Morgunblaðið - 07.04.2017, Síða 44
FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 97. DAGUR ÁRSINS 2017
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 548 KR. ÁSKRIFT 5.950 KR. HELGARÁSKRIFT 3.715 KR. PDF Á MBL.IS 5.277 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.277 KR.
1. Hver er Sóley sem fermdist 2008?
2. Móðir Birnu óskar eftir næði
3. Orrustuþota í vandræðum
4. Nýtt Borgunarmál í uppsiglingu?
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Uppistandshópurinn Mið-Ísland
kemur fram í Hljómahöllinni í Reykja-
nesbæ í kvöld kl. 20. Hópinn skipa
grínistarnir Ari Eldjárn, Bergur Ebbi
Benediktsson, Björn Bragi Arnars-
son, Dóri DNA og Jóhann Alfreð
Kristinsson og munu þeir flytja nýtt
gamanefni í kvöld.
Mið-Ísland skemmtir
í Hljómahöllinni
Björg Þórhalls-
dóttir sópran-
söngkona og
Helga Bryndís
Magnúsdóttir
píanóleikari halda
tónleika í Hofi á
Akureyri í dag kl.
12. Tónleikarnir
bera yfirskriftina
Söngvar sálarinnar og munu Björg og
Helga flytja ljóðasöngva eftir Vin-
cenzo Bellini, Gabriel Fauré og Franz
Schubert.
Söngvar sálarinnar
í hádeginu í Hofi
Tríó Reykjavíkur heldur síðustu há-
degistónleika sína á Kjarvalsstöðum
á þessu starfsári í dag kl. 12.15. Tríóið
leikur eitt stórbrotnasta píanótríó
tónbókmenntanna, sk.
Erkihertogatríó eftir
Ludwig van Beet-
hoven. Tríóið skipa
Guðný Guðmunds-
dóttir fiðluleikari,
Gunnar Kvaran
sellóleikari og
Richard Simm
píanóleikari.
Leika Erkihertoga-
tríó Beethovens
Á laugardag Gengur í norðaustan og síðan norðan 10-18 m/s með
snjókomu og skafrenningi um landið norðanvert. Hæg suðlæg eða
breytileg átt sunnantil og dálítil rigning. Frystir víða síðdegis.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Lægir á Vestfjörðum með morgninum og
rofar til, en hvessir aftur með rigningu eða slyddu í kvöld. Hiti 2 til
10 stig.
VEÐUR
Kvennalið Keflavíkur er
komið með frumkvæði í
undanúrslitarimmu sinni
við Skallagrím á Íslands-
mótinu í körfuknattleik.
Keflavíkurliðið vann þriðju
viðureign liðanna á heima-
velli í gærkvöldi og hefur nú
tvo vinninga gegn einum.
Þrjá vinninga þarf til að
komast í úrslit um Íslands-
meistaratitilinn við Snæfell
sem þegar hefur tryggt
sér sæti í úrslitum. »2
Keflavíkurliðið er
komið í kjörstöðu
„Leikur okkar var jákvæður. Það var
góður gangur í þessu hjá okkur þótt
maður sé alltaf að leita að hinum full-
komna leik,“ sagði Freyr Alexanders-
son, landsliðsþjálfari kvenna í knatt-
spyrnu, eftir öruggan
2:0 sigur íslenska
landsliðsins á lands-
liði Slóvaka í vin-
áttulandsleik í Se-
nec í Slóvakíu í gær.
»1
Er alltaf að leita að
hinum fullkomna leik
Íslenska karlalandsliðið í íshokkí
vann sögulegan fyrsta sigur frá
upphafi gegn Rúmeníu á heims-
meistaramótinu sem fram fer í
Galati þar í landi. Tveir nýliðar í ís-
lenska hópnum sáu um að skora
mörkin á þessari sögulegu stund,
en sigurinn hefur komið íslenska
liðinu í stöðu sem fáir bjuggust
við að yrði raunin fyrir mótið. »4
Sögulegum áfanga
náð hjá Íslandi á HM
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Þetta fólk hefur veitt mér mikil-
vægan andlegan styrk og það er í
raun erfitt fyrir mig að lýsa þeim
mikla stuðningi sem ég hef fengið og
um leið hversu þakklátur ég er fyrir
hann,“ segir Héðinn Máni Sigurðs-
son í samtali við Morgunblaðið, en
hann greindist nýverið með illkynja
krabbameinsæxli á þriðja stigi í
höfði og deilir reynslu sinni af með-
ferðinni með stórum hópi fólks á
snjallsímaforritinu Snapchat.
