Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Blaðsíða 35
Hollari lífsstíllHelgarblað 5. janúar 2018 KYNNINGARBLAÐ
BooztBarinn
Leiðandi í skyrdrykkjum
og öðrum heilsudrykkjum
Það er mikil hreyfing í samfé-laginu í átt til aukinnar hollustu og Booztbarinn hefur á margan
hátt verið leiðandi í þeirri þróun enda
hefur hann starfað allt frá árinu
2003, er fyrsti Booztbarinn var opn-
aður í Kringlunni.
„Við vorum í nokkrum ólgusjó í
byrjun því þessir skyrdrykkir voru mikil
nýjung á Íslandi. Við opnuðum síðan
staðinn í Borgartúninu árið 2007,“
segir Kristinn ingi Sigurjónsson hjá
Booztbarnum en staðirnir í dag eru
þrír: Á n1 Hringbraut á n1 í Borgar-
túni 39 og á n1 Ártúnshöfða.
Booztbarinn hefur notið sífellt meiri
vinsælda í gegnum árin, viðskiptavin-
um fjölgar mikið og vöruúrvalið eykst
sífellt: „Breiddin hefur aukist mikið.
Þó að skyrdrykkir séu langvinsælustu
drykkirnir sem við seljum þá höfum
við bætt við ýmsu öðru, til dæmis
vegandrykkjum með möndlu-, kókos-
og hrísmjólk. Síðan erum við með
nýja vöru sem heitir orkuskálar. Það
eru skyrhræringar sem við hellum
út í skálar og við toppum síðan með
ferskum ávöxtum og granola. Þessir
réttir njóta mikilla vinsælda. Drykkir
með viðbótarpróteini njóta líka stöð-
ugt meiri vinsælda, ekki síst hjá þeim
sem fara mikið í ræktina og eru að
lyfta.“
að sögn Kristins er bæði hægt að
neyta drykkjanna sem aukabita og
sem heillar máltíðar. „Það fer eftir því
hvers konar rétt þú velur og hvaða
stærð,“ segir Kristinn en aðspurður
segir hann að þessi fæða sé í senn
mjög næringarmikil og hitaeininga-
snauð: „Þú ert að fá mjög mikla nær-
ingu úr skyrinu, ávöxtunum, græn-
metinu, fræjunum og höfrunum sem
þú ert að innbyrða en hitaeiningarnar
eru fáar. Þú færð mikið prótein og
mikið kalk sem er svo gott fyrir beinin,
en hitaeiningarnar eru ekki margar.
Það eru til dæmis ekki nema um 70
hitaeiningar í 100 grömmum af skyri.“
að sögn Kristins verður viðskipta-
arna, verslunastjóri hjá Booztbarnum
í Borgartúni
orkuskálar sem slegið hafa í gegn Engiferskot bæði til að taka með og njóta á staðnum
Hin fullkoman tvenna Combo: Boozt
og ferskir ávextir
Fjölbreyttir drykkir á Booztbarnum:
Hið eina sanna SkyrBoozt – Ferskur
safi – Vegandrykkir
vinahópurinn sífellt fjölbreyttari og
karlar sækja ekkert síður í þessa
heilnæmu fæðu en konur: „Viðskipta-
vinahópurinn kemur okkur skemmti-
lega á óvart en við fáum til dæmis
mjög oft rafvirkja, pípara og aðra
iðnaðarmenn sem mæta í vinnugall-
anum í morgunmat eða hádegismat,“
segir Kristinn.
„Það er einnig gaman að sjá full-
trúa lögreglu og slökkviliðs mæta í
fullum skrúða á Booztbarinn til þess
að sækja sér orku. Hingað koma mjög
margir fastagestir sem hafa átt við-
skipti við okkur árum saman, nokkuð
sem sýnir best að við höfum verið á
réttri leið,“ segir Kristinn.
Þess má geta að Kristinn er eini
karlmaðurinn í stjórnendahópi Boozt-
barsins: „Verslunar- og rekstrarstjór-
ar fyrirtækisins eru allt konur. Ég gæti
ekki hugsað mér öflugri félagsskap.
Þetta er skemmtilegur vettvangur að
vinna á og allt sem við gerum hér er í
stöðugri þróun. Gæðaeftirlitið er mik-
ið og við fylgjumst vel með því sem
við erum að kaupa inn, veljum bara
besta mögulega hráefnið og erum
sífellt að þróa nýja drykki.“
Booztbarinn er á öllum þremur
stöðunum opinn frá 7.30 til 20.00
virka daga og frá 10.00 til 18.00 um
helgar. Nánari upplýsingar eru á
vefsíðunni booztbarinn.is og Face-
book-síðu Booztbarsins https://www.
facebook.com/booztbar/
Vinsælt Combo:
Speltklatti og
drykkur