetta er
bara leiðinlegur frekjukarl sem ætlar
að ná sínu fram. Er ónotalegur við
börn og röflar um bílastæði, rusla-
geymslur, garðslátt, hússjóðinn og
svo framvegis. Hinum skæðustu tekst
jafnvel að taka hálft hverfið á taugum
og sjá ekkert athugavert við fram-
komu sína. Verst af öllu er þó senni-
lega að réttur þolenda er sáralítill,
nema þá að flytja á brott. Mönnunum
er ekki hægt að mótmæla eða koma
burt, nema að loknu löngu ströggli
fyrir dómstólum sem enginn nennir
að standa í.
x x x
Við veljum okkur ekki nágranna.Undir fögru skinni reynist stund-
um vera flagð og á hinn bóginn eru
þeir sem við teljum vágesti yfirleitt
besta fólk, eins og velflestir raunar
eru. Og höfum gaman af nágrönn-
unum. Víkverja finnst það fegursta
tónlist þegar hann heyrir í ungbörn-
um í blokkinni sinni, náttúruleikir
parsins á hæðinni fyrir ofan vekja at-
hygli og að stöku sinnum séu haldin
partí með gítarspili fram undir morg-
un er bara skemmtilegt.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels, því
að hann hefur vitjað lýðs síns og búið
honum lausn.
(Lúk. 1:68)
...sem þola álagið!
TRAUSTAR VÖRUR...
Raftæknivörur
Mótorvarrofar
og spólurofar
Það borgar sig að nota það besta!
E
i
n
n
t
v
e
i
r
o
g
þ
r
í
r
3
1
.3
0
1
Skynjarar Töfluskápar
Hraðabreytar Öryggisliðar
Aflrofar Iðntölvur
Dalvegi 10–14 • 201 Kópavogi • Sími: 540 7000 • www.falkinn.is