Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Síða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Síða 36
Hollari lífsstíll Helgarblað 5. janúar 2018KYNNINGARBLAÐ Flestir þekkja græn-metið frá Lamb-haga, margar tegundir af brakandi fersku salati, sem og kryddjurtirnar, enda algeng sjón í matvöru- verslunum og á matar- borðum landsmanna. Sífellt aukin áhersla á vistvæna framleiðslu veldur stöðugt aukinni eftirspurn eftir vörum Lambhaga og hefur fyr- irtækið stækkað mikið á undanförnum árum. „Við höfum náð mikilli hag- ræðingu og framlegð og höfum ekki þurft að hækka verð síðan árið 2011. Ég þekki ekkert annað fyrirtæki á Íslandi sem hefur verið með sama framleiðslu- verð í sex ár en gengur enn vel,“ segir Hafberg Þórisson, eigandi Lamb- haga. Hann stofnaði fyrirtækið árið 1979 en meðeigandi í dag er bróðir hans, Ásmundur Þórisson. Áhersla á hreinleika og vistvæna framleiðslu Frá árinu 2011 hefur Lambhagi stækkað fimmfalt en jafnframt er lögð sífellt þyngri áhersla á hreinleika og vistvæna framleiðslu „Húsakosturinn er kominn upp í 15.000 fermetra úr 2.900 fermetrum. Við erum komin með betri ræktunar- aðferðir sem við erum búin að tileinka okkur. Við höfum jafnframt náð því takmarki að verða eins umhverfisvæn og hægt er að vera. Við erum með lokað rými þannig að flugur og fuglar komast ekki inn. Hreinlæti er mikið og við erum með hringrásarkerfi sem hreinsar allt vatn sem við látum frá okkur og við endurnýtum það. Þá erum við búin að taka í notkun stóra pottavél þar sem pottarnir eru búnir til úr þar til gerðum pappír en áður var notast við plastpotta. Pappírinn eyðist á 45 dögum. Sem merki um afköstin notum við um átta milljón potta á ári,“ segir Hafberg. Hrein vara og engin eiturefni Hafberg bendir á að neytendur kalli eftir hreinna grænmeti en því sem er innflutt: „Innflutta varan er alltaf úðuð með eiturefnum, líka sú sem sögð er vera lífræn, það eru viss efni sem má nota og þau eru notuð. Við notum hins vegar engin slík efni í okkar afurðir, við notum einfaldlega bara vatn og hreinlæti við okkar framleiðslu,“ segir Hafberg. Gróðrarstöð Lambhaga er að Lambhagavegi 23, 113 Reykjavík, en stendur á jörðinni Lambhaga sem hefur verið bújörð frá því í kringum árið 1200 og er enn lögbýli í dag. Heimasíða fyrirtækisins er www.lambhagi.is og Lambhagi er einnig á Facebook. GRænmetI FRÁ LambHaGa eR eInStakLeGa HReIn VaRa Vistvæn ræktun – betra bragð

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.