Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Qupperneq 33
Hollari lífsstíllHelgarblað 5. janúar 2018 KYNNINGARBLAÐ
Yellow SelfoSSi
Bragðmikill, hollur
og fljótlegur matur
Við opnuðum í fyrra og við skilgreinum þennan mat sem heilsusamlegan skyndibita.
Þetta er hreint fæði, hollur og góður
matur sem allir geta borðað,“ segir
Magnús Már Haraldsson, matreiðslu-
maður og einn eigenda veitinga-
staðarins Yellow sem staðsettur er að
Austurvegi 3, Selfossi. Staðurinn er
með sterkar heilsuáherslur sem hafa
mælst vel fyrir – en ekki síður kunna
viðskiptavinir vel að meta þjónustuna
sem er bæði hröð og góð.
„Hér er svo margt fólk á ferðinni og
við hugsum þetta þannig að fólk geti
bæði stoppað og borðað á staðnum
og tekið matinn með sér, jafnt heitan
sem kaldan mat. Þægilegt fyrir þá
sem eru á ferðinni,“ segir Magnús.
Á staðnum er jafnframt huggulegt
kaffihús og verslun þar sem seldar
eru ýmsar lúxusmatvörur, áhuga-
verðar matreiðslubækur og fleira.
„Hér er salatbar þar sem þú velur
þér í skál og svo erum við með heitt
borð þar sem þú getur valið þér
kjúkling, nautakjöt og grænmetisrétti.
Þú velur jafnframt sósu og meðlæti.
Við erum með mikið af mat fyrir
grænmetisætur og veganfólk en
einnig mat fyrir alla aðra. Segja má
að salatbarinn og heita borðið séu
helsta aðdráttaraflið hjá okkur. fjöl-
breytnin er mikil og það er alltaf hægt
að setja réttina saman á nýjan hátt.“
Á staðnum er einnig kælir þar sem
hægt er að grípa með sér tilbúna
drykki, samlokur og skyrdrykki.
„Ég vil gjarnan að maturinn sé
bragðmikill því það er ekki skemmti-
legt að borða bragðlausan mat. en
ég legg líka upp úr því að krydda
hann á fremur náttúrulegan hátt og
notast við hreint krydd,“ segir Magnús
sem er menntaður matreiðslumaður.
Hann er ánægður með hvað Yellow
hefur verið vel tekið og ljóst að eftir-
spurnin eftir bragðgóðu og fljótlegu
heilsufæði er mikil.
Yellow er opinn virka daga frá
kl. 8 til 20 og um helgar frá 9 til 20.
Góður morgunverður er í boði frá
opnun á morgnana og heitur matur
strax frá klukkan tíu.
Nánari upplýsingar eru á Face-
book-síðunni Yellow Selfossi.