Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Síða 20
20 sport Helgarblað 5. janúar 2018
Þ
að ríkir góðæri í íslensk-
um fótbolta og launin
hafa hækkað gríðarlega
á síðustu árum. Leik-
menn eru farnir að koma heim
á besta aldri í stað að þess að
vera úti í atvinnumennsku
þrátt fyrir að hafa tækifæri
til þess. Þeir sem leikið hafa
í miðlungsgóðum liðum á
Norður löndunum hafa það í
flestum tilvikum betra í stærstu
liðum Íslands þar sem laun og
önnur hlunnindi eru mikil.
Sjö atvinnumenn hafa snúið
heim í vetur í Pepsi-deild karla
og einn öflugasti leikmaðurinn
í íslenskri kvennaknattspyrnu
ákvað að koma heim. Ekki er
útilokað að fleiri bætist í hóp-
inn áður en boltinn fer að rúlla.
Sá tími er liðinn þegar leik-
menn reyna að halda sér úti
eins lengi og hægt er og koma
síðan heim. Launin eru slík að
það hefur verið óþarfi að strita
úti í hinum stóra heimi. Ekki er
óalgengt að leikmenn í þessum
gæðaflokki séu með meira en
eina milljón króna í laun þegar
peningar og hlunnindi eru tek-
in saman. Bestu lið landsins
hafa marga í þeim launaflokki
í sínum röðum.
Mörg stór nöfn hafa komið
heim en ekkert er þó stærra en
Birkir Már Sævarsson sem er
fastamaður í íslenska lands-
liðinu. Birkir á öruggt sæti í
byrjunarliði Íslands en kaus
samt sem áður að koma heim.
Það verður því leikmaður í
Pepsi-deildinni á heimsmeist-
aramótinu í Rússlandi næsta
sumar. n
hoddi@433.is
Sölvi Geir Ottesen
Var í Guangzhou R&F
Aldur: 33 ára
Staða: Miðvörður
Eftir rúm 13 ár í atvinnumennsku kemur
þessi öflugi miðvörður heim. Hann fær
rausnarlega borgað frá uppeldisfélagi
sínu, Víkingi, sem hann samdi við fyrir
jól. Sölvi hefur leikið á Norðurlöndunum,
í Kína, Rússlandi og á fleiri stöðum. Hann
kemur heim með mikla reynslu og verða
gerðar miklar kröfur til hans í Víkinni.
Kristinn Steindórsson
Var í GIF Sundsvall
Aldur: 27 ára
Staða: Sóknarmaður
Á besta aldri ákveður Kristinn að koma
heim, en hann var einn af þeim sem
voru í miðlungsliði á Norðurlöndunum.
Það er ljóst að hann hefur það jafn
gott hér á Íslandi ef ekki betra en hann
hafði það launalega séð í Svíþjóð.
Kristinn vildi ekki fara í uppeldisfélag
sitt, Breiðablik, og samdi við FH.
Hallbera Guðný
Gísladóttir
Var í Djurgårdens IF
Aldur: 31 árs
Staða: Vinstri bakvörður
Ein besta knattspyrnukona
Íslands ákvað að koma
heim og semja við Val. Hall-
bera er algjör lykilmaður í
kvennalandsliðinu og hefði
vel getað haldið áfram
í atvinnumennsku, en
hugurinn leitaði hins vegar
heim. Þeir sem vel þekkja
til segja að Hallbera sé með
launahæstu leikmönnum
í sögu íslenska kvennafót-
boltans. Mikill styrkur fyrir
Val og Pepsi-deildina að fá
hana heim.
Birkir Már Sævarsson
Var í Hammarby
Aldur: 33 ára
Staða: Hægri bakvörður
Birkir Már er annar tveggja atvinnu-
manna sem hafa snúið heim. Birkir
hefur átt fast sæti í íslenska lands-
liðinu og er algjör lykilmaður þar.
Hann hefur verið að spila sín bestu ár
á ferlinum en ákveður að snúa heim,
það er mögnuð staðreynd að leik-
maður Vals muni verða í byrjunarliði
Íslands á HM næsta sumar. Hægri
bakvörður Vals mun berjast við Lionel
Messi, einn besta knattspyrnumann
sögunnar.
Hallgrímur
Jónasson
Var í Lyngby
Aldur: 31 árs
Staða: Miðvörður
Hefur verið í atvinnumennsku frá árinu
2009 og gert það gott. Hann hélt til
á Norðurlöndunum og gerði vel. Fjöl-
skyldan ákvað að flytja til Akureyrar
og Hallgrímur kom í kjölfarið. Hann var
eftirsóttur biti en kaus að fara heim á
Norðurlandið. Hann mun spila í hjarta
varnarinnar með Guðmanni Þórissyni
og eiga þeir að geta búið til eina
öflugustu vörn landsins.
Góðæri í
íslenskum
fótbolta
Kristinn Freyr
Sigurðsson
Var í GIF Sundsvall
Aldur: - 26 ára
Staða: - Miðjumaður
Þessi öflugi miðjumaður ákvað að
snúa aftur heim eftir eitt ár í atvinnu-
mennsku. FH og Valur háðu afar harða
baráttu um hann sem varð til þess að
hann gat farið fram á góð laun. Kristinn
var besti leikmaður Pepsi-deildarinnar
áður en hann hélt út í atvinnumennsku
og styrkir Val mikið. Hann er að koma
heim á besta aldri og ætti að verða
stjarna í Pepsi-deildinni á næstu leiktíð.
Hjörtur Logi Valgarðsson
Var í Örebro
Aldur: 29 ára
Staða: Vinstri bakvörður
Eftir sex ár í atvinnumennsku ákvað
Hjörtur Logi að snúa heim
og samdi við uppeldisfélag
sitt, FH. Hjörtur á að baki tíu
A-landsleiki og kemur heim
á góðum aldri. Atvinnu-
mennskan hefur ekki
alltaf verið dans á rósum
fyrir Hjört en hann kemur
til með að styrkja FH
gríðarlega.
Guðmundur Kristjánsson
Var í Start
Aldur: 28 ára
Staða: Miðjumaður
Guðmundur kemur heim og semur við FH
eftir að hafa verið í sex ár í atvinnumennsku.
Þessi öflugi miðjumaður hafnaði uppeldisfé-
lagi sínu, Breiðabliki, og valdi að fara í risann
í Hafnarfirði. Þrátt fyrir að hafa getað verið
áfram úti kaus Guðmundur að flytja
heim með fjölskyldu sinni.
Mikill styrkur fyrir FH-inga
að krækja í hann.