Morgunblaðið - 22.04.2017, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 22.04.2017, Qupperneq 27
27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. APRÍL 2017 Skemmtun Lea Dalstein Ingimarsdóttir og Alexia Dominika Sobczak frá Dalvík keppa á 42. Andrésar Andar leikunum á skíðum og brettum, sem nú standa yfir í Hlíðarfjalli við Akureyri. Skapti Hallgrímsson Nú er komið vel inn í seinni hluta kjör- tímabils meirihluta Samfylkingar, Pírata, Bjartrar framtíðar og Vinstri grænna í borg- inni. Flestum er orðið ljóst að lítið hefur áunnist. Menntun á að vera algjört forgangsmál Gott samfélag býr að góðu menntakerfi. Matið er einfalt. Gott menntakerfi er samanburð- arhæft við menntakerfi annarra ríkja. Árangur íslenskra nemenda í lesskilningi og læsi á stærðfræði og náttúrufræði hefur hins vegar versnað síðastliðinn áratug og er verri en í samanburðarlöndum okk- ar. Um þetta er enginn ágreiningur. Því hefði mátt halda að helsta áhersla meirihluta borgarinnar yrði að líta á málið sem algjört forgangs- mál og leggja allt á vogarskálarnar til að gera betur. Því miður blasir annað við. Að skerða fjármagn til skólanna hefur verið helst á dagskrá meiri- hlutans. Skólastjórn- endur hafa þurft að standa í karpi og mikilli baráttu við að fá skiln- ing um að ekki sé hægt að ná meiri árangri með slíkum hætti. Hvergi hefur orðið vart við að skólafólk fái hvatningu til að vinna að breytingum til að mæta slökum árangri. Meirihlutinn hefur einnig staðið í vegi fyrir að upplýs- ingum um árangur verði miðlað á þann hátt til skólanna svo að þeir geti nota þær til að efla eigið starf. Ljóst er að hér verður að gera betur. Vinna verður að því að fá fram breytingar í kennsluháttum og breytingum á aðbúnaði. Mennta- stofnanir verða fyrst og fremst að geta sinnt kennsluhlutverki sínu. Nauðsynlegt er að skýra línurnar og verja menntaþáttinn. Velferðinni er ábótavant Biðlistar eftir þjónustu eru ein- kenni Reykjavíkurborgar. Fötluðu fólki sem þörf hefur fyrir þjónustu vegna athafna daglegs lífs er vísað á biðlista. Árið 2017 getur slíkt ekki gengið upp, það vitum við öll. Það á að vera skylda þeirra sem stjórna borginni að forgangsraða betur í þágu þeirra sem minna mega sín. Grunnþörfum eins og þessum ætti ekki að vera hægt að vísa á biðlista. Sérstaklega ekki ef ástæðan er sú að borgarkerfið getur ekki mannað í þjónustustörfin. Við blasir að skort- ur er á nauðsynlegri uppstokkun til að mæta þörfum og eðlilegum kröf- um fatlaðra og aldraðra. Aldraðir og fatlaðir eiga að geta valið þjónustu á eigin forsendum í stað þess að vera þiggjendur fyrirfram ákveðinnar þjónustu. Viðurkenna þarf ákveðnar þjónustuþarfir og forgangsraða svo í fjármálum borgarinnar svo að þeim megi mæta. Það er ekki nóg að bjóða upp á heimsendan mat en sleppa þjónustunni ef vitað er að viðkom- andi þarf aðstoð við að matast. Fyrir liggur að þjónustan verður að taka stakkaskiptum á næstu ár- um. Væri minnsti vilji fyrir hendi væri borgarkerfið á góðri leið með að innleiða slíkar breytingar þessa dagana. Meirihlutinn í Reykjavík stendur í vegi fyrir framþróun. Ekki tekst að fjármagna sjálfsögð verk- efni og áhersla á að breyta stöðn- uðum aðferðum til að koma betur til móts við þá sem þurfa á þjónustu að halda er ekki til staðar. Grunnþjónusta og gjöld Í stað þess að forgangsraða er leitað enn dýpra í vasa borgarbúa. Útsvarið í Reykjavík er í botni, það hæsta samkvæmt lögum. Tekjur borgarbúa hækka og tekjur borg- arsjóðs hækka í hlutfalli af því. Fast- eignagjöld hafa hækkað gríðarlega, sérstaklega á borgarbúa. Orkugjöld- in hafa margfaldast á undanförnum árum og meirihluti borgarstjórnar þakkar Planinu, finnst í góðu lagi að taka út arðinn en hvergi er minnst á borgarbúa sem tóku á sig gríð- arlegar hækkanir. Nei, þeir skulu áfram borga sín gjöld. Sorphirðan hækkar gjöld en dregur úr hirðu- tíðni. Engin ástæða er talin til að bjóða þjónustuna út til að draga úr útgjöldum eins og önnur sveit- arfélög á höfuðborgarsvæðinu gera. Samgöngukerfið er í ólestri, ásýnd borgarinnar er farin að líkjast van- þróuðu samfélagi. Húsnæðisvandinn gríðarlegur, viðvarandi og ýtir undir fátækt og á honum axlar meirihlut- inn enga ábyrgð. Borgarstjóri er lævís í kynning- armálum. Hann svarar ekki gagn- rýni heldur býr til nýjar áætlanir og kynnir þær með miklum látum þeg- ar fyrri áætlanir hafa ekki staðist. En hingað og ekki lengra. Borg- arbúar hafa áttað sig þessum þreytta og síendurtekna talnaleik. Nú þarf að hvíla flugeldasýning- arnar og hætta að hafa borgarbúa að fíflum. Eftir Áslaugu Maríu Friðriksdóttur » Borgarstjóri er lævís í kynningarmálum. Hann svarar ekki gagn- rýni heldur býr til nýjar áætlanir og kynnir þær með miklum látum þeg- ar fyrri áætlanir hafa ekki staðist. Áslaug María Friðriksdóttir Höfundur er borgarfulltrúi Sjálfstæð- isflokksins í Reykjavík. Þreyttar áætlanir og lævís leikur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.