Morgunblaðið - 22.04.2017, Side 34
34 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. APRÍL 2017
Magnús Sigurðs-
son, læknir, móður-
bróðir minn, lézt 10
apríl sl. í Reykja-
vík. Magnús var af-
ar fjölhæfur og eilíflega leitandi
að nýjum fróðleik og vildi miðla
honum til sem flestra. Hann
starfaði mjög víða á spítölum og
öðrum sjúkrastofnunum bæði í
Þýzkalandi og á Íslandi og má
þar nefna Elliheimilið Grund,
Heilsustofnun NLFÍ í Hvera-
gerði, Kumbaravog, Eyrabakka,
Laugarás á Suðurlandi og í
Reykjavík. Magnús sótti og fjöl-
mörg námskeið hérlendis og er-
lendis til þess að hafa sem mesta
yfirsýn yfir mannlífið og þá um
leið starf sitt sem læknir. Hann
sat m.a í stjórn Íþróttafélags
Háskóla Íslands frá 1949 til 1956
og síðar á lífsleiðinni stundaði
hann aðra íþrótt, sem fangaði
huga hans allan. Hestamennsk-
una. Hann átti á tímabili tugi
hesta og var sérstaklega hrifinn
af leirljósum hestum og heyrði
ég stundum hestamenn í gamni
nefna hann „Magga leirljósa“.
Magnús hafði mikinn áhuga á
fyrirbyggjandi starfi og sat á ár-
unum 1991 til 1995 í slysavarna-
ráði Heilbrigðisráðuneytisins og
ritaði nokkuð um slysavarnir og
viðlíka efni á þeim árum í dag-
blöð og víðar. Árin 1985 til 1995
var hann ræðismaður Þýzka-
lands á Suðurlandi með aðsetur
á Selfossi og var hann sæmdur
þýzkum heiðursmerkjum.
Magnús var og einn af stofnend-
um frímúrarareglunnar á Sel-
fossi.
Magnús lézt á háum aldri en
sannar það með atorku sinni að
allt er hægt þrátt fyrir háan ald-
ur. Hann vann þrekvirki við að
útbúa orðabók með hugtökum úr
Magnús
Sigurðsson
✝ Magnús Sig-urðsson fædd-
ist 28. september
1925. Hann lést 10.
apríl 2017. Útför
Magnúsar fór fram
21. apríl 2017.
hestamennskunni
og öllu því sem
tengdist hestum og
hestamennsku. Af-
henti hann bókina
háskólanum á Hól-
um en hún er nú að-
gengileg á netinu
fyrir þá sem vilja
kynna sér þetta
merka rit. Hann
var í raun síungur
og fullur krafti sem
meðal annars lýsti sér í því að á
níræðisaldri réðist hann í að
byggja sér fallega íbúð í fjölbýli
eldri borgara í Fossvoginum en
naut verunnar þar ekki mjög
lengi sökum veikinda.
Þegar við fjölskyldan bjugg-
um í Svíþjóð í æsku minni þá
kom Magnús, sem þá var í námi í
Þýzkalandi, nokkrum sinnum í
heimsókn en þá bjó hann í bæn-
um Wuppertal og man ég eftir
að hann sýndi mér myndir af lest
sem gengur víst enn í gegnum
borgina og hangir í teinum uppi í
lofti yfir árfarveginum. Fannst
mér það afar merkilegt og var
með þessar myndir í mörg ár á
skrifborði mínu.
Magnús var einn fjögurra
systkina og eru tvö enn á lífi,
móðir mín, Ólöf Helga, og móð-
urbróðir minn, Hólmsteinn, en
Baldur er látinn. Ég þakka fyrir
þær stundir sem við áttum sam-
an og margt sem hann skildi eft-
ir hjá mér í formi ættarupplýs-
inga og ýmissa skjala munu um
langan aldur verða mér við-
fangsefni að vinna úr. Þessu
verður öllu komið á rétta staði í
Þjóðskjalasafni og víðar þannig
að komandi kynslóðir geta skoð-
að þann fróðleik. Magnús átti
rætur að rekja bæði í Dýrafjörð-
inn og til Flateyjar á Breiðafirði
og sem betur fer geymdi hann
margt sem tengdist þeim heima-
högum sínum og mun verða birt
með tíð og tíma. Hlýjar samúð-
aróskir sendi ég til allra fjöl-
skyldumeðlima hans.
Friðrik Ásmundsson
Brekkan.
Kær vinkona
okkar, Hjördís Þór-
unn Hjörleifsdóttir,
lést hinn 28. janúar
sl.
Eiginmaður Hjördísar, Guð-
mundur Skúlason, var vinur og
frændi okkar. Hann lést ungur
maður vegna skyndilegra veik-
inda svo sambúð þeirra Hjördís-
ar var styttri en vænta mátti.
Hann var öllum harmdauði. Þau
Hjördís eignuðust einn son,
Skúla, sem er giftur Sigríði Jó-
hannesdóttur, dóttir þeirra er
Hjördís Þórunn
Hjörleifsdóttir
✝ Hjördís ÞórunnHjörleifsdóttir
fæddist 1. apríl
1932. Hún lést 28.
janúar 2017. Útför
Hjördísar fór fram
7. febrúar 2017.
María, sem Hjördís
dáði mjög.
Hjördís var mjög
góð heim að sækja.
Okkur var alltaf
tekið hlýlega, með
opnum örmum og
gleði í lund á hennar
fallega heimili. Ekki
vantaði veitingarn-
ar. Hún var mikil
blómakona og hafði
einnig mjög gaman
af handavinnu.
