Morgunblaðið - 22.04.2017, Qupperneq 1
Kynntist ástinniá æskuslóðu
Kennslanstórkostleg
L
R
Áfangastaðir áhraðri uppleið
Þráinn Árni Bald-vinsson í Skálmöldveit fátt meirgefan
fá að
börn
tónli
Heitir reitir sem eru enn ekkiorðnir túristagildrur 28SUNNUDAGU
adi en að
um í
st 2
23.APRÍL 2017
ErfiðustuíþróttirnarKlettaklifur, skíðaganga, sjósund, fjallahlaupog fjallahjólreiðar krefjast úthalds og styrks.En hvaða grein er erfiðust? 24
L A U G A R D A G U R 2 2. A P R Í L 2 0 1 7
Stofnað 1913 94. tölublað 105. árgangur
Er kominn
tími á ný
dekk?
Pantaðu
tíma fyrir
dekkjaskiptin
á N1.is
KVENNA-
LANDSLIÐIÐ Í
STERKUM RIÐLI
BLEKSVART
SPAUG VERÐUR
VART SVARTARA
UPPISTAND 49HANDBOLTI ÍÞRÓTTIR
Uppbygging í uppnámi
Stofnandi Íslandshótela segir skattahækkanir setja milljarða kr. fjárfestingu á ís
Uppbygging hótela í miðborg Reykjavíkur og úti á landi muni fara í biðstöðu
Ólafur Torfason, stofnandi Íslands-
hótela, segir fyrirhugaða hækkun
virðisaukaskatts á ferðaþjónustu í
24% ógna rekstri margra hótela.
„Áform okkar eru í uppnámi vegna
boðaðra breytinga á virðisaukaskatti.
Það er mikil óvissa í greininni, sér-
staklega úti á landi. Fyrirtækin hafa
þurft að takast á við hækkuð laun og
styrkingu krónunnar og eiga nú yfir
höfði sér yfir 10 prósentustiga hækk-
un virðisaukaskatts. Það er viðbúið að
þetta muni hafa áhrif til samdráttar á
afkomu hótela. Reksturinn getur ekki
tekið á sig slíka hækkun,“ segir Ólaf-
ur en Íslandshótel reka 17 hótel.
Ingólfur Bender, forstöðumaður
Greiningar Íslandsbanka, telur fyrir-
hugaðar breytingar munu draga úr
vexti ferðaþjónustunnar.
Baldur Arnarson
Guðmundur Magnússon
Stjórnendur Íslandshótela munu
endurskoða áform um uppbyggingu
hótela í Reykjavík og á landsbyggð-
inni ef virðisaukaskattur hækkar.
Kostnaður við umrædd verkefni
hleypur á milljörðum króna. Meðal
þeirra eru áform um stækkun Grand
hótels og nýtt hótel á lóð Sjallans.
Áform í Stykkishólmi
» Meðal verkefna sem Íslands-
hótel munu setja á ís er stækk-
un Fosshótels Stykkishólms.
» Þar hyggst félagið fjölga
herbergjum úr 79 í 200, sem
yrði á stærð við Hótel Sögu.
MSetur fjárfestingu á ís »4
Fyrsti háleggurinn (Himantopus himantopus) sem
sést hefur hér á landi svo vitað sé fannst í Garð-
inum að kvöldi sumardagsins fyrsta. Guðmundur
Falk, fuglaáhugamaður og ljósmyndari, sá fugl-
inn. Þetta er 399. fuglategundin sem sést á Íslandi
og sú fyrsta nýja á þessu ári, að sögn Jóhanns Óla
Hilmarssonar fuglafræðings. Fuglaáhugamenn
víða að af landinu hröðuðu sér í Garðinn í gær til
að sjá þennan framandi gest.
Háleggur er suðlæg tegund og eru varpstöðvar
hans við Miðjarðarhafið, Svartahafið og aðeins
norður eftir Frakklandi, að sögn Jóhanns Óla.
