Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2017, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2017, Page 6
6 Helgarblað 8. desember 2017fréttir É g sá í augum hans það sem allir foreldrar vilja sjá: Ég sá glampa þegar hann horfði á dóttur mína. Það var ást. Það er akkúrat það sem maður vill sjá,“ seg- ir Aðalsteinn Elíasson um tengda- son sinn, Arnar Jónsson Aspar, sem lést í kjölfar hrottalegrar líkams- árásar á Æsustöðum miðvikudags- kvöldið 7. júní síðastliðinn. „Arnar var góður faðir. Hann var umhyggjusamur og hlýr. Hann var minn,“ segir Heiðdís Helga Aðal steinsdóttir, unnusta Arnars. Þau eignuðust litla stúlku sem var 11 daga gömul þegar Arnar dó. Hún fékk nafnið Arna Mist. Daginn örlagaríka fór fjölskyldan í myndatöku til að geta síðar rifjað upp fallegar minningar um fyrstu vikur dótturinnar. Aðeins tveimur tímum eftir myndatökuna hafði Heiðdís misst manninn sinn með voveiflegum hætti. Og Arna Mist átti ekki lengur föður. Í viðtali við DV segist Aðal- steinn vera ósáttur við margt í meðferð málsins, þá einna helst þá staðreynd að saksóknari í máli ákæruvaldsins gegn Sveini Gesti Tryggvasyni, sem einn var ákærð- ur í tengslum við árásina, fer fram á fjögurra til fimm ára fangelsi yfir honum. Þá finnst honum skrýtið að Jón Trausti Lúthersson hafi ekki verið ákærður. Þó að hans fram- ganga hafi verið mun minni en þáttur Sveins Gests hafi Jón Trausti ekkert gert til að stöðva ofbeldið sem Arnar varð fyrir. Þar voru einnig Ásta Hrönn og Rúnar Örn. „Ég er ekki að óska eftir því að menn sitji sem lengst í fangelsi, en fyrir svona alvarlega glæpi þá verða menn bara að taka afleiðingunum. Ég hata ekkert Svein Gest, þarna missti hann bara stjórn á sér og þetta var ekki í fyrsta skipti sem slíkt gerist,“ segir Aðalsteinn í viðtali við DV og vísar til dóma sem Sveinn hefur fengið vegna líkamsárása. Árið 2014 var hann dæmdur í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á tvo menn, annars vegar sumarið 2012 og hins vegar sumarið 2013. Með árásinni á Arnar rauf hann skilorð vegna þeirra mála. Óljós aðdragandi Mörgum brá þegar fluttar voru fréttir af því, að kvöldi 7. júní síð- astliðinn, að karlmaður um fertugt hefði verið úrskurðaður látinn á Landspítalanum í Fossvogi eftir að hafa orðið fyrir líkamsárás í Mos- fellsdal. Maðurinn hét Arnar Jóns- son Aspar. Voru margir undrandi á því að þessi glaðværi, hjálpsami og ósérhlífni maður skyldi hljóta svo hörmuleg örlög. Arnar lét eftir sig unnustu, Heiðdísi Helgu Aðalsteinsdóttur, og tvær dætur, fimmtán ára og ellefu daga. Aðalmeðferð í málinu gegn Sveini Gesti fór fram á dögunum og sat Aðalsteinn réttarhöldin. Síðdeg- is þennan örlagaríka dag í sumar kom hópur fólks að heimili Arnars og Heiðdísar á Æsustöðum í Mos- fellsdal. Frá því hefur verið greint að mennirnir, Sveinn Gestur og Jón Trausti Lúthersson auk bræðranna Marcin og Rafal Nabakowski, hafi komið að heimili Arnars til að vitja garðverkfæra sem Arnar geymdi fyrir Svein í fyrravetur. Til stymp- inga kom á milli mannanna sem enduðu með dauða Arnars. Að- spurður segist Aðalsteinn ekki get- að svarað því með vissu hvað varð til þess að ráðist var á Arnar með fyrrgreindum afleiðingum. „Ég get mér til að þarna hafi sex manns komið inn á hans lóð, fyrir framan hans heimili þar sem inn- andyra er lítið barn og afi í mat. Hann hafi viljað vísa þeim í burtu,“ segir Aðalsteinn. Hann tekur fram að dóttir hans viti heldur ekki hvað varð til þess að hlutirnir fóru úr böndunum. „Hún skilur þetta ekki,“ segir hann en fyrir dómi var þó reynt að varpa ljósi á atburðarásina. Ósannindi Aðalsteinn er ósáttur við Svein Gest og verjanda hans. Hann vill meina að þeir hafi ítrekað farið með ósannindi fyrir dómi. „Sveinn Gestur sagði sjálfur að þeir hafi þrír farið upp tröppurnar að heimili Arnars, hann og Nabakowski-bræður. Hann hafi bankað á dyrnar og horft inn um Tveimur Tímum efTir að myndin var Tekin var arnar láTinn n Aðalsteinn, tengdafaðir Arnars, ósáttur við ákæruvaldið n Segist ekki hata Svein Gest n Unnusta Arnars sækir styrk í unga dóttur þeirra Einar Þór Sigurðsson einar@dv.is Síðasta myndin Arnar, Heiðdís og dóttir þeirra fóru í myndatöku síðdegis þennan örlagaríka dag. Rúmum tveimur tímum síðar var Arnar látinn. „Þetta eru dýrmætar minningar,“ segir Aðalsteinn um myndirnar. Mynd Úr EinkaSafni

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.