Morgunblaðið - 07.04.2017, Blaðsíða 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2017
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Heimkynni – Sigrid Valtingojer er
heiti sýningar sem verður opnuð í
Listasafni Árnesinga í Hveragerði á
morgun, þriðjudag, klukkan 15. Sýn-
ingin er samstarfsverkefni Lista-
safns ASÍ og Listasafns Árnesinga,
þar sem það fyrrnefnda leggur til
verkin, allt grafíkverk, en í hinu síð-
arnefnda er sýningin sett upp.
Sigrid fæddist 1935 en við andlát
sitt 2013 hafði hún arfleitt Listasafn
ASÍ að öllum verkum sínum, um 300
verkum alls, ásamt ýmsum gögnum
þeim tengdum. Sýningarstjóri er Að-
alheiður Valgeirsdóttir, listfræð-
ingur og myndlistarmaður.
Auk þess að gefa innsýn í ólíkar
aðferðir grafíklistar, sem var aðal-
viðfangsefni Sigridar, kynnast sýn-
ingargestir sköpunarverkum lista-
manns sem var sannkallaður
heimsborgari. Sigrid nam bæði hér á
landi og erlendis, sýndi og starfaði
víða og hlaut ýmsar viðurkenningar
fyrir list sína. Sem barn, við lok síð-
ari heimsstyrjaldarinnar árið 1945,
kynntist Sigrid því að vera flótta-
maður þegar fjölskylda hennar var
svipt eignum og rekin brott frá heim-
kynnum sínum í Súdetahéruðum
Tékkóslóvakíu. Þau flúðu til Thür-
ingen-héraðs Þýskalands og settust
svo að í Jena sem þá var á sovésku
yfirráðasvæði. Í lok ársins 1947 flúði
fjölskyldan svo til Vestur-Þýska-
lands. Fullorðin valdi Sigrid Ísland
sem heimkynni; hún settist hér að
árið 1961 og hér skildi hún, að sögn
sýningarstjórans, eftir arfleifð sem á
rætur í miðevrópskri menningu.
Vandvirk og þýskur agi
Aðalheiður kynntist Sigrid í gegn-
um félagið Íslenska grafík, sameig-
inlegan vettvang þeirra. Hún segir
að leitað hafi verið til sín að stýra
þessari sýningu á verkum Sigridar
þar sem hún þekkti bæði verk henn-
ar og hana sjálfa, þó ekki of náið svo
hún hefur faglega fjarlægð á verkin.
En hvernig listamaður var Sigrid?
„Grafíkin var fyrst og fremst
hennar miðill en hún var alltaf
reiðubúin til að prófa sig áfram og
uppgötva eitthvað nýtt,“ segir Aðal-
heiður.
„Hún var mjög vandvirkur lista-
maður og nákvæm – það má segja að
í verkum hennar birtist viss þýskur
agi en um leið var hún reiðubúin að
þróa verk sín sífellt lengra áfram.“
Upphaflega vann Sigrid raunsæis-
leg verk, til að mynda dúkristur, en
þegar ferill hennar hófst fyrir alvöru
tók ætingin við sem hennar helsti
miðill í grafíkinni. „Þá varð íslensk
náttúra áberandi í verkunum enda
heillaðist Sigrid af henni. Hún ferð-
aðist mikið um fjöll og firnindi, sótti
viðfangsefni í náttúruna og gerði þau
að sínu. Það skipti ekki máli um ná-
kvæmlega hvaða staði var að ræða
heldur upplifunin af því að vera í
náttúrunni og skynja hana. Formin
og litirnir. Á sýningunni er til að
mynda tólf mynda sería sem heitir
„Landslag“. Öll verkin sýna stök fjöll
og í þeim vinnur Sigrid með formin –
hún kallaði þau verk óð til Íslands.
Við setjum þau upp í langri línu.“
Flóttamenn og náttúruvernd
Í Þýskalandi lagði Sigrid ung
stund á nám í auglýsingateiknun og
tískuteikningu en hún lærði síðan
myndlist á Íslandi.
„Hún hóf því sinn listamannaferil
hér eftir að hafa verið í grafíkdeild-
inni í Myndlista- og handíðaskól-
anum. Auk þess að sýna hér byrjaði
hún fljótlega að taka þátt í stórum
grafíksýningum og tvíæringum er-
lendis og vegnaði vel. Hún fékk til að
mynda verðlaun fyrir verk á sýn-
ingum á Ítalíu, í Japan og víðar,“ seg-
ir Aðalheiður.
„Eftir að hafa haft ætingu og akva-
tintu um skeið sem sinn aðalmiðil
innan grafíkur þá vék hún af þeirri
leið, meðal annars til að hafa meiri
möguleika í litanotkun, og fór þá út í
tréristur. Á því sviði gerði hún líka
allrahanda tilraunir og allt var það
mjög vandað hjá henni.“
Sýningin í Listasafni Árnesinga er
tvíþætt. Í öðrum salnum er lögð
áhersla á náttúrumyndir en í innri
salnum á tákn og táknmyndir í verk-
um Sigridar.
