Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2017, Qupperneq 50
Da
gur
í l
ífi
Vikublað 8. desember 2017 2
Fyrir mörgum árum kynntist ég skemmtilegum fréttaljósmyndara þar sem ég var á einhverju flandri í
Parísarborg. Þetta var lítill og snaggaralegur
náungi sem var nýkominn heim úr stríðinu
milli Serbíu og Króatíu. Hafði unnið þar
fyrir Reuters.
Við eyddum hálfum degi á bekk uppi
á Monmartre. Deildum rauðvínsflösku og
smjöttuðum á ólífum meðan hann sagði
mér krassandi sögur úr stríðinu. Þetta var á
þjóðhátíðardegi Frakka þann 14. júlí. sirka
1993. Af mikilli innlifun lýsti ljósmyndar-
inn því fyrir mér hvernig þeir vinirnir úr
bransanum voru blindfullir nánast allan
tímann meðan þeir voru þarna. Hvernig
byssukúlur skutust í gegn-
um bílinn. Hvernig bíllinn
leit út eins og gatasigti eftir
nokkra daga og hvernig
agressíf blanda af áfengi og
Bach í botni var eldsneytið
sem kom þeim á milli bæja
þar sem þeir keyrðu á 150
kílómetra hraða eftir ómal-
bikuðum vegum.
Þar sem hann var
staddur í miðri frásögn kom einhver
krakkaskratti og kastaði kínverja (sprengju)
í götuna fyrir framan okkur. Viðbrögð vinar
míns voru ótrúleg. Hann spratt upp og
stökk á bak við bekkinn. Hræðslan skein úr
andlitinu. Hann hélt jú að
þetta væri mikið öflugri
sprengja.
Án þess að hafa
hugmynd um það varð ég
þarna vitni að því hvernig
áfallastreituröskun, eða
áfallastreita, getur lýst sér
en svo kallast röskun sú
er kemur í kjölfar þess að
fólk upplifir að lífi þeirra
eða velferð sé ógnað. Það upplifir mikla
hræðslu, hrylling og/eða vanmátt og í kjöl-
farið verða breytingar á atferli, hugarfari og
tilfinningalífi einstaklingsins.
Ég hugsa að ótal margar konur hafi
upplifað kynferðislega áreitni og ofbeldi
en aldrei unnið úr afleiðingunum sem slíkt
áfall getur haft á sálarlífið. Jafnvel aldrei
talað um það við nokkurn mann. Þess í
stað glíma þær við áfallið, fá martraðir,
forðast aðstæður sem minna á
viðburðinn – og túlka jafnvel
meinlaust daður sem árás?
Munurinn á daðri og kynferðislegri áreitni
Margrét H.
gústaVsdóttir
margret@dv.is
„viðbrögð vin-
ar míns voru
ótrúleg. Hann spratt
upp og stökk á bak
við bekkinn.
Besta ráð sem þér hefur
verið gefið?
Nanna systir gaf mér svolítið
gott ráð um daginn sem er bæði
kvenlegt og jólalegt: Gera sjálfa
sig til fyrst, áður en maður heldur
boð eða veislu, fara svo í að græja
restina.
Besta ráð sem þú getur
gefið öðrum?
Að brosa framan í heiminn og
reyna að vera smá jákvæð. Þá
verður allt betra.
hvað vildir þú að þú
hefðir vitað fyrr?
Það er að afreka ótrúlegustu hluti
á stuttum tíma. Maður þarf ekki
endilega að vinna fram í rauðan
dauðann.
Skartgripahönnuðurinn Hlín Reykdal fæddist þann 30. júlí árið 1985. Hún sleit
barnsskónum í Norðurmýrinni
og stundaði sitt grunnskólanám
í Ísaksskóla, Æfingadeildinni og
Tjarnarskóla. Hún útskrifaðist úr
Listaháskóla Íslands árið 2009 með
próf í fatahönnun en hefur getið sér
gott orð sem skartgripahönnuður
síðustu árin. Hlín er af myndlist-
arfólki komin en hún er dóttir
þeirra Jóns Reykdal listmálara
og Jóhönnu Þórðardóttur mynd-
höggvara. Hún á tvær eldri systur,
þær Nönnu og Hönnu Fjólu, og eru
báðar menntaðar í listnámi. Hlín
býr við Hagamel í Vesturbænum
ásamt eiginmanni sínum Hallgrími
Stefáni Sigurðssyni, verkfræðingi
og tveimur dætrum, Stellu, 8
ára, og Stefaníu, 4 ára. Árið 2010
stofnaði hún hönnunarfyrirtækið
Hlín Reykdal ásamt Hallgrími og
fljótlega upp úr því fóru íslenskar
konur að skreyta sig með skarti
úr smiðju Hlínar sem hefur átt
gríðarlegum vinsældum að fagna
síðustu árin.
