Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Blaðsíða 36
Hollari lífsstíll Helgarblað 5. janúar 2018KYNNINGARBLAÐ
Flestir þekkja græn-metið frá Lamb-haga, margar
tegundir af brakandi
fersku salati, sem og
kryddjurtirnar, enda
algeng sjón í matvöru-
verslunum og á matar-
borðum landsmanna.
Sífellt aukin áhersla á
vistvæna framleiðslu
veldur stöðugt aukinni
eftirspurn eftir vörum
Lambhaga og hefur fyr-
irtækið stækkað mikið á
undanförnum árum. „Við
höfum náð mikilli hag-
ræðingu og framlegð
og höfum ekki þurft að
hækka verð síðan árið 2011. Ég þekki
ekkert annað fyrirtæki á Íslandi sem
hefur verið með sama framleiðslu-
verð í sex ár en gengur enn vel,“ segir
Hafberg Þórisson, eigandi Lamb-
haga. Hann stofnaði fyrirtækið árið
1979 en meðeigandi í dag er bróðir
hans, Ásmundur Þórisson.
Áhersla á hreinleika og vistvæna
framleiðslu
Frá árinu 2011 hefur Lambhagi
stækkað fimmfalt en jafnframt er
lögð sífellt þyngri áhersla á hreinleika
og vistvæna framleiðslu
„Húsakosturinn er kominn upp í
15.000 fermetra úr 2.900 fermetrum.
Við erum komin með betri ræktunar-
aðferðir sem við erum búin að tileinka
okkur. Við höfum jafnframt náð því
takmarki að verða eins umhverfisvæn
og hægt er að vera. Við erum með
lokað rými þannig að flugur og fuglar
komast ekki inn. Hreinlæti er mikið og
við erum með hringrásarkerfi sem
hreinsar allt vatn sem við látum frá
okkur og við endurnýtum það. Þá
erum við búin að taka í notkun stóra
pottavél þar sem pottarnir eru búnir
til úr þar til gerðum pappír en áður
var notast við plastpotta. Pappírinn
eyðist á 45 dögum. Sem merki um
afköstin notum við um átta milljón
potta á ári,“ segir Hafberg.
Hrein vara og engin eiturefni
Hafberg bendir á að neytendur kalli
eftir hreinna grænmeti en því sem er
innflutt:
„Innflutta varan er alltaf úðuð með
eiturefnum, líka sú sem sögð er vera
lífræn, það eru viss efni sem má nota
og þau eru notuð. Við notum hins
vegar engin slík efni í okkar afurðir,
við notum einfaldlega bara vatn og
hreinlæti við okkar framleiðslu,“ segir
Hafberg.
Gróðrarstöð Lambhaga er að
Lambhagavegi 23, 113 Reykjavík, en
stendur á jörðinni Lambhaga sem
hefur verið bújörð frá því í kringum
árið 1200 og er enn lögbýli í dag.
Heimasíða fyrirtækisins er
www.lambhagi.is og Lambhagi
er einnig á Facebook.
GRænmetI FRÁ LambHaGa eR eInStakLeGa HReIn VaRa
Vistvæn ræktun
– betra bragð