„Þar eru meðal annars verk sem
hún sýndi fyrst í sýningarsölum
Start-Art við Laugaveg eftir að hún
dvaldist um tíma í Palestínu þar sem
hún vann sem sjálfboðaliði. Verkin
eru táknræn upplifun á þeirri ferð og
hverju verki fylgir texti um ferðina
og upplifanir. Sigrid var mikill frið-
arsinni og málefni flóttamanna voru
henni hugleikin. Árið 2010, þremur
árum áður en hún lést, þá hélt hún í
Listasafni ASÍ sýningu þar sem
verkin hverfðust um flóttamenn og
stöðu þeirra í nýjum heimkynnum
þar sem þeir þurfa m.a. að læra nýtt
tungumál. Þau verk eru táknmyndir
unnar út frá þeim pælingum. Hún
þekkti vitaskuld þann veruleika sjálf
að vera á flótta og skipta um heim-
kynni.“
Aðalheiður telur líklegt að hrakn-
ingar fjölskyldunnar þegar hún var á
barnsaldri hafi mótað lífsafstöðu Sig-
ridar. „Hún gat sett sig í spor flótta-
manna í samtímanum,“ segir hún.
„Þá var náttúruvernd henni líka hug-
leikin og í verkunum kemur glögg-
lega fram hvað hún bar mikla virð-
ingu fyrir náttúrunni.“ Og Aðal-
heiður segir að hugmyndin að heiti
sýningarinnar, Heimkynni, hafi verið
að ná utan um þessar margþættu
tengingar Sigridar við Ísland.
„Hún var alla tíð íslenskur lista-
maður en með góðan grunn í evr-
ópskri hámenningu.“
Sýn á verk og vinnulag
Aðalheiður segist hafa notið þess
að rýna í það úrval verka Sigridar
sem hún arfleiddi Listasafn ASÍ að.
„Í samstarfi við Elísabetu Gunnars-
dóttur, forstöðumann safnsins, fékk
ég að fara í geymslurnar, skoða verk-
in vel, og ég valdi að taka þennan pól
í hæðina á sýningunni; að stilla ann-
arsvegar fram landslags- og náttúru-
myndum og hinsvegar táknum og
táknmyndum.“
Hún segir að í miðsal Listasafns
Árnesinga sé brugðið upp dæmum
um vinnu Sigridar með grafíkmið-
ilinn, til að mynda getur að líta æt-
ingarplötur hennar og skýringar á
vinnuaðferðum.
„Ég hef reynt að skapa góða sýn á
verk og vinnulag Sigridar,“ segir Að-
alheiður. „Hún vann mikið í seríum
og við sýnum nokkrar þeirra. Í einni
þrykkir hún beint eftir hrauni, svo-
kölluð „frottage“-verk og þau eru
verulega glæsileg saman komin. Þá
létum við ramma inn fjölda verka
sérstaklega fyrir sýninguna. Við
reynum að gera Sigrid góð skil og
sýna henni verðskuldaðan sóma.“
Grafíkin var hennar miðill
Sýning á grafíkverkum eftir Sigrid Valtingojer verður opnuð í Listasafni Árnesinga á laugardag
„Íslenskur listamaður en með góðan grunn í evrópskri hámenningu,“ segir sýningarstjórinn
Morgunblaðið/Ernir
Myndlistarkonan Sigrid Valtingojer á sýningu sinni í Listasafni ASÍ árið 2010. Hún lést þremur árum síðar. Verkin
á þessari sýningu fjölluðu um flóttamenn og stöðu þeirra en Sigdid kynntist því ung að þurfa að flýja heimkynni sín.
Yfirborð Verk eftir Sigrid, „Hörund
jarðar,“ frá árinu 2002.
Sýningarstjórinn Aðalheiður
Valgeirsdóttir við uppsetninguna.
Ljósmynd/Guðmundur Ingólfsson
Form „Landslag V“ frá árinu 1988. Sigrid sótti allskyns viðfangsefni í náttúruna og gerði þau að sínum.
Fjallaform Verkið „Stef I,“ frá 1993. Ætingin var lengi vel sú tækni grafíkur sem Sigrid beitti en þegar leið á fer-
ilinn tók hún að vinna meira í tréristur, „meðal annars til að hafa meiri möguleika í litanotkun,“ segir Aðalheiður.
ÍSLENSKA KÍSILSTEINEFNIÐ FRÁ GEOSILICA
INNIHELDUR HREINAN JARÐHITAKÍSIL
*Rannsóknir hafa sýnt fram á þessi áhrif, kísilvatnið er fæðubótarefni og kemur ekki í staðinn fyrir lyf.
Nánari upplýsingar má finna á www.geosilica.is
geoSilica kísilvatnið fæst í öllum helstu apótekum,
heilsuvöruverslunum, Hagkaupum, Nettó,
Fjarðarkaupum og vefverslun geoSilica.
KRISTÍN
JÚLÍUSDÓTTIR
„Ég heiti Kristín
og var ráðlagt að
prófa geosilica
vegna hármissis. Fékk nokkra skallabletti líklegast
vegna áfalls og að vera 23 með skalla var ekki
drauma aðstæðurnar! Fyrst leit þetta ekkert
svakalega vel út þar sem hárið virtist ekki ætla að koma til baka. Ég byrjaði að taka
þetta inn á hverjum degi og viti menn. Hárið byrjaði að vaxa á ógnarhraða!
Ég er svo ánægð að þetta gerðist svona fljótt því læknarnir sögðu að kannski kemur
það aftur kannski ekki og ekki til eitthvað úrræði sem er betra en annað.
En geosilica fékk allavega hárið til þess að vaxa!
Hér er smá fyrir og eftir myndir. “
• Styrkir bandvefinn*
• Stuðlar að þéttleika í beinum*
• Styrkir hár og neglur*
• Stuðlar að betri myndun kollagens
fyrir sléttari og fallegri húð*