Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Síða 24
24 fólk - viðtal Helgarblað 5. janúar 2018 É g kem hingað og æfi á hverj- um degi að fyrirskipun lækn- isins. Sem er gott því staður- inn er eins og félagsheimili. Hingað mætum við eldri mennirn- ir og grobbum okkur.“ Fyrir þremur árum fékk Skúli alvarlegt heilablóðfall og hjartaáfall sem olli því að hann á erfitt með sjón og að halda jafnvægi. Hann var virkilega hætt kominn en sem bet- ur fer var hann á Landspítalanum þegar hann fékk áfallið. „Ég var á réttum stað. Annars væri ég ekki hér,“ segir Skúli. „Ég segi söguna þannig að ég hafi ætlað að skreppa yfir og hitta Jón Pál. En þá sá ég Jesú og þennan svarta með horn- in sem ætluðu að ná mér en ég var svo fljótur og hljóp hingað til baka aftur.“ Skúli er hættur að vinna, keyrir ekki og á erfitt með heimilisverk en hann hefur ekki tapað gleðinni eða kímnigáfunni. Hann er enn sama persónan og Íslendingar kynntu- st í sjónvarpinu hjá Hemma Gunn og Ómari Ragnarssyni. Eldra fólk- ið í Salalaug heilsar upp á hann, óskar honum gleðilegs nýs árs og til hamingju með nýja heiðurinn. Þú varst frægur maður á Ís- landi? „Ég var nokkuð vel þekktur. Nú er ég aðallega frægur á elliheim- ilunum,“ segir Skúli og hlær. Fæddist fjórar merkur Skúli er Austfirðingur og hálfur Færeyingur, fæddur á Fáskrúðs- firði árið 1948. Móðir hans kom hingað ung frá Færeyjum og starf- aði sem húsmóðir en faðir hans fiskmatsmaður. Hvað áttu mörg systkini? „Þau eru svo mörg að ég man ekki töluna, átta eða níu, en ég og Sigurþór erum tvíburar.“ Fæst- ir myndu þó trúa því vegna þess að þeir eru eins og nótt og dagur að sögn Skúla. „Ég fæddist fjórar merkur en hann þrettán. Þetta var vegna þess að ég lá bak við fylgj- una, hélt í tána á Sigurþóri – hlýt- ur að vera, og dróst með. Hann át allt frá mér.“ Var þetta hættuleg fæðing? „Nei, þetta var góð fæðing. Það átti samt ábyggilega að henda mér með fylgjunni en það sást einhver öldugangur sem reyndist vera ég.“ Skúli hefur alltaf verið lágvaxinn og tók út vöxt seinna en jafnaldrar hans. Hvernig barn varst þú? „Ég hlýt að hafa verið óþægur. En þegar ég var mjög lítill var ég þægur því ég var með svo óþrosk- uð lungu að ég blánaði þegar ég ætlaði að fara að rífa mig. Ég var ári á eftir með allt vegna smæðarinn- ar. En ég var snöggur að hlaupa.“ Var þér strítt í skóla? „Já, auðvitað var manni strítt. Þessi áratugur var fullur af fordóm- um. Í dag væri þetta kallað einelti. En þá var þetta kallað stríðni og maður átti bara að höndla það, sem ég gerði. Þeir gerðu grín að mér fyrir smæðina og tóku mig í gegn. En ég var svo fljótur að ég gat yfirleitt hlaupið í burtu.“ Sá glóandi hraunhnullung lenda á höfði Skólagöngunni lauk eftir barna- skólann og þá tók heimur hins vinnandi manns við. „Ég var send- ur í sveit, það var ekki hægt að nota mig í annað. Sigurþór fór á sjóinn af því að hann var svo stór og sterkur en það vildi mig enginn. Ég prófaði tvisvar sinnum að fara á „Enginn má segja neitt, þá er hann tekinn í nefið“ Skúli Óskarsson var nýverið tekinn inn í heiðurshöll ÍSÍ fyrir árangur sinn sem kraftlyftinga- maður á áttunda og níunda áratug síðustu aldar. Hann var þá með þekktustu mönnum landsins, ekki aðeins fyrir fítonskraftinn heldur einnig litríkan persónuleika. Skúli dró sig í hlé og hleypti krafta- jötnum á borð við Jón Pál Sigmarsson og Magnús Ver Magnússon inn í sviðsljósið en í heimi lyftinga er Skúli talinn brautryðjandi. Kristinn Haukur hitti Skúla í Salalauginni í Kópavogi þar sem hann æfir daglega og ræddi við hann um æskuna, lyftingaferilinn og erfitt mál sem kom upp eftir þakkarræðuna hjá ÍSÍ. Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is „Ég var ekki að gera lítið úr fötluðu fólki og ég meinti þetta vel. Sjálfur er ég orðinn fatlaður. Lukkunnar pamfíll „Ég var heppinn, bæði með sportið og fjölskylduna.“ Myndir SiGtryGGur Ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.