Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Side 12
12 Helgarblað 5. janúar 2018fréttir
„Hann reyndi
að drepa mig“
Deilur milli ábúenda að Langholti 1 og 2 hafa staðið yfir í áratug
H
ann reyndi að drepa mig,“
segir Hreggviður Her-
mannsson, bóndi að Lang-
holti 1b í Árnessýslu.
Hreggviður sakar nágranna sinn,
Ragnar Val Björgvinsson, sem býr
í Langholti 2, um að hafa reynt
að keyra yfir hann á bifreið. Hin
meinta árás átti sér stað þann 21.
desember síðastliðinn. Hreggviður
hefur lagt fram kæru vegna málsins
en það hafa nágrannar hans, Ragn-
ar Valur og eigin kona hans, Fríður
Sólveig Hannesdóttir, einnig gert.
DV hefur þó ekki heimildir fyrir því
í hverju kæra þeirra felst en að sögn
lögmanns þeirra vilja þau ekki
reka málið í fjölmiðlum. Deilurnar
milli nágrannanna hafa staðið yfir
í rúman áratug og oftsinnis ratað í
fjölmiðla.
Reyndi að stöðva skemmdarverk
„Ég var að vinna inni í skúr á minni
landareign og sá þá að þau hjónin
voru að koma að vírgirðingu sem
aðskilur landareignirnar. Þau hafa
þann sið að eyðileggja girðinguna
og taka hana með sér og það var
akkúrat það sem gerðist þarna.
Fríður tók vírgirðinguna og dró
hana með sér heim að bænum,“
segir Hreggviður í samtali við DV.
Hann var með hamar í hönd þegar
atvikið átti sér stað og tók hann
með sér á vettvang.
Hann segist hafa gengið að
og ætlað að koma í veg fyrir
skemmdarverkið. „Ég var á eftir
henni og var að reyna að stíga á
vírspottann. Ragnar reyndi þá að
keyra í veg fyrir mig en ég komst
fram fyrir hann,“ segir Hreggvið-
ur. Skyndilega hafi þá Ragnar keyrt
á eftir honum og fann Hreggvið-
ur að hann var að lenda undir bif-
reiðinni.
Leið út af yfir kvöldmatnum
„Hann reyndi að keyra mig niður
en ég stökk þá upp á húddið til að
bjarga mér. Ég reyndi að halda mér
þar með annarri hendi en á með-
an keyrði Ragnar hring á lóðinni og
meðal annars í gegnum limgerði,“
segir Hreggviður. Hann missti loks
takið, valt yfir húddið og féll til jarð-
ar. Þá tók ekki betra við því Hregg-
viður sakar Ragnar um að hafa
keyrt yfir fæturna á honum. Sýnir
hann blaðamanni myndir af áverk-
um sínum því til sönnunar.
Eftir hina meintu árás staulað-
ist hann blóðugur heim til sín
þar sem eiginkona hans og dóttir
tóku á móti honum og hjúkruðu
honum. „Fyrst um sinn var ég
merkilega hress og kenndi mér
ekkert sérstaklega meins. Líklega
hefur adrenalínið haldið manni
gangandi. Síðan leið smá tími og
þegar kom að því að setjast við
kvöldmatarborðið þá leið ég bara
út af yfir matnum,“ segir Hregg-
viður. Heimilisfólk hringdi þá um-
svifalaust í sjúkrabíl og var Hregg-
viður færður til aðhlynningar. „Ég
var sem betur fer óbrotinn en
mjög marinn. Þessi árás náðist á
upptöku sem lögregla hefur undir
höndum,“ segir Hreggviður.
Deila um veiðiréttindi
kveikti ófriðarbál
Hin meinta árás er nýjasta uppá-
koman í nágrannaerjum, sem hafa
staðið í rúman áratug. Hreggviður,
sem er 67 ára gamall, er borinn
og barnfæddur að Langholti 1 en
Ragnar flutti að Langholti 2 árið
1990. Næstu fimmtán ár voru
samskiptin ágæt en halla fór á
ógæfuhliðina árið 2005. „Þá fór
Ragnar í mál við mig út af veiði-
réttindum í Hvítá. Það var algjör
vitleysa enda vann ég málið fyrir
dómstólum. Síðan þá hafa sam-
skiptin ekki verið söm og Ragnar
og eiginkona hans, Fríður Sólveig
Hannesdóttir, reyna allt hvað þau
geta til þess að ná sér niðri á mér,“
segir Hreggviður.