„Varpstöðvarnar teygja sig austur eftir Asíu, alla
leið til Ástralíu og suður um Afríku. Hann er far-
fugl í Evrópu og hefur fuglinn í Garði væntanlega
verið á farflugi og lent í einhverjum af þeim lægð-
um sem dunið hafa á okkur undanfarið og hrakist
hingað á þann hátt.“ gudni@mbl.is
Ljósmynd/Guðmundur Falk
Háleggur heilsar upp á Ísland í fyrsta sinn
Útflutningsverðmæti afurða upp-
sjávartegunda gæti numið um 70
milljörðum króna á þessu ári. Alls
nema aflaheimildir uppsjávarskipa í
ár um 740 þúsund tonnum í fimm
tegundum.
Gunnþór Ingvason, framkvæmda-
stjóri Síldarvinnslunnar í Neskaup-
stað, segist sannfærður um að þessi
afli náist. „Fyrirtækin í þessari
grein eru öflug og það hafa verið
miklar fjárfestingar í greininni í
stærri skipum og nútímalegri
vinnslu síðastliðin ár. Með öflugt
fólk, öflugan búnað og með góðu
skipulagi næst þessi afli þó svo að
einhverjum kunni að finnast þetta
mikið,“ segir Gunnþór.
Heimildir í norsk-íslenskri síld og
kolmunna hafa verið auknar veru-
lega frá síðasta ári, einnig er aukn-
ing í makrílkvótum og mikið var
fryst af hrognum á snarpri loðnu-
vertíð. Ráðgjöf um íslenska sumar-
gotssíld er væntanleg í júní.
Kolmunnavertíðin hefur verið að
komast á skrið síðustu daga og vel
veiðst syðst í færeysku lögsögunni.
Kolmunninn fer í bræðslu og segir
Gunnþór að verð fyrir mjöl hafi
lækkað talsvert frá síðasta ári þegar
það var mjög hátt. aij@mbl.is »16-17
Verðmæti
afurða um
70 milljarðar
Mikil aukning í ár
í kolmunna og síld
Ljósmynd/Ólafur Óskar Stefánsson
Á kolmunna Um borð í Ísleifi VE á
Færeyjamiðum í síðustu veiðiferð.
„Smalarnir sem sáu hann í
kíki hjá sér þegar þeir voru
að leita, vissu ekki hvaða fyr-
irbæri þetta væri og héldu
fyrst að hann væri geithafur,
með þetta háa horn. En þeir
sáu svo þegar þeir komust
nær að hann var sauðkind
með svona sérstæð samvaxin
horn. Bæði hornin vaxa þétt
saman líkt og um eitt voldugt
horn sé að ræða, sem klofnar
í tvennt í endann,“ segir Erla
Þórey Ólafsdóttir, bóndi í
Hraunkoti í Landbroti, um
eftirlegukindina Einhyrning,
sem kom til byggða um jól og
skartaði óvenjulegu höfuð-
skrauti. »12
Ljósmynd/Erla Þórey
Einhyrningur Hann hefur skrapast í framan eftir barning hinna hrútanna.
Einhyrningur vekur furðu
Lýðskrumarar
dafna vel á tímum
falsfrétta og bæði
hægrið og
vinstrið hafa hag-
rætt sannleik-
anum eða hunsa
hann með öllu.
Þetta segir
Matthew Bishop,
einn af yfir-
ritstjórum The
Economist, í viðtali í Morgunblaðinu
þar sem hann ræðir m.a. um miðlun
frétta á tímum Facebook, kosti og
galla Donalds Trumps, útspil The-
resu May og hvernig hægt sé að
standa vörð um sannleikann þegar
fjöldi músarsmella ræður hvaða fjöl-
miðlar lifa af. » 20-21
Sannleikurinn á
í vök að verjast
Matthew Bishop