Héðinn Máni er 17 ára gamall,
fæddur árið 1999, og býr í Vogum á
Vatnsleysuströnd. Hann stundaði
áður nám við Fjölbrautaskóla Suð-
urnesja, en einbeitir sér nú að því að
ná aftur fyrri heilsu. Héðinn Máni
gaf sér tíma til að ræða stuttlega við
blaðamann um þá ákvörðun að deila
reynslu sinni með fólki, sem að
stórum hluta er honum ókunnugt.
Með kímnigáfuna að vopni
Héðinn Máni segir veikindi sín
fyrst hafa komið fram sem eyrna-
bólgueinkenni í hægra eyra. Í kjöl-
farið fór m.a. heyrnin versnandi og
ákvað hann þá að leita til háls-, nef-
og eyrnalæknis. „Hann sendi mig í
frekari rannsóknir vegna þess að á
þessum tíma fannst mér líka erfitt að
anda í gegnum hægri nösina. Lækn-
irinn stakk ákveðnu tæki upp í nös-
ina og rakst það bókstaflega í æxlið,“
segir hann, en í kjölfarið var Héðinn
Máni sendur til krabbameinslæknis.
Þótt greiningin hafi verið áfall
segist Héðinn Máni snemma hafa
ákveðið að taka tíðindunum af yfir-
vegun með kímnigáfuna að vopni.
„Ég þurfti fyrst að melta þessar
fréttir, en ég er hins vegar þannig
maður að ég kýs að njóta lífsins án
þess að vera hræddur og yfirstíg
þetta með húmornum,“ segir hann.
Héðinn Máni segist hafa verið eins
og hver annar „snappari“ áður en
veikindin komu upp og var hann þá
nær eingöngu með vini og fjölskyldu
á Snapchat. Í dag eru fylgjendur
hans þar hins vegar nokkur þúsund
talsins og fer þeim fjölgandi með
degi hverjum.
Boltinn fór hratt að rúlla
„Þetta byrjaði þannig að mér
fannst fínt fyrir fólk að vita hvernig
mér liði og svaraði líka spurningum
þess á móti. En svo byrjaði þetta að
rúlla mjög hratt og það hrúguðust
inn vinabeiðnir, m.a. frá frægum
snöppurum,“ segir Héðinn Máni og
bætir við að í fyrradag hafi á bilinu
tvö til þrjú þúsund manns horft á
myndbrotin hans á Snapchat.
Fjölmargir af fylgjendum Héðins
Mána hafa sent honum skilaboð og
myndbrot til baka þar sem þeir ann-
aðhvort sýna honum samstöðu eða
forvitnast um krabbameinsmeðferð-
ina. „Margir senda mér alveg ótrú-
legar kveðjur – fólk sem ég þekki
ekki neitt. Það kom mér mjög á
óvart að fólk úti í bæ skyldi senda
mér batakveðjur og skilaboð þar
sem það segir m.a. að ég sé orðinn
uppáhaldssnappari þess,“ segir Héð-
inn Máni og hlær við.
Þeir sem fylgjast með Héðni
Mána á Snapchat eru fljótir að sjá
húmorinn í svörum hans, en að-
spurður segist hann taka nýjum vin-
um þar fagnandi. „Það getur tekið
smátíma að svara spurningunum en
ég reyni að vera fljótur.“
Með meðferðina á snappinu
Héðinn Máni greindist nýverið með illkynja æxli í höfði og deilir reynslu sinni
á Snapchat Er með nokkur þúsund fylgjendur sem sýna mikinn samhug
Morgunblaðið/RAX
Snappari „Ég kýs að njóta lífsins án þess að vera hræddur og yfirstíg þetta með húmornum,“ segir Héðinn Máni.