Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Qupperneq 12
12 Helgarblað 5. janúar 2018fréttir „Hann reyndi að drepa mig“ Deilur milli ábúenda að Langholti 1 og 2 hafa staðið yfir í áratug H ann reyndi að drepa mig,“ segir Hreggviður Her- mannsson, bóndi að Lang- holti 1b í Árnessýslu. Hreggviður sakar nágranna sinn, Ragnar Val Björgvinsson, sem býr í Langholti 2, um að hafa reynt að keyra yfir hann á bifreið. Hin meinta árás átti sér stað þann 21. desember síðastliðinn. Hreggviður hefur lagt fram kæru vegna málsins en það hafa nágrannar hans, Ragn- ar Valur og eigin kona hans, Fríður Sólveig Hannesdóttir, einnig gert. DV hefur þó ekki heimildir fyrir því í hverju kæra þeirra felst en að sögn lögmanns þeirra vilja þau ekki reka málið í fjölmiðlum. Deilurnar milli nágrannanna hafa staðið yfir í rúman áratug og oftsinnis ratað í fjölmiðla. Reyndi að stöðva skemmdarverk „Ég var að vinna inni í skúr á minni landareign og sá þá að þau hjónin voru að koma að vírgirðingu sem aðskilur landareignirnar. Þau hafa þann sið að eyðileggja girðinguna og taka hana með sér og það var akkúrat það sem gerðist þarna. Fríður tók vírgirðinguna og dró hana með sér heim að bænum,“ segir Hreggviður í samtali við DV. Hann var með hamar í hönd þegar atvikið átti sér stað og tók hann með sér á vettvang. Hann segist hafa gengið að og ætlað að koma í veg fyrir skemmdarverkið. „Ég var á eftir henni og var að reyna að stíga á vírspottann. Ragnar reyndi þá að keyra í veg fyrir mig en ég komst fram fyrir hann,“ segir Hreggvið- ur. Skyndilega hafi þá Ragnar keyrt á eftir honum og fann Hreggvið- ur að hann var að lenda undir bif- reiðinni. Leið út af yfir kvöldmatnum „Hann reyndi að keyra mig niður en ég stökk þá upp á húddið til að bjarga mér. Ég reyndi að halda mér þar með annarri hendi en á með- an keyrði Ragnar hring á lóðinni og meðal annars í gegnum limgerði,“ segir Hreggviður. Hann missti loks takið, valt yfir húddið og féll til jarð- ar. Þá tók ekki betra við því Hregg- viður sakar Ragnar um að hafa keyrt yfir fæturna á honum. Sýnir hann blaðamanni myndir af áverk- um sínum því til sönnunar. Eftir hina meintu árás staulað- ist hann blóðugur heim til sín þar sem eiginkona hans og dóttir tóku á móti honum og hjúkruðu honum. „Fyrst um sinn var ég merkilega hress og kenndi mér ekkert sérstaklega meins. Líklega hefur adrenalínið haldið manni gangandi. Síðan leið smá tími og þegar kom að því að setjast við kvöldmatarborðið þá leið ég bara út af yfir matnum,“ segir Hregg- viður. Heimilisfólk hringdi þá um- svifalaust í sjúkrabíl og var Hregg- viður færður til aðhlynningar. „Ég var sem betur fer óbrotinn en mjög marinn. Þessi árás náðist á upptöku sem lögregla hefur undir höndum,“ segir Hreggviður. Deila um veiðiréttindi kveikti ófriðarbál Hin meinta árás er nýjasta uppá- koman í nágrannaerjum, sem hafa staðið í rúman áratug. Hreggviður, sem er 67 ára gamall, er borinn og barnfæddur að Langholti 1 en Ragnar flutti að Langholti 2 árið 1990. Næstu fimmtán ár voru samskiptin ágæt en halla fór á ógæfuhliðina árið 2005. „Þá fór Ragnar í mál við mig út af veiði- réttindum í Hvítá. Það var algjör vitleysa enda vann ég