Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2017, Síða 52

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2017, Síða 52
Vikublað 8. desember 2017 4 Afmælisbörn vikunnar Vel mælt Orðabanki Birtu: Boldangskvenmaður Hún er boldangskvenmaður, dökkeyg og hvasseyg Orðið boldangskvenmaður eða boldángskvenmaður er gamalt og gott lýsingar- orð yfir stórskornar konur. Þetta lýsingarorð er fremur jákvætt en neikvætt, notað til að lýsa bæði útliti og eiginleikum konu sem er bæði dugleg og kraftmikil en einnig stór um sig og sterk. Boldangskvenmaður er líka dugnaðarkona, dugnaðarkvendi, af- rekskona, forkur, myndarkona, skör- ungur, stólpakvenmaður, verukona og þess vegna víkingskvenmaður. UPPRUNI Boldang var þykkt léreftsefni sem gjarna var notað í segldúka eða sem undirlag á dýnu. Í Blöndal er boldang þýtt á dönsku Bolster, en í Dansk-ísIenskri orðabók Freysteins Gunnarssonar er það orð þýtt: sængurdúkur, púði, koddi, hægindi, bólstur. Þar (í Blöndal) er engin samsetning gefin nema boldangsbuxur. Hvernig það tengist stórum kvenmönnum er ekki gott að segja til um. TILVITNANIR „Ulrike Meinhoff er einnig ung stúlka, en hvorki réttur og sléttur einkaritari né tiltakanlega hæglát. Hún er boldangskvenmaður, dökkeyg og hvasseyg og var sem frábær blaðamaður við hið vinstrisinnaða kvennablað „Concrete“ velþekkt í bókmenntasamkvæmum Hamborgar.“ Úr grein um skuggahliðar Vestur-Þýskalands. Lesbók Morgunblaðsins 19. tölublað. 06.07.1975 „Það var mjög algengt í þá tíð, að bændur ættu skipin, einn eða fleiri saman, og þetta skip var bændaeign, en stærsti hluthafinn var kona, vel efnuð sveita- kona, stútungskerling og mesti boldangskvenmaður.“ Tímaritið Stígandi. 2.árgangur 1944. „ Lífið er fullt af eymd, einmanaleika og þjáningu – og því lýkur allt of fljótt. - Woody Allen 47 ára 33 ára 48 ára 44 ára Dagur kári Pétursson Starf: leikstjóri Fæddur: 12. desember 1973 sigurður björn blönDal Starf: rokkari og stjórnmálamaður Fæddur: 8. desember 1969 ragnheiður grönDal Starf: söngkona Fædd: 15. desember 1984 katla margrét ÞorgeirsDóttir Starf: leikkona Fædd: 15. desember 1970 BoldangSkvenmaður Ulrike Meinhof var boldangskven- maður og heldur herská.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.