Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2017, Blaðsíða 53
Vikublað 8. desember 2017 5
óskalisti yngismeyja
Gjafahugmyndir fyrir stelpur
á aldrinum 13–20 ára
Það getur stundum verið vandasamt að finna
frábærar jólagjafir fyrir ungar dömur. Birta skellti því
á sig jólasveinshúfunni, fór á stúfana fyrir lesendur
og grennslaðist fyrir um hvaða gjafir væru efst á
óskalista yngismeyja landsins fyrir jólin 2017. Hér eru
niðurstöðurnar, topp 10 listi, í engri sérstakri röð.
karókímíkrófónninn
frá To Sing
Helsti kosturinn við karókí er að fólk þarf
ekkert sérstaklega að kunna að syngja
til að njóta þess í botn. Þessi frábæri
karókímíkrófónn hentar reyndar gleðipinn-
um á öllum aldri en mun sannarlega slá
í gegn hjá þessum yngri enda hentugri í
fjörið en hárbursti. Hægt að tengja þráð-
laust við símann og syngja svo fullum hálsi
með uppáhaldstónlistinni. Fæst meðal
annars í Nova og Elko.
Verð: 9.900 kr.
mandarínu og kanil ilmkerTi frá VöluSpá
Þessi geysivinsælu kerti frá Kaliforníu fást meðal annars í versluninni Maia
Reykjavík. Þau fást í ýmsum stærðum.
Verð: 5.490 kr.
bókin Heima efTir Sólrúnu diego
Snapparinn Sólrún Diego á heiður skilinn fyrir að hvetja
ungmenni landsins áfram í tiltekt og þrifum á heimilinu.
Hver átti von á því að kattþrifinn snappari yrði stórstjarna á
Íslandi? Þetta er frábært! Fæst meðal annars hjá Heimkaup.
Verð: 5.190 kr.
Wonderboom
HáTalari Ultimate
Ears WONDERBOOM
er þráðlaus hátalari sem
gefur góð hljóðgæði með
360° hljóði. Auðvelt að
tengja við snjallsíma með
Bluetooth og svo er þessi
litli hátalari með innbyggða
rafhlöðu sem gefur allt að
10 klukkustunda þráðlausa
notkun. Kemur í ótal litum.
Fæst meðal annars í Elko.
Verð: 14.990 kr.
riSabolli
frá indiSka
Hægt að nota undir
penna, förðunarbursta
eða bara kakóið. Þessir
skemmtilegu risaboll-
ar fást hjá Indiska í
Kringlunni.
Verð: 2.295 kr.
Topp 10
noTalegir
inniSkór
Hvað er meira kósí
en að stinga einum
makkíntossmola í
munninn og táslunum
ofan í notalega inni-
skó þegar búið er að
taka upp pakkana?
Þessir sætu, dún-
mjúku inniskór fást
hjá Next en þar er
hægt að fá alls konar
liti og tegundir.
Verð frá: 2.790 kr.
Spegill
Spegill …
Ikornness gólfspeg-
illinn fæst hjá Ikea.
Aftan á honum eru
snagar sem hægt
er að hengja bæði
skartgripi eða
fatnað á. Mjög
hentugt fyrir ungar
pjattrófur.
Verð: 14.950 kr.
melTing mug
Bráðnandi bollinn frá
Studio Arhoj fæst með-
al annars í pastelbleik-
um, gráum og hvítum
lit. Hentar bæði sem
skraut og drykkjarkrús.
Fæst í versluninni Hrím.
Verð: 3.490 kr.
glamgloW
THirSTymud
Þessi geysivinsæli og
girnilega útlítandi and-
litsmaski á að minnka
húðholur og virka vel
gegn bóluvanda, sem
og inngrónum hárum.
Að sögn framleiðanda
er hann jafnframt
hreinsandi fyrir húðina
og nærir hana vel.
Fæst meðal annars hjá
Beautybox.is og í helstu
snyrtivöruverslunum.
Verð: 7.390 kr.
gjafabréf í förðunarkennSlu og VöruúTTekT
Yngismeyjar hafa margar hverjar mjög gaman af förðun. Hjá MAC Cosmetics í
Kringlunni og Smáralind er boðið upp á förðunarkennslu sem tekur ýmist 30, 60
eða 90 mínútur. Að kennslunni lokinni geta viðskiptavinir svo leyst út vörur fyrir
upphæð gjafabréfsins.
Verð:
30 mín. 5.000 kr. / 60 mín. 9.000 kr. / 90 mín. 13.500 kr.