málið fyrir dómstólum. Síðan þá hafa sam- skiptin ekki verið söm og Ragnar og eiginkona hans, Fríður Sólveig Hannesdóttir, reyna allt hvað þau geta til þess að ná sér niðri á mér,“ segir Hreggviður. Deilurnar undanfarin ár hafa snúist um landamerki spildu sem eitt sinn tilheyrði jörð Ragnars. Árið 1987 fékk Hreggviður spilduna í makaskiptum fyrir aðra jafn- stóra spildu úr sínu landi. Hreggviður hefur síð- an staðið í vegabótum að bæ sínum en Ragnar og Fríður telja að Hregg- viður hafi seilst inn á þeirra lóð. Þar stendur hnífurinn í kúnni en deilurnar hafa verið ævin týralegar í meira lagi. Ítrekað kærður til lögreglu Hreggviður heldur því fram að hann sé ítrekað kærður til lögreglu fyrir litlar sakir, að eigin sögn, og vill hann meina að Ragnar og Fríð- ur séu að misnota tengsl sín inn í lögreglu- og sýslumannsembættið í umdæminu. „Dóttir Fríðar starfar sem fulltrúi hjá lögreglunni, þau hringja linnulítið í lögregluna út af minnstu smáatriðum og alltaf bregst lögreglan strax við. Sam- kvæmt minni talningu hafa þeir komið hingað 170 sinnum, stund- um þrisvar á dag. Þau hafa síðan kært mig fyrir hin minnstu smáat- riði og njóta þar liðsinnis yfirvalda. Málin eru síðan alltaf felld niður,“ segir Hreggviður. Hann segist hafa oft þurft að koma fyrir dómara en aðeins einu sinni hlotið dóm en það var þá vegna þess að hann hafði lagt gröf- unni sinni vitlaust. „Þeir urðu eigin lega að dæma mig því þetta var orðið svo vandræðalegt,“ segir Hreggviður, sem ver sig ætíð sjálf- ur. Von er á úrskurði héraðsdóms vegna samtínings fjölda meintra brota Hreggviðs. „Dómurinn átti að vera kveðinn upp 20. desember en það bólar ekkert á honum,“ segir Hreggviður. Þá er búið að þingfesta landamerkjadeiluna og telur Hregg- viður að sú deila verði langvinn. DV hafði samband við ná- granna Hreggviðs, Ragnar Val og Fríði, en þau vísuðu á lögfræðing sinn, Jónínu Guðmundsdóttur. Hún sendi eftirfarandi yfirlýsingu til DV vegna málsins: „Öllum ásökunum Hreggviðs Hermannssonar á hendur um- bjóðanda mínum er hafnað sem röngum sem og því að þau beri ábyrgð á þeim áverkum sem hann sýnir fjölmiðlum. Umbjóðendur mínir telja ekki rétt að reka mál- ið í fjölmiðlum enda séu málin til rannsóknar hjá lögreglu, þar með talin kæra þeirra á hendur Hregg- viði fyrir mjög alvarleg brot gegn þeim í umrætt sinn. Því telja þau að rannsóknarhagsmunir mæli gegn því að þau segi sína hlið málsins enda er skýrslutökum ekki lokið. Fyrirliggjandi sönnunargögn tali sínu máli. Brot Hreggviðs gagnvart umbjóðendum mínum eru ítrek- uð, langvarandi og alvarleg.“ n Marinn Hregg- viður fullyrðir að Ragn- ar Valur hafi keyrt yfir fætur hans á bifreið sinni. Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Hreggviður Hermannsson Að hans sögn varð hann fyrir stórhættulegri árás nágranna síns rétt fyrir jól. MynD SigtRygguR ARi „Hann reyndi að keyra mig niður en ég stökk þá upp á húddið til að bjarga mér Vírgirðingin Hreggviður segir að nágrannar sínir eyðileggi ítrekað girðingu sem liggi milli landar- eignanna. Hann hafi ætlað sér að stöðva slíkt skemmdarverk þegar hin meinta árás átti sér stað.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.