Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Blaðsíða 43
Vikublað 5. janúar 2018
Myndlistarkonan Katrín Inga leggur áherslu á hvíld og virkjun sköpunarkraftsins.
Mér finnst skipta mestu máli að öllum líði vel og að það sé góð orka
inni á heimilinu. Sambland af frelsi
og virðingu. Heimili mitt er líka
vinnustaðurinn minn og þannig
sameinast lífið og listin í rýminu
stofa og eldhús sem verður líka að
vinnustofu. Strákunum mínum
er til dæmis velkomið að nota allt
sem þeir finna í sína eigin tilrauna-
starfsemi en um leið þekkja þeir
muninn á dýrum listaverkum og
efnivið í sköpun, sem segir mér að
það er skipulag í þessari óreiðu,“
segir myndlistarkonan.
Ertu dugleg að taka til?
„Já og nei. Ég er eiginlega meiri
vinnufíkill en húsmóðir. Ég geri
samt sem áður alveg bæði í einu,
sem sagt vinn og geng frá, en oft
leyfi ég mér ekki að vaska upp fyrr
en ég er búin að skrifa eitthvað
ákveðið mörg „email“ eða ljúka
öðrum verkum. Sumir taka alltaf
fyrst til og fara svo að læra eða
vinna en mér finnst best að vaska
upp eftir matinn þegar ég er búin
með vinnuna mína þann daginn,“
segir Katrín enda vinnusöm með
eindæmum.
Svarta eldhúS-
hIllan „Þetta er ein-
hvers konar listaverka-
hilla sem Eva Ísleifs
smíðaði þegar hún var
að læra húsgagnasmíði
á sínum yngri árum. Ég
eignaðist hana þegar
það átti að henda
henni fyrir nokkrum
árum en ég hef grætt
mikið á ruslaferðum
þessarar vinkonu
minnar og kollega í
gegnum tíðina. Karl-
styttan er eftir Steinunni
Gunnlaugsdóttur en
silfurboxið við hliðina á
henni er eftir Ásdísi Sif
Gunnarsdóttur. Hægra
megin við grísku
styttuna er svo vígt vatn
eftir Loga Bjarnason
sem ég hef enn ekki
tímt að nota í neitt.“
Katrín á trommunum
Inni í miðri stofunni stendur
fínasta trommusett sem
Katrín gaf eldri syni sínum
í afmælisgjöf fyrir nokkrum
árum. Sjálf kann hún að
spila einn takt en stefnir á
að læra aðeins fleiri. „Það
kemur sér reyndar mjög
vel fyrir bæði börn og
fullorðna að hafa svona
útrásartæki í stofunni. Það
fer mjög vel saman að hafa
svona trommur í stofurým-
inu. Píanó og trommusett
ættu að vera í öllum
stofum.“
KóSí með KóngulóarmannInum „Margir líta á listamenn sem algjöra letingja en það er auðvitað ekki þannig. Staðreyndin er nú samt sú að bestu hugmyndirnar
verða oftast til uppi í rúmi, eða þar sem maður er í hvíld. Hvíldin er bæði góð og nauðsynleg og eitt af því góða við að vinna heima er að maður getur líka lagt sig. Allir
vinnustaðir ættu að bjóða upp á hvíldarherbergi.“
„Mér finnst
skipta mestu
máli að öllum líði vel
og að það sé góð
orka inni á heimilinu.
Sambland af frelsi
og virðingu.
Katrín Inga Jónsdóttir
Hjördísardóttir myndlistar
kona býr í skemmtilega
skrautlegu einbýlishúsi í
Vesturbænum í Reykjavík.
Henni finnst lykilatriði að
hafa helst bæði trommusett
og píanó í stofunni enda
einarður talsmaður þess
að bæði heimilisfólk og
gestir fái óhindraða útrás
fyrir sköpunarkraftinn.