Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.2012, Blaðsíða 26
25QORLORTORSUAQ: FORNLEIFARANNSÓKNIR Í VATNAHVERFI
Útdráttur
Vorið 2006 fór fram uppgröftur á bæjarstæði frá miðöldum í Qorlortorsuaq-dalnum
í Vatnahverfi á Suður-Grænlandi. Árið áður hafði verið unnið að byggingu virkjunar
í nágrenninu sem átti að auka rafmagnsframleiðslu til Suður-Grænlands. Vatnið
Qorlortorsuup átti að mynda uppistöðulón virkjunarinnar og var óhjákvæmilegt að
sumar fornminjanna í dalnum hyrfu undir yfirborð lónsins. Minjar voru fyrst skráðar
í Qorlortorsuaq - dalnum af Daniel Bruun á 19. öld. Hann skráði margar rústir frá
tímum norrænna manna kringum vatnið, meðal annars rústirnar sem grafið var í
2006. Þær fengu skráningarauðkennið Ø74.
Meginmarkmið uppgraftarins árið 2006 var að safna eins miklum upplýsingum
um bæjarstæðið og hægt var áður en því yrði sökkt. Fyrirfram var vitað að einungis
fimm vikur væru til stefnu og einkum var horft til þess að skilja um hvers konar
byggð var að ræða, hversu lengi hún varði og sömuleiðis notkun á einstökum
herbergjum og byggingum. Grafinn var upp bær sem samanstóð af sex herbergjum
og lítilli viðbyggingu. Einnig var grafið í öskuhaug norðan við bæjarstæðið.
Elsta byggingarstigið er frá því snemma á 11. öld og var í notkun fram á þá
þrettándu. Á þessum tíma var reist stór, aflöng bygging en síðar var henni skipt upp
í þrjú rými. Enn síðar var þremur herbergjum bætt við aðalbygginguna. Tvö þeirra
voru nýtt sem geymslur, eitt var eldhús, sameiginlegt herbergi og að lokum lítil
vefstofa. Eitt herbergi fannst til viðbótar en tíminn var á þrotum áður en tókst að ljúka
við að grafa það upp. Bærinn var yfirgefinn síðla á 13. öld en staðurinn var þó enn í
notkun langt fram á 14. öld. Á síðasta byggingarskeiði var reist lítil, ferhyrnd bygging,
sem líklega var sel. Ekki sést mikil fjölbreytni í gripasafninu frá uppgraftarstaðnum
og sérstaka athygli vakti hversu fáir járngripir fundust. Flestir gripirnir voru úr
klébergi, að líkindum brot úr ílátum sem tengjast mjólkurframleiðslu. Einnig fundust
snældusnúðar og kljásteinar, vísbendingar um ullarvinnslu. Ekki fundust neinar
perlur eða aðrir gripir sem venjulega eru hafðir til marks um að bær kunni að hafa
verið höfuðból.
Summary
In the spring of 2006, rescue excavations were carried out on a medieval farmstead in
the valley of Qorlortorsuaq in Vatnahverfi in southern Greenland. The construction
of a hydroelectric power plant and dam had started in the previous year. The lake
Qorlortorsuaq was to become a reservoir and, once the construction was completed,
the lake would increase in size and volume, inevitably drowning some of the medieval
ruins in the valley. The first archaeological survey in the valley of Qorlortorsuaq was
done by the Danish archaeologist Daniel Bruun in the 19th century. He recorded
a number of Norse ruins around the lake, including the ruins that were excavated