Morgunblaðið - 22.04.2017, Qupperneq 27
27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. APRÍL 2017
Skemmtun Lea Dalstein Ingimarsdóttir og Alexia Dominika Sobczak frá Dalvík keppa á 42. Andrésar Andar leikunum á skíðum og brettum, sem nú standa yfir í Hlíðarfjalli við Akureyri.
Skapti Hallgrímsson
Nú er komið vel inn í
seinni hluta kjör-
tímabils meirihluta
Samfylkingar, Pírata,
Bjartrar framtíðar og
Vinstri grænna í borg-
inni. Flestum er orðið
ljóst að lítið hefur
áunnist.
Menntun á að vera
algjört forgangsmál
Gott samfélag býr að
góðu menntakerfi. Matið er einfalt.
Gott menntakerfi er samanburð-
arhæft við menntakerfi annarra
ríkja. Árangur íslenskra nemenda í
lesskilningi og læsi á stærðfræði og
náttúrufræði hefur hins vegar
versnað síðastliðinn áratug og er
verri en í samanburðarlöndum okk-
ar. Um þetta er enginn ágreiningur.
Því hefði mátt halda að helsta
áhersla meirihluta borgarinnar yrði
að líta á málið sem algjört forgangs-
mál og leggja allt á vogarskálarnar
til að gera betur. Því miður blasir
annað við.
Að skerða fjármagn
til skólanna hefur verið
helst á dagskrá meiri-
hlutans. Skólastjórn-
endur hafa þurft að
standa í karpi og mikilli
baráttu við að fá skiln-
ing um að ekki sé hægt
að ná meiri árangri
með slíkum hætti.
Hvergi hefur orðið vart
við að skólafólk fái
hvatningu til að vinna
að breytingum til að
mæta slökum árangri.
Meirihlutinn hefur
einnig staðið í vegi fyrir að upplýs-
ingum um árangur verði miðlað á
þann hátt til skólanna svo að þeir
geti nota þær til að efla eigið starf.
Ljóst er að hér verður að gera
betur. Vinna verður að því að fá
fram breytingar í kennsluháttum og
breytingum á aðbúnaði. Mennta-
stofnanir verða fyrst og fremst að
geta sinnt kennsluhlutverki sínu.
Nauðsynlegt er að skýra línurnar og
verja menntaþáttinn.
Velferðinni er ábótavant
Biðlistar eftir þjónustu eru ein-
kenni Reykjavíkurborgar. Fötluðu
fólki sem þörf hefur fyrir þjónustu
vegna athafna daglegs lífs er vísað á
biðlista. Árið 2017 getur slíkt ekki
gengið upp, það vitum við öll. Það á
að vera skylda þeirra sem stjórna
borginni að forgangsraða betur í
þágu þeirra sem minna mega sín.
Grunnþörfum eins og þessum ætti
ekki að vera hægt að vísa á biðlista.
Sérstaklega ekki ef ástæðan er sú að
borgarkerfið getur ekki mannað í
þjónustustörfin. Við blasir að skort-
ur er á nauðsynlegri uppstokkun til
að mæta þörfum og eðlilegum kröf-
um fatlaðra og aldraðra. Aldraðir og
fatlaðir eiga að geta valið þjónustu á
eigin forsendum í stað þess að vera
þiggjendur fyrirfram ákveðinnar
þjónustu. Viðurkenna þarf ákveðnar
þjónustuþarfir og forgangsraða svo í
fjármálum borgarinnar svo að þeim
megi mæta. Það er ekki nóg að bjóða
upp á heimsendan mat en sleppa
þjónustunni ef vitað er að viðkom-
andi þarf aðstoð við að matast.
Fyrir liggur að þjónustan verður
að taka stakkaskiptum á næstu ár-
um. Væri minnsti vilji fyrir hendi
væri borgarkerfið á góðri leið með
að innleiða slíkar breytingar þessa
dagana. Meirihlutinn í Reykjavík
stendur í vegi fyrir framþróun. Ekki
tekst að fjármagna sjálfsögð verk-
efni og áhersla á að breyta stöðn-
uðum aðferðum til að koma betur til
móts við þá sem þurfa á þjónustu að
halda er ekki til staðar.
Grunnþjónusta og gjöld
Í stað þess að forgangsraða er
leitað enn dýpra í vasa borgarbúa.
Útsvarið í Reykjavík er í botni, það
hæsta samkvæmt lögum. Tekjur
borgarbúa hækka og tekjur borg-
arsjóðs hækka í hlutfalli af því. Fast-
eignagjöld hafa hækkað gríðarlega,
sérstaklega á borgarbúa. Orkugjöld-
in hafa margfaldast á undanförnum
árum og meirihluti borgarstjórnar
þakkar Planinu, finnst í góðu lagi að
taka út arðinn en hvergi er minnst á
borgarbúa sem tóku á sig gríð-
arlegar hækkanir. Nei, þeir skulu
áfram borga sín gjöld. Sorphirðan
hækkar gjöld en dregur úr hirðu-
tíðni. Engin ástæða er talin til að
bjóða þjónustuna út til að draga úr
útgjöldum eins og önnur sveit-
arfélög á höfuðborgarsvæðinu gera.
Samgöngukerfið er í ólestri, ásýnd
borgarinnar er farin að líkjast van-
þróuðu samfélagi. Húsnæðisvandinn
gríðarlegur, viðvarandi og ýtir undir
fátækt og á honum axlar meirihlut-
inn enga ábyrgð.
Borgarstjóri er lævís í kynning-
armálum. Hann svarar ekki gagn-
rýni heldur býr til nýjar áætlanir og
kynnir þær með miklum látum þeg-
ar fyrri áætlanir hafa ekki staðist.
En hingað og ekki lengra. Borg-
arbúar hafa áttað sig þessum
þreytta og síendurtekna talnaleik.
Nú þarf að hvíla flugeldasýning-
arnar og hætta að hafa borgarbúa að
fíflum.
Eftir Áslaugu Maríu
Friðriksdóttur » Borgarstjóri er lævís
í kynningarmálum.
Hann svarar ekki gagn-
rýni heldur býr til nýjar
áætlanir og kynnir þær
með miklum látum þeg-
ar fyrri áætlanir hafa
ekki staðist.
Áslaug María
Friðriksdóttir
Höfundur er borgarfulltrúi Sjálfstæð-
isflokksins í Reykjavík.
Þreyttar áætlanir og lævís leikur