Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Síða 41

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Síða 41
Ma nn am ót Vikublað 5. janúar 2018 Áramótaboð margrétar DanaDrottningar Mætti á skósíðum pels og fór heim í gullvagni Margrét Danadrottning, fjölskylda hennar og föruneyti skartaði sínu fegursta í árlegu áramótaboði sem fór fram í Kaupmannahöfn þann 3. janúar. Þar tók hún á móti nokkrum sendiherrum í Kristjánsborgarhöll umkringd sínu nánasta fólki og her vígalegra varðmanna sem að venju standa vaktina við höllina. Daginn eftir sneri frúin svo til Amalíu- borgar í gylltum hestvagni frá árinu 1840. Látum myndirnar tala sínu máli. Blessaðir strákar! Varðmennirnir standa hnarreistir þegar drottn- ingin kemur í hús í Kristjánsborgarhöll. sendiherrar, eða frúr? Þessar glæsilegu konur starfa sem sendiherr- ar í Kaupmannahöfn en í miðjunni stendur Carla Sands, sendi- herra Bandaríkjanna. Stórglæsileg. heilsað upp á gesti Margrét heilsar upp á Cörlu Sands, sendiherra Bandaríkjanna. Við hlið drottningarinn- ar standa Friðrik krónprins og María prinsessa. föruneyti drottningar Þessir flottu kappar fylgdu drottningunni úr hlaði þegar hún hélt heim til sín. ágætar móttökur Þessir kappar tóku á móti Mar- gréti Danadrottningu þegar hún kom aftur til Amalíuborgar. góð í gullvagninum Hér er haldið fast í hefðirnar. Daginn eftir hið árlega áramótaboð, þar sem Margrét Danadrottning heilsar upp á sendiherra hinna ýmsu landa, heldur hún heim á leið í gullslegnum hestvagni sem var smíðaður árið 1840.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.