Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2017, Page 53

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2017, Page 53
Vikublað 8. desember 2017 5 óskalisti yngismeyja Gjafahugmyndir fyrir stelpur á aldrinum 13–20 ára Það getur stundum verið vandasamt að finna frábærar jólagjafir fyrir ungar dömur. Birta skellti því á sig jólasveinshúfunni, fór á stúfana fyrir lesendur og grennslaðist fyrir um hvaða gjafir væru efst á óskalista yngismeyja landsins fyrir jólin 2017. Hér eru niðurstöðurnar, topp 10 listi, í engri sérstakri röð. karókímíkrófónninn frá To Sing Helsti kosturinn við karókí er að fólk þarf ekkert sérstaklega að kunna að syngja til að njóta þess í botn. Þessi frábæri karókímíkrófónn hentar reyndar gleðipinn- um á öllum aldri en mun sannarlega slá í gegn hjá þessum yngri enda hentugri í fjörið en hárbursti. Hægt að tengja þráð- laust við símann og syngja svo fullum hálsi með uppáhaldstónlistinni. Fæst meðal annars í Nova og Elko. Verð: 9.900 kr. mandarínu og kanil ilmkerTi frá VöluSpá Þessi geysivinsælu kerti frá Kaliforníu fást meðal annars í versluninni Maia Reykjavík. Þau fást í ýmsum stærðum. Verð: 5.490 kr. bókin Heima efTir Sólrúnu diego Snapparinn Sólrún Diego á heiður skilinn fyrir að hvetja ungmenni landsins áfram í tiltekt og þrifum á heimilinu. Hver átti von á því að kattþrifinn snappari yrði stórstjarna á Íslandi? Þetta er frábært! Fæst meðal annars hjá Heimkaup. Verð: 5.190 kr. Wonderboom HáTalari Ultimate Ears WONDERBOOM er þráðlaus hátalari sem gefur góð hljóðgæði með 360° hljóði. Auðvelt að tengja við snjallsíma með Bluetooth og svo er þessi litli hátalari með innbyggða rafhlöðu sem gefur allt að 10 klukkustunda þráðlausa notkun. Kemur í ótal litum. Fæst meðal annars í Elko. Verð: 14.990 kr. riSabolli frá indiSka Hægt að nota undir penna, förðunarbursta eða bara kakóið. Þessir skemmtilegu risaboll- ar fást hjá Indiska í Kringlunni. Verð: 2.295 kr. Topp 10 noTalegir inniSkór Hvað er meira kósí en að stinga einum makkíntossmola í munninn og táslunum ofan í notalega inni- skó þegar búið er að taka upp pakkana? Þessir sætu, dún- mjúku inniskór fást hjá Next en þar er hægt að fá alls konar liti og tegundir. Verð frá: 2.790 kr. Spegill Spegill … Ikornness gólfspeg- illinn fæst hjá Ikea. Aftan á honum eru snagar sem hægt er að hengja bæði skartgripi eða fatnað á. Mjög hentugt fyrir ungar pjattrófur. Verð: 14.950 kr. melTing mug Bráðnandi bollinn frá Studio Arhoj fæst með- al annars í pastelbleik- um, gráum og hvítum lit. Hentar bæði sem skraut og drykkjarkrús. Fæst í versluninni Hrím. Verð: 3.490 kr. glamgloW THirSTymud Þessi geysivinsæli og girnilega útlítandi and- litsmaski á að minnka húðholur og virka vel gegn bóluvanda, sem og inngrónum hárum. Að sögn framleiðanda er hann jafnframt hreinsandi fyrir húðina og nærir hana vel. Fæst meðal annars hjá Beautybox.is og í helstu snyrtivöruverslunum. Verð: 7.390 kr. gjafabréf í förðunarkennSlu og VöruúTTekT Yngismeyjar hafa margar hverjar mjög gaman af förðun. Hjá MAC Cosmetics í Kringlunni og Smáralind er boðið upp á förðunarkennslu sem tekur ýmist 30, 60 eða 90 mínútur. Að kennslunni lokinni geta viðskiptavinir svo leyst út vörur fyrir upphæð gjafabréfsins. Verð: 30 mín. 5.000 kr. / 60 mín. 9.000 kr. / 90 mín. 13.500 kr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.