Morgunblaðið - 22.04.2017, Síða 17

Morgunblaðið - 22.04.2017, Síða 17
FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. APRÍL 2017 60PLÚS Skráning og nánari upplýsingar á spa@hiltonreykjavikspa.is og í síma 444 5090. Þjálfarar: Patrick Chiarolanzio, Agnes Þóra Árnadóttir og Guðbjartur Ólafsson Styrkur, þol, jafnvægi og samhæfing 4viknanámskeið fyrir 60 ára ogeldri hefstmánudaginn 24. apríl. Skemmtilegir tímar sniðnir fyrir fullorðið fólk. Áhersla á persónulega aðstoð, styrk, þol, jafnvægi og samhæfingu til þess að auka lífsgæði. Verð: 26.900 kr. Innifalið:Aðgangur að Spa, handklæði við komu, herðanudd í heitum pottum. Tímar kl. 13.00 alla dagana Mánudaga,miðvikudaga og föstudaga: Hóptími Þriðjudaga og fimmtudaga: Prógrammhjá þjálfara í sal - frjálsmæting Miðvikudaginn 3.maí verður fyrirlestur umnæringu fyrir fólk 60 ára og eldri. bilinu 1997-2003, úr rúmum 10 þús- und tonnum í rúm 500 þús. tonn, en minnkaði ört til ársins 2011 er aflinn var einungis 6 þúsund tonn. Heimilt að flytja milli flokka Af makrílkvótanum í ár koma tæplega 110 þúsund tonn í hlut skipa sem veiddu makríl í flottroll og nót á árunum 2007, 2008 og 2009, en heild- arkvóti ársins er rúmlega 168 þús- und tonn. Tæplega 60 þúsund tonn koma m.a. í hlut frystitogara, ísfisk- togara og krókabáta. Heimilt er að flytja heimildir á milli skipaflokka, að smábátunum undanskildum. Makríll var lengi vel skilgreindur sem flækingur á Íslandsmiðum, en síðasta áratug hefur hann verið einn helsti nytjafiskurinn í lögsögunni. Í rannsóknum í fyrra mældist hæsta gildi makríls á Íslandsmiðum frá því að sérstakar rannsóknir hófust árið 2009. Landssamband smábátaeigenda hefur harðlega mótmælt reglugerð sjávarútvegsráðherra um makríl- veiðar í ár og hversu lítið komi í hlut þeirra sem veiða makríl á línu. Í engu sé tekið tillit til sjónarmiða LS um aukið vægi smábáta í veiðunum. Skorað er á ráðherra „að verða við sanngjarnri kröfu um 16% hlutdeild smábáta í makríl“. Rúmlega tvöföldun í norsk-íslenskri síld Í ráðgjöf ICES fyrir 2017 er mið- að við að heildarafli á norsk-íslenskri síld fari ekki yfir 646 þúsund tonn. Það er rúmlega tvöföldun frá ráð- lögðu aflamarki ársins 2016 upp á 317 þúsund tonn. Samkvæmt reglugerð sem sjávar- útvegsráðherra gaf út í lok síðasta árs er leyfilegur heildarafli íslenskra skipa á norsk-íslenskri síld tæplega 103 þúsund tonn í ár, en var 46 þús- und tonn í fyrra. Talan um heildar- afla miðast við hlut Íslands í samn- ingi frá 2007 og ráðgjöf ICES og 10% aukningu í samræmi við ákvörðun Norðmanna um auknar heimildir. Þeir voru með lang- stærstan hlut í veiði úr stofninum samkvæmt eldri samningi eða 61%, en ákváðu í lok síðasta árs að miða við 67%. Aflaheimildir í deilistofnum mið- ast við almanaksárið, en fiskveiði- árið í loðnu og íslenskri sumargots- síld. Á yfirstandandi fiskveiðiári er heimilt að veiða 63 þúsund tonn af sumargotssíld, en ráðgjöf næsta fiskveiðiárs kemur væntanlega í júní og loðnuráðgjöf í haust. Vertíðin komin á fullt Frá því í síðustu viku hefur verið góð kolmunnaveiði syðst í færeysku lögsögunni og kolmunninn gengið af krafti norður með Skotlandi og inn í færeyska lögsögu. Mest mega tólf ís- lensk skip vera að veiðum þar sam- tímis. Í vikunni hafa mörg skip land- að stórum förmum og til að mynda kom Beitir með 3.050 tonn af kæld- um kolmunna til Seyðisfjarðar. Haft er eftir Róbert Axelssyni, skipstjóra á Venusi NK, á heimasíðu HB Granda, að í vetur hafi aflabrögð verið góð innan lögsögu ESB og ESB-skipin séu búin með kvóta sína og Norðmenn séu í svipaðri stöðu eftir að hafa veitt meira en 200 þús- und tonn. Í vikunni kom pólska uppsjávar- veiðiskipið Janus til Neskaupstaðar með 1.350 tonn af kolmunna. Janus var áður í eigu Síldarvinnslunnar og bar þá lengst af nafnið Börkur og síðan Birtingur. Síldarvinnslan festi kaup á skipinu árið 1973 og gerði það út til ársins 2016 eða þangað til það var selt núverandi eiganda. Afli skipsins á þeim 43 árum sem það var í eigu Síldarvinnslunnar nam 1.546.235 tonnum og eru líkur á að ekkert íslenskt fiskiskip hafi borið jafn mikinn afla að landi. „Mörgum Norðfirðingum þótti vænt um að heyra á ný Caterpillar- hljóðið í skipinu þegar það sigldi inn Norðfjörð … Tilfinningin var eins og að hitta gamlan vin á ný eftir nokk- urn aðskilnað,“ segir á heimasíðu Síldarvinnslunnar. Skipstjóri á Ja- nusi er Atli Rúnar Eysteinsson frá Norðfirði og þrír aðrir Íslendingar eru í áhöfn. Ljósmynd/VSV/Ólafur Óskar Stefánsson Góður afli Pokinn kominn á síðu Ísleifs VE á kolmunnamiðum suður af Færeyjum, en vel hefur veiðst þar síðustu daga. Kolmunni er af þorskfiskaætt og getur orðið allt að 50 sentimetrar á lengd en er oftast 30-40 sm. Hann heldur sig mest í úthafinu á 2-400 metra dýpi, en ungfiskarnir eru gjarnir á að halda sig nær botni. Aðal-hrygningarsvæði kolmunna í Norðaustur-Atlantshafi eru við landgrunnsbrúnirnar norðvestan og vest- an við Bretlandseyjar. Eftir hrygningu fer hrygningarstofninn sem hrygn- ir við Bretlandseyjar í ætisgöngur norður í haf. Kolmunninn gengur síðan sömu leið til baka þegar haustar. Fæða yngri kolmunna er svifdýr og fiskseiði en eldri fiskar éta ýmsar tegundir smáfiska. Ætisgöngur norður á bóginn KOLMUNNI ER AF ÆTT ÞORSKFISKA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.