Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Page 44

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Page 44
Vikublað 5. janúar 2018 Nýtt verk í viNNslu „Hér er sönnun þess að ég ligg ekki bara uppi í rúmi eða sit á klósettinu allan daginn. Þarna birtist afrakstur hvíldarinnar.“ kvöld hiNNa glötuðu verka „Þetta skilti er auglýsing frá myndlistarkvöldi sem við Eva Ísleifs héldum hér heima. Við héld- um gjörningakvöld þar sem við buðum listamönnum að fremja gjörning í stof- unni. Þetta snerist um að bjóða fólki heim að sjá listaverk. Okkur fannst það eitthvað spennandi. Það myndar öðruvísi tengsl.“ stofa og lesherbergi „Þetta er dæmigert svæði listamannsins þar sem hann er með bedda og leslampa til að hugleiða næsta listaverk. Þetta er sófi heimilisins en líka beddi listamannsinhs og íverustaður barnanna. Þarna sitja stundum fjórir guttar að spila í Playsta- tion og stundum liggja þarna svakalegir listamenn að pæla eða amma eða mamma að ræða fjölskyldumál.“ Myndir Sigtryggur Ari eldhúskrókur og eldhús- borð „Gullgripurinn er verk eftir sjálfa mig frá því ég var í BA-námi í Listaháskólanum. Síðar meir varð þetta lykilverk á einkasýningu minni í Nýlistasafninu en þar gerði ég marga svona gripi og verðlaunaði bæði lista- og fræðimenn sem hafa frætt mig með þekkingu sinni og kunnáttu í gegnum tíðina.“ listaverk um allt „Stóra blómið er jólaskraut eftir Evu Ísleifsdóttur, myndin af andlitinu er eftir Akab, ítalskan lista- mann, og þar fyrir ofan sjáum við, frá vinstri, aðra mynd eftir Evu sem ég hirti eftir að hún var búin að henda henni, í miðjunni er gamalt verk eftir mig sem ég sýndi á Mokka þegar ég var í kringum tvítugt og svo er rauða myndin eftir Rakel MacMahon.“ myNdir uppi um alla veggi Katrín segir þennan vegg í ganginum nýtast afburða vel undir hvers konar myndlist. Sjálf heldur hún þarna á verki eftir sjálfa sig sem hún gerði árið 2015 en myndin er til sölu í Gallerí Ekkisens við Bergstaðastræti.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.