Fyrir mörgum árum ákváðum
við sex frænkurnar að hittast. Úr
varð saumaklúbbur og góður vin-
skapur. Við kölluðum okkur sex-
urnar og áttum oft góðar og
skemmtilegar stundir saman, t.d.
þegar við borðuðum saman, í af-
mælum og á ferðalögum.
Þá var mikið hlegið og grínast.
Ógleymanleg er ferð okkar til
Vestfjarða ásamt eiginmönnum
okkar sumarið 1997, sérstaklega
til Önundarfjarðar þar sem ætt-
arbönd liggja.
Við minnumst Hjördísar sem
fyrst af okkur kveður, með virð-
ingu og þökk. Hún var alltaf glöð,
yndisleg, lagleg með sitt ljósa
hár, ávallt smekklega klædd og
mjög kvik í fasi.
Að leiðarlokum þökkum við
fyrir að hafa átt Hjördísi að vini
og biðjum henni guðsblessunar.
Anna, Bjarney, Guðrún,
Kristín og Skúlína.
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann
Frímann & hálfdán
Útfararþjónusta
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Sími: 565 9775
www.uth.is
uth@uth.is
Cadillac 2017
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
JÓN VIGNIR KARLSSON,
fv. skólastjóri og framkvæmdastjóri,
lést á heimili sínu, Klifsholti við Kaldársel,
mánudaginn 17. apríl.
Hann verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju
í Hafnarfirði þriðjudaginn 25. apríl kl. 11.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Minningarsjóð
líknardeildar og Heimahlynningar Landspítalans.
Hjördís Edda Ingvarsdóttir
Vigdís Jónsdóttir Daníel Helgason
Ingvar Jónsson Sigrún Eiríksdóttir
Grímar Jónsson Guðríður Lára Þrastardóttir
Karl Gunnar Jónsson Karolina Cyll
barnabörn og barnabarnabörn
FALLEGIR LEGSTEINAR
AF ÖLLUM LEGSTEINUM
Verið velkomin
Auðbrekku 4, 200 Kópavogi, sími: 537-1029, www.bergsteinar.is
Afsláttur
Okkar ástkæri vinur,
SVEINBJÖRN ÓSKAR SIGURÐSSON,
Eyrarlandsvegi 31,
Akureyri,
sem lést á FSA Akureyri 4. apríl,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju
föstudaginn 28. apríl klukkan 13.30.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Hollvinasamtök
Sjúkrahúss Akureyrar.
Fyrir hönd vina og vandamanna,
Kristín Steindórsdóttir Ragnar Magnússon
Anna Höskuldsdóttir Egill S. Egilsson
Eiginkona mín og ástkær móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
BJÖRG ANDRÉSDÓTTIR
sjúkraliði, frá Hamri í Múlasveit,
síðast til heimilis Strikinu 12,
Garðabæ,
lést á hjúkrunarheimilinu Ísafold í Garðabæ,
miðvikudaginn 12. apríl.
Jarðarför hennar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn
24. apríl klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á að
láta Alzheimersamtökin njóta þess.
Sigurður Óli Valdimarsson
Hrafnhildur Stella Sigurðard. Sigurður H. Einarsson
Sigurður Óli Sigurðsson Ledis Bornachera Vasquez
Guðný Sigurðardóttir Kristinn Þ. Vagnsson
Ingibjörg Sigurðardóttir G. Herbert Bjarnason
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
BJÖRN BIRGIR BJÖRGVINSSON
matreiðslumaður,
Svöluási 34, Hafnarfirði,
lést á líknardeild Landspítalans 15. apríl.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 27. apríl
klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hans er bent á
Minningarsjóð líknardeildar eða Minningarsjóð Karitas.
Agnes Sigurðardóttir
Sigrún Sif Stefánsdóttir Ólafur Harðarson
Jón Björgvin Björnsson Tinna Bessadóttir
Arnar Freyr Björnsson Helga Sara Henrysdóttir
og barnabörn
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við
andlát og útför okkar ástkæra föður,
KJARTANS FRIÐRIKSSONAR,
Faxatúni 14,
Garðabæ.
Ingibjörg Kjartansdóttir Salómon Kristjánsson
Kristín Kjartansdóttir Sigurður Þór Sigurðsson
Anna Kjartansdóttir
Brynja Kjartansdóttir Albert B. Hjálmarsson
og fjölskyldur
Elsku mamma, tengdamamma, amma og
langamma,
HULDA JAKOBSDÓTTIR
Litlagerði,
Mosfellsbæ,
lést á hjúkrunarheimilinu Hömrum
sunnudaginn 16. apríl.
Jarðarförin fer fram í Lágafellskirkju fimmtudaginn 27. apríl
klukkan 15.
Marteinn J. Stefánsson Ásgerður Helgadóttir
Stefán V. Stefánsson
Linda Björk Stefánsdóttir Þórir Sigurbjörnsson
Arnar Stefánsson Guðný Eiríksdóttir
Hulda Bergrós Stefánsdóttir Hannes Kristjánsson
Hjalti Þór Stefánsson
barnabörn og langömmubörn
Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir og
afi,
MAGNÚS ODDSSON,
tæknifræðingur og leiðsögumaður,
Bjarkargrund 35,
Akranesi,
lést á Landspítalanum þriðjudaginn
11. apríl síðastliðinn. Útförin fer fram frá Akraneskirkju
þriðjudaginn 25. apríl klukkan 13.
Svandís Pétursdóttir
Pétur Magnússon Ingibjörg E. Ingimarsdóttir
Ágúst Logi, Magnús Árni og Svandís Erla