Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Qupperneq 10
10 Helgarblað 5. janúar 2018fréttir P arið James McDaniel og Hafsteinn Regínuson var rekið úr flugvél South­ West Airlines í borginni Baltimore í Maryland­fylki fyrir jól. Vísir greindi upphaflega frá atvikinu. Voru þeir þá á leiðinni til fjölskyldu James í Alabama og þurftu þess í stað að taka lest. James segir ástæðuna fyrir því að þeir voru reknir úr flugvélinni for­ dóma gagnvart samkynhneigðu fólki, sem séu á uppleið í Banda­ ríkjunum vegna stjórnar Don­ alds Trump. Atburðurinn hafði mjög mikil áhrif á þá tvo, þar sem þeir eru með áfallastreituröskun. James eftir kynferðisofbeldi frá kvenkyns nemanda við Háskóla Íslands. Reknir úr flugvél í Baltimore Hafsteinn, eða Haffi, og James ætluðu að fljúga frá Baltimore til Atlanta þar sem þeir áttu að hitta fjölskyldu James. Þegar þeir voru komnir inn í flugvélina komu þrír lögregluþjónar og kröfðust þess að þeir yfirgæfu flugvélina. Í sam­ tali við DV segir James: „Þeir gáfu enga ástæðu fyrir þessu um borð í vélinni. Þegar við komum út sögðu þeir að Haffi hefði hagað sér ósæmilega, verið móðgandi og fleygt einhverjum hlut í flugþjón. Meira sögðu þeir ekki.“ Þeir skildu lítið í þessu og voru ósáttir við meðhöndlun lög­ reglunnar og jafnframt hrædd­ ir. Haffi brast í grát og lögreglu­ þjónarnir hótuðu að handjárna hann. Þetta olli fjögurra daga töf á ferðaáætlun þeirra og þeir misstu af jólaboðinu hjá fjölskyldu James. Flugfélag með sögu mismununar James segist hafa reynt að fá svör frá SouthWest í kjölfar þessa alls en gengið illa. Eina sem stóð í skýrslunni hafi verið „fjarlægðir vegna ölvunar“ en James segir það alls ekki rétt. Hvor um sig hafði drukkið tvo bjóra með kvöldverði á flugvellinum en nokkur tími hafi liðið frá honum uns þeir gengu um borð í flugvélina. Eftir atburðinn las James sér til um SouthWest og komst að því að flugfélagið á sér sögu mismununar. Farþegum hefur verið vísað frá borði vegna samkynhneigðar, offitu og klæðaburðar. „Okkur finnst eins og á okkur hafi verið brotið. Ég tel að það sé nauðsyn­ legt að spyrja sig að því hver sé fórnarlambið hérna, hverjum líð­ ur illa yfir þessu og varð fyrir áfalli og óvissu í kjölfarið.“ Hann segir að þeir þjáist báð­ ir af andlegum kvillum og eigi erfitt með að láta snerta sig. Þess vegna hafi atburðurinn haft mikil áhrif á þá. „Kvíði og þunglyndi er algengt meðal samkynhneigðra á Íslandi og víðar. Ég er með mikla áfallastreituröskun eftir kynferðis­ lega árás sem ég varð fyrir í Há­ skóla Íslands. Við erum báðir með skírteini frá TSA (samgöngustofa Bandaríkjanna) sem greinir frá þessu og átti að gera ferðalög eins og þessi auðveldari fyrir okkur. Nauðgað eftir hrekkjavökupartí James, sem varð íslenskur ríkis­ borgari í haust, hefur mátt þola ýmis legt um sína ævi. Eiginkona hans lést og í tvígang hefur hann mátt þola kynferðisofbeldi. Í fyrra skiptið af tveimur mönnum í Bandaríkjunum fyrir nokkrum árum og í það síðara af kvenkyns nemanda við Háskóla Íslands. Gerðist það á Stúdentagörðum í október árið 2016 eftir hrekkja­ vökupartí. Notfærði hún sér ölv­ unarástand James sem man lítið eftir atburðinum sjálfum. Hann tilkynnti árásina til fagráðs Háskóla Íslands um kyn­ ferðislega áreitni og kynferðisof­ beldi síðastliðinn ágúst. „Ég er enn þá að bíða eftir niðurstöðun­ um og á von á þeim eftir að ég kem aftur til Íslands. Það er búið að vera mjög erfitt fyrir mig að vera í skólanum vitandi að ég gæti rekist á hana hvenær sem er.“ James telur líklegt að hann muni þurfa að tak­ ast á við þetta sjálfur og tilkynnti brotið ekki til lögreglu. „Þegar ég skoða mál fórnarlamba kynferð­ isofbeldis, sum mun ofbeldis fyllri en þetta, þá held ég að ég viti svar­ ið. Ung kona gerði skelfileg mistök og ég er sá sem tók afleiðingunum. Ég er ekki að leita að hefnd en ég vona að hún geri ekki sömu mis­ tök aftur og það bitni á öðrum.“ Orð Trumps hafa áhrif Nokkrum mánuðum eftir árásina leitaði James til Kvíðameðferðar­ stöðvarinnar en skipti síðan yfir í netmeðferð hjá bandarískum sál­ fræðingi. „Ég hlakkaði mikið til að komast til Bandaríkjanna til að komast aðeins frá þessari reynslu. En það lítur út fyrir að ég hafi feng­ ið nýtt mál til að ræða um við sál­ fræðinginn minn.“ James segist upplifa varnar­ leysi eftir atvikið í flugvélinni. „Við, hinsegin fólk, höfum aldrei verið í valdastöðu til að segja frá okkar hlið mála, ofsóknum í okkar garð og persónulegum áföllum. „Hinsegin fólk er komið upp á náð og miskunn gagnkynhneigða meirihlutans, sem á fjölmiðlana, flest fyrirtækin og all­ ar ríkisstjórnir.“ Þegar hann skoðar bandarískt samfélag og sér hvernig það mis­ munar fólki á hverjum degi finnst honum framkoma eins og honum og Haffa var sýnd ekki eiga að koma sér á óvart. „Maður trúir því bara ekki að maður lendi sjálf­ ur í þessu.“ Hann segir Bandarík­ in vera að breytast hratt í kjölfar kjörs Donalds Trump, og til verri vegar fyrir minnihlutahópa eins og hinsegin fólk. „Jafnvel þó að Trump virðist vera alveg galinn, þá hvetja orð hans fólk til að mis­ muna minnihlutahópum á öllum sviðum.“ n RekniR úR flugvél n Flugfélag með vafasama sögu n Trump hefur áhrif n Áfallastreituröskun eftir nauðgun Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is „Hinsegin fólk er komið upp á náð og miskunn gagnkynhneigða meirihlutans James og Haffi „Jafnvel þó að Trump virðist vera alveg galinn, þá hvetja orð hans fólk til að mismuna minnihlutahópum á öllum sviðum.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.