Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Síða 17
KYNNING KVAN er fyrirtæki sem sérhæfir sig í að styðja við einstaklinga og hópa til að vaxa, þroskast og öðlast aðgengi að eigin styrkleikum. Það gerum við með námskeiðum, ráðgjöf og þjálfun,“ segir Jón Halldórs- son, framkvæmdastjóri og þjálfari hjá KVAN. „Við höfum óbilandi trú á því að all- ir einstaklingar á öllum aldri eigi að fá tækifæri til þess að blómstra á sínu sviði. Við þjálfum fullorðið fólk, ungt fólk, fagaðila sem starfa með ungu fólki og nú á nýju ári erum við einnig að setja fókusinn á fyrirtækjaþjálfun.“ Hjá fyrirtækinu starfa sjö einstak- lingar sem allir eru með menntun á uppeldissviði auk þess að hafa áralanga reynslu í kennslu og þjálfun með fólki á öllum aldri. KVAN námskeiðið „Við þjálfum einstaklinga í að efla sjálfstraust sitt og takast á við dag- legar áskoranir, sama hvort það er í starfi, skóla eða einkalífi. Þetta gerum við með því að vinna alltaf út frá styrkleikum hvers og eins, við höfum svo mikla trú á því að skoða alltaf öll mál út frá styrkleikum einstakling- anna,“ segir Jón. „Við hjálpum fólki að setja sér skýr markmið og kennum því að finna út jákvæða leiðtogahæfileika sína sem efla það í því að hafa góð áhrif á sitt nærumhverfi og sjálft sig. Það er svo magnað að sjá hversu mikið meira býr oft í fólki en það gerir sér grein fyrir og þá eiginleika er svo miklu auðveldara að kalla fram þegar við horfum til styrkleika hvers og eins. Við aldursskiptum námskeiðunum til þess að allir geti náð að tengja efnistök námskeiðsins við sínar þarfir. Við erum með KVAN fyrir ungt fólk og fullorðna.“ Námskeiðið fyrir unga fólkið er í átta vikur, kennt einu sinni í viku. Námskeiðið fyrir fullorðna er í sex vikur, kennt einu sinni í viku. Vináttuþjálfun „Við bjóðum upp á vináttuþjálfun fyrir börn á aldrinum 7–12 ára. Þessi nám- skeið henta öllum börnum en eru þó sérstaklega gagnleg fyrir börn sem hafa upplifað félagslega einangrun, vináttu- leysi, einelti eða aðra höfnun. Það skiptir svo miklu máli að hjálpa þeim eins fljótt og auðið er að takast á við áskoranir í sínu lífi og láta þau fá tæki og tól sem þau geta nýtt til þess að sigrast á áskor- unum.“ Námskeiðið í vináttuþjálfun er í átta vikur, einu sinni í viku. Lausnir fyrir fagaðila sem starfa með ungu fólki „Við höldum fjölmörg námskeið fyrir fagaðila sem starfa með ungu fólki: Flaggskipið okkar þar er námskeið sem heitir Verkfærakistan. Í ár erum við að mennta 300 kennara og aðra fagaðila á þessu námskeiði þar sem megináherslan á námskeiðinu er lögð á að þjálfa fagaðila í að vinna með hópa og einstaklinga sem eiga í samskipta- og félagslegum vanda. Við leggjum mikið upp úr faglegu starfi og til að mynda erum við með einstaklinga frá Háskóla Íslands sem eru að rannsaka hvaða árangri þetta námskeið skilar. Við höfum fengið mjög góð við- brögð við Verkfærakistunni því sam- hliða námskeiðinu nýta kennararnir verkfærin með bekknum sínum. Með rannsókninni vonumst við til að fá nánari þekkingu á því hvaða þættir skipta mestu máli og af hverju,“ segir Jón. „Í næstu viku höldum við hjá KVAN kynningarfundi þar sem fólki gefst tækifæri til að koma til okkar og kynna sér námskeiðin okkar. Frítt er á kynningarfundina. Sjá nánar á kvan.is KoMdu á Flug Með KVAN Að öðlast aðgengi að eigin styrkleikum Kynningarfundir n Vináttuþjálfun, þriðjudaginn 9.jan. kl.19 n KVAN fyrir ungt fólk 13-25 ára, miðvikudaginn 10. jan. kl.19:00 n KVAN fyrir fullorðnar, miðvikudaginn 10. jan. kl.20:15 Hábraut 1a, Kópavogi. Skráðu þig á www.kvan.is Næstu námskeið n KVAN fyrir fullorðna hefst 24. jan. n KVAN fyrir 13–15 ára hefst 22. jan. n KVAN fyrir 16–19 ára hefst 23. jan. n KVAN fyrir 20–25 ára hefst 25. jan. n Vináttuþjálfun fyrir 7–9 ára hefst 27. jan. n Vináttuþjálfun fyrir 10–12 ára hefst 24. jan. Jón Halldórsson, Anna guðrún Steinsen, Vanda Sigurgeirsdóttir, Jakob Frímann Þor- steinsson, eigendur og þjálfarar hjá KVAN. Katrín Vignisdóttir, þjálfari hjá KVAN. Sandra Björg Helgadóttir, þjálfari hjá KVAN. Anna lilja Björnsdóttir, þjálfari hjá KVAN. KVAN fyrir ungt fólk á öllum aldri.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.