07.00
Dagurinn byrjar á því að ég vek
eldri dóttur mína fyrir skólann,
útbý kaffi, kveiki á kerti og les svo
með Stellu við eldhúsborðið. Það er
mismunandi hvað við fáum okkur
í morgunmat en ætli egg, hafra-
grautur og AB-mjólk með múslí
séu ekki það algengasta. Mér finnst
rosalega gott að vakna sjö til að
hafa smá tíma á morgnana og vera
ekki í algjöru stressi. Rétt rúm-
lega átta vappar Stella yfir götuna
í skólann og þá hef ég mig og
Stefaníu til. Annar kaffibolli og svo
förum við öll út. Við Halli skutlum
Stefaníu í leikskólann og svo erum
við mætt í vinnuna út á Fiskislóð
um níu.
09.00
Yfirleitt skoða ég tölvupóstinn
í símanum á leið í vinnuna og
þegar ég kem í stúdíóið fer ég í
það að senda vörur út á land og
sitthvað fleira. Við Halli erum til
dæmis í því að panta inn vörur,
taka inn vörur, afgreiða fjölbreytt-
ar sendingar og svo framvegis.
Þegar þessari „skrifstofuvinnu“ er
lokið þá ákveð ég hvaða liti skal
mála þann daginn. Ég mála hverja
einustu perlu í festarnar mínar sjálf
og þetta er hörku handavinna eins
og gefur að skilja. Ég breyti um liti
á hverjum degi enda fer þetta eftir
því í hvaða stuði ég er þann daginn.
Nú er ég mikið í silfur, gylltum og
dökkum tónum fyrir jólin.
11.00
Eftir að hafa snurfusað búðina
opna ég dyrnar og hleypi inn við-
skiptavinum. Við opnuðum þessa
verslun á Hönnunarmars 2016 og
ég er alveg hæstánægð með að vera
hérna á Grandanum. Bæði er þetta
stutt frá heimilinu okkar og svo er
bara búin að myndast svo dásamleg
stemning í þessum bæjarhluta.
12.00
Við fáum okkur stundum rúg-
brauð og síld, salat eða afganga
frá deginum áður í hádegismat.
Við erum með hellu hérna til að
sjóða egg og lítinn örbylgjumat.
Reynum að hafa þetta svolítið hollt
í hádeginu. Stundum skrepp ég í
kaffi yfir í Kumiko sem er skraut-
legt kaffihús í götunni.
18.15
Vinnudagurinn er ýmist búinn
korter yfir fjögur eða korter yfir
sex. Þá sæki ég dætur mínar og við
förum í að undirbúa kvöldmatinn
og stússast eitthvað. Þrátt fyrir að
vera frekar óskipulögð hvað þetta
varðar þá reyni ég alltaf að elda
góðan kvöldmat, enda elska ég
hreinlega að elda mat. Eftir kvöld-
matinn er svo aftur lestrarstund
með stelpunum, bað og háttatími
og þegar klukkan er orðin sirka
níu þá er ég yfirleitt komin upp í
rúm.
21.30
Ég sofna reyndar ekki svona
snemma. Ligg yfirleitt í rúminu og
les eitthvað, ýmist í símanum eða
bara góða bók. Núna er ég að klára
bókina um Jógu eftir Jón Gnarr
sem ég tími varla að klára af því
mér finnst hún svo æðisleg.
Hlín reykdal
– síld og kaffi, kertaljós á morgnana og perlumálun úti á Granda„dagurinn
byrjar á því
að ég vek eldri
dóttur mína fyrir
skólann, útbý kaffi,
kveiki á kerti og les
svo með stellu við
eldhúsborðið.
instagraM.coM/birta_Vikublad vikublAð - Ritstjóri: Margrét H. Gústavsdóttir Ábyrgðarmenn: karl Garðarsson Markaðssamstarf: Svava kristín Gretarsdóttir s: 690 6900
Perludrottningin við opnuðum
þessa verslun á hönnunarmars 2016 og
ég er alveg hæst ánægð með að vera
hérna á Grandanum. bæði er þetta stutt
frá heimilinu okkar og svo er bara búin
að myndast svo dásamleg stemning í
þessum bæjarhluta. Mynd Saga Sigurðardóttir