Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Page 10
10 Helgarblað 5. janúar 2018fréttir
P
arið James McDaniel og
Hafsteinn Regínuson var
rekið úr flugvél South
West Airlines í borginni
Baltimore í Marylandfylki fyrir
jól. Vísir greindi upphaflega frá
atvikinu. Voru þeir þá á leiðinni
til fjölskyldu James í Alabama
og þurftu þess í stað að taka lest.
James segir ástæðuna fyrir því að
þeir voru reknir úr flugvélinni for
dóma gagnvart samkynhneigðu
fólki, sem séu á uppleið í Banda
ríkjunum vegna stjórnar Don
alds Trump. Atburðurinn hafði
mjög mikil áhrif á þá tvo, þar sem
þeir eru með áfallastreituröskun.
James eftir kynferðisofbeldi frá
kvenkyns nemanda við Háskóla
Íslands.
Reknir úr flugvél í Baltimore
Hafsteinn, eða Haffi, og James
ætluðu að fljúga frá Baltimore til
Atlanta þar sem þeir áttu að hitta
fjölskyldu James. Þegar þeir voru
komnir inn í flugvélina komu þrír
lögregluþjónar og kröfðust þess
að þeir yfirgæfu flugvélina. Í sam
tali við DV segir James: „Þeir gáfu
enga ástæðu fyrir þessu um borð
í vélinni. Þegar við komum út
sögðu þeir að Haffi hefði hagað
sér ósæmilega, verið móðgandi og
fleygt einhverjum hlut í flugþjón.
Meira sögðu þeir ekki.“
Þeir skildu lítið í þessu og
voru ósáttir við meðhöndlun lög
reglunnar og jafnframt hrædd
ir. Haffi brast í grát og lögreglu
þjónarnir hótuðu að handjárna
hann. Þetta olli fjögurra daga töf á
ferðaáætlun þeirra og þeir misstu
af jólaboðinu hjá fjölskyldu James.
Flugfélag með sögu mismununar
James segist hafa reynt að fá svör
frá SouthWest í kjölfar þessa alls
en gengið illa. Eina sem stóð í
skýrslunni hafi verið „fjarlægðir
vegna ölvunar“ en James segir það
alls ekki rétt. Hvor um sig hafði
drukkið tvo bjóra með kvöldverði
á flugvellinum en nokkur tími hafi
liðið frá honum uns þeir gengu um
borð í flugvélina.
Eftir atburðinn las James sér til
um SouthWest og komst að því að
flugfélagið á sér sögu mismununar.
Farþegum hefur verið vísað frá
borði vegna samkynhneigðar,
offitu og klæðaburðar. „Okkur
finnst eins og á okkur hafi verið
brotið. Ég tel að það sé nauðsyn
legt að spyrja sig að því hver sé
fórnarlambið hérna, hverjum líð
ur illa yfir þessu og varð fyrir áfalli
og óvissu í kjölfarið.“
Hann segir að þeir þjáist báð
ir af andlegum kvillum og eigi
erfitt með að láta snerta sig. Þess
vegna hafi atburðurinn haft mikil
áhrif á þá. „Kvíði og þunglyndi er
algengt meðal samkynhneigðra á
Íslandi og víðar. Ég er með mikla
áfallastreituröskun eftir kynferðis
lega árás sem ég varð fyrir í Há
skóla Íslands. Við erum báðir með
skírteini frá TSA (samgöngustofa
Bandaríkjanna) sem greinir frá
þessu og átti að gera ferðalög eins
og þessi auðveldari fyrir okkur.
Nauðgað eftir hrekkjavökupartí
James, sem varð íslenskur ríkis
borgari í haust, hefur mátt þola
ýmis legt um sína ævi. Eiginkona
hans lést og í tvígang hefur hann
mátt þola kynferðisofbeldi. Í
fyrra skiptið af tveimur mönnum
í Bandaríkjunum fyrir nokkrum
árum og í það síðara af kvenkyns
nemanda við Háskóla Íslands.
Gerðist það á Stúdentagörðum í
október árið 2016 eftir hrekkja
vökupartí. Notfærði hún sér ölv
unarástand James sem man lítið
eftir atburðinum sjálfum.
Hann tilkynnti árásina til
fagráðs Háskóla Íslands um kyn
ferðislega áreitni og kynferðisof
beldi síðastliðinn ágúst. „Ég er
enn þá að bíða eftir niðurstöðun
um og á von á þeim eftir að ég kem
aftur til Íslands. Það er búið að
vera mjög erfitt fyrir mig að vera í
skólanum vitandi að ég gæti rekist
á hana hvenær sem er.“ James telur
líklegt að hann muni þurfa að tak
ast á við þetta sjálfur og tilkynnti
brotið ekki til lögreglu. „Þegar ég
skoða mál fórnarlamba kynferð
isofbeldis, sum mun ofbeldis fyllri
en þetta, þá held ég að ég viti svar
ið. Ung kona gerði skelfileg mistök
og ég er sá sem tók afleiðingunum.
Ég er ekki að leita að hefnd en ég
vona að hún geri ekki sömu mis
tök aftur og það bitni á öðrum.“
Orð Trumps hafa áhrif
Nokkrum mánuðum eftir árásina
leitaði James til Kvíðameðferðar
stöðvarinnar en skipti síðan yfir í
netmeðferð hjá bandarískum sál
fræðingi. „Ég hlakkaði mikið til
að komast til Bandaríkjanna til að
komast aðeins frá þessari reynslu.
En það lítur út fyrir að ég hafi feng
ið nýtt mál til að ræða um við sál
fræðinginn minn.“
James segist upplifa varnar
leysi eftir atvikið í flugvélinni. „Við,
hinsegin fólk, höfum aldrei verið
í valdastöðu til að segja frá okkar
hlið mála, ofsóknum í okkar garð og
persónulegum áföllum. „Hinsegin
fólk er komið upp á náð og miskunn
gagnkynhneigða meirihlutans, sem
á fjölmiðlana, flest fyrirtækin og all
ar ríkisstjórnir.“
Þegar hann skoðar bandarískt
samfélag og sér hvernig það mis
munar fólki á hverjum degi finnst
honum framkoma eins og honum
og Haffa var sýnd ekki eiga að
koma sér á óvart. „Maður trúir
því bara ekki að maður lendi sjálf
ur í þessu.“ Hann segir Bandarík
in vera að breytast hratt í kjölfar
kjörs Donalds Trump, og til verri
vegar fyrir minnihlutahópa eins
og hinsegin fólk. „Jafnvel þó að
Trump virðist vera alveg galinn,
þá hvetja orð hans fólk til að mis
muna minnihlutahópum á öllum
sviðum.“ n
RekniR úR flugvél
n Flugfélag með vafasama sögu n Trump hefur áhrif n Áfallastreituröskun eftir nauðgun
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
„Hinsegin fólk er komið
upp á náð og miskunn
gagnkynhneigða meirihlutans
James og Haffi „Jafnvel þó að
Trump virðist vera alveg galinn, þá
hvetja orð hans fólk til að mismuna
minnihlutahópum á öllum sviðum.“