Deilurnar undanfarin ár hafa
snúist um landamerki spildu sem
eitt sinn tilheyrði jörð Ragnars. Árið
1987 fékk Hreggviður spilduna í
makaskiptum
fyrir aðra jafn-
stóra spildu úr sínu
landi. Hreggviður hefur síð-
an staðið í vegabótum að bæ sínum
en Ragnar og Fríður telja að Hregg-
viður hafi seilst inn á þeirra lóð.
Þar stendur hnífurinn í kúnni en
deilurnar hafa verið ævin týralegar
í meira lagi.
Ítrekað kærður til lögreglu
Hreggviður heldur því fram að
hann sé ítrekað kærður til lögreglu
fyrir litlar sakir, að eigin sögn, og
vill hann meina að Ragnar og Fríð-
ur séu að misnota tengsl sín inn í
lögreglu- og sýslumannsembættið
í umdæminu. „Dóttir Fríðar starfar
sem fulltrúi hjá lögreglunni, þau
hringja linnulítið í lögregluna út
af minnstu smáatriðum og alltaf
bregst lögreglan strax við. Sam-
kvæmt minni talningu hafa þeir
komið hingað 170 sinnum, stund-
um þrisvar á dag. Þau hafa síðan
kært mig fyrir hin minnstu smáat-
riði og njóta þar liðsinnis yfirvalda.
Málin eru síðan alltaf felld niður,“
segir Hreggviður.
Hann segist hafa oft þurft að
koma fyrir dómara en aðeins einu
sinni hlotið dóm en það var þá
vegna þess að hann hafði lagt gröf-
unni sinni vitlaust. „Þeir urðu
eigin lega að dæma mig því þetta
var orðið svo vandræðalegt,“ segir
Hreggviður, sem ver sig ætíð sjálf-
ur. Von er á úrskurði héraðsdóms
vegna samtínings fjölda meintra
brota Hreggviðs. „Dómurinn átti
að vera kveðinn upp 20. desember
en það bólar ekkert á honum,“ segir
Hreggviður. Þá er búið að þingfesta
landamerkjadeiluna og telur Hregg-
viður að sú deila verði langvinn.
DV hafði samband við ná-
granna Hreggviðs, Ragnar Val og
Fríði, en þau vísuðu á lögfræðing
sinn, Jónínu Guðmundsdóttur.
Hún sendi eftirfarandi yfirlýsingu
til DV vegna málsins:
„Öllum ásökunum Hreggviðs
Hermannssonar á hendur um-
bjóðanda mínum er hafnað sem
röngum sem og því að þau beri
ábyrgð á þeim áverkum sem hann
sýnir fjölmiðlum. Umbjóðendur
mínir telja ekki rétt að reka mál-
ið í fjölmiðlum enda séu málin til
rannsóknar hjá lögreglu, þar með
talin kæra þeirra á hendur Hregg-
viði fyrir mjög alvarleg brot gegn
þeim í umrætt sinn. Því telja þau að
rannsóknarhagsmunir mæli gegn
því að þau segi sína hlið málsins
enda er skýrslutökum ekki lokið.
Fyrirliggjandi sönnunargögn tali
sínu máli. Brot Hreggviðs gagnvart
umbjóðendum mínum eru ítrek-
uð, langvarandi og alvarleg.“ n
Marinn
Hregg-
viður
fullyrðir
að Ragn-
ar Valur
hafi keyrt
yfir fætur
hans á
bifreið sinni.
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Hreggviður
Hermannsson
Að hans sögn
varð hann fyrir
stórhættulegri
árás nágranna
síns rétt fyrir jól.
MynD SigtRygguR ARi
„Hann
reyndi að
keyra mig niður en
ég stökk þá upp
á húddið til að
bjarga mér
Vírgirðingin Hreggviður segir að nágrannar sínir
eyðileggi ítrekað girðingu sem liggi milli landar-
eignanna. Hann hafi ætlað sér að stöðva slíkt
skemmdarverk þegar hin meinta árás átti sér stað.