Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Síða 47
Vikublað 5. janúar 2018
Auður er að mestu uppalin í Mosfellsbæ, dóttir þeirra Sigríðar Halldórsdóttur og
Jóns Gunnars Ottóssonar sem er
forstöðumaður Náttúrufræðistofn-
unar. Þau skildu þegar Auður var
rétt orðin unglingur en þá skrifaði
móðir hennar fyrir ýmsa fjölmiðla,
meðal annars Helgarpóstinn,
Mannlíf, Vikuna, Þjóðviljann og
Ríkisútvarpið, auk þess að gera
heimildamyndir. Dóttirin unga
heillaðist upp úr skónum af þess-
um starfa móður sinnar og þannig
má segja að hún hafi sjálf leiðst út
á ritvöllinn.
„Mér fannst þetta bæði töff
starf og flott tilvera hjá mömmu.
Fljótlega eftir skilnaðinn eignaðist
hún þýskan kærasta, fjölmiðla- og
kvikmyndargerðarmann, sem
fræddi mig mikið um fjölmiðla
þar í landi og á sama tíma var ég
líka að uppgötva Isabelle Allende,
Ástu Sigurðar og fleiri skrifandi
konur. Mér fannst allt sem tengdist
blaðamennsku og ritstörfum alveg
ótrúlega flott og spennandi,“ rifjar
hún upp, og ekki leið á löngu þar
til hún þreytti frumraun sína i
blaðamennsku.
„Tólf ára gamlar gáfum við
Sunna Ósk Logadóttir út okkar
fyrsta skólablað sem þótti tak-
ast alveg sérlega vel. Svo vel að
krakkarnir í gaggó eignuðu sér
heiðurinn af því þótt þeir hefðu
hvergi komið nálægt útgáfunni.
Mér finnst þetta mjög skemmtilegt
í ljósi þess að Sunna varð síðar
fréttastjóri hjá Morgunblaðinu,“
segir Auður og brosir að minn-
ingunni. Ekki leið svo á löngu þar
til hún bankaði upp á hjá Morgun-
blaðinu og bauð fram krafta
sína – ekki sem blaðberi heldur
blaðamaður! Þá aðeins fimmtán
eða sextán ára.
Bæturnar hærri en launin
„Ég talaði við Jóhönnu Kristjóns-
dóttur og bað um að fá að skrifa
blaðagrein um hvað fólk á mínum
aldri væri ólíkt innbyrðis. Ólíkir
hópar og svona. Hún tók mjög vel í
þetta og það var sko aldeilis uppi á
mér typpið þegar ég fékk blaðaljós-
myndara með mér niður í bæ til að
vinna að greininni! Ég sagði öllum
sem ég þekkti frá þessu og var al-
veg sjúklega montin, en því miður
fékk enginn að sjá útkomuna því
greinin birtist aldrei á prenti. Ég
varð auðvitað ákaflega miður mín
og vissi ekkert við hvern ég átti að
tala en svo útskýrði Agnesi Braga-
dóttir fyrir mér að helgarblaðið
hefði bara allt eyðilagst í einhverju
frumstæðu tölvuklúðri. Mér fannst
þetta auðvitað alveg hræðilegt en
það var þó huggun harmi gegn
að ég fékk bætur frá Mogganum.
Ávísun með dágóðri upphæð sem
Agnes benti góðlátlega á að myndi
tæpast vera greidd fyrir blaða-
greinar mínar í framtíðinni,“ segir
Auður og hlær.
Finnst ekkert merkilegra að skrifa
skáldsögu en blaðagrein
Hún var engu að síður komin á
rétta sporið því rúmlega tvítug
byrjaði hún að skrifa kjallara-
greinar fyrir DV að áeggjan Silju
Aðalsteinsdóttur. Það var svo
eftir útkomu fyrstu skáldsögunn-
ar (Stjórnlaus lukka) að Gunnar
Smári Egilsson réð Auði sem
blaðamann í fullt starf á fylgiritið
Fókus sem þá var gefið út með DV
og allar götur síðan hefur hún ritað
bæði greinar og pistla í hin ýmsu
dagblöð og tímarit sem hér hafa
verið gefin út. Aðallega í lausa-
mennsku og á milli skáldsagna.
„Mér finnst ekkert merkilegra
að setjast niður og skrifa skáldsögu
en að skrifa pistil eða taka viðtal
við merkilegan viðmælanda. Með
öðrum orðum finnst mér blaða-
mennskan hreint ekkert ómerki-
legra en starf rithöfundarins. Það
er sama gleðin sem fer í þetta og
mér hefur alltaf þótt skemmtilegt
að blanda saman ólíkum formum
af miðlun upplýsinga. Til dæmis að
skrifa bók í blaðastíl og öfugt eða
tengja ritgerðir inn í bókarformið
sem samfélagsrýni eða pælingar,“
segir hún og bætir við að blaða-
mennskan hafi jafnframt örvað
hana til að pæla í hlutum sem síðar
skila sér í skáldsögurnar. „Það
kemur alltaf eitthvað nýtt út úr
þessu sem ég nota svo seinna meir
í bókunum.“
Bestu hugmyndirnar spretta úr
samtölum ólíkra hópa
Nú hafa margir svolitlar áhyggjur af
framtíð prentmiðla. Að fólk nenni
ekki að lesa blöð eða bækur og þetta
sé allt á niðurleið. Hefur þú svipað-
ar áhyggjur?
„Nei, ekkert sérstaklega.
Áhyggjur mínar snúast meira um
menningarumræðuna sem slíka,
eða réttara sagt skortinn á henni.
Þá er ég ekki bara að tala um ein-
hverja gagnrýni eða bókaumfjöllun
heldur djúpa og umfangsmikla
samfélags- og heimsrýni sem
endurspeglast til dæmis frá sam-
tölum eða umræðum milli ólíkra
greina úr hugvísindageiranum. Við
þurfum að heyra samtöl um bók-
menntir, listir, heimspeki, stjórn-
mál, félagsvísindi, raunvísindi og
svo framvegis í upplýsandi sam-
hengi sem veitir okkur innblástur.
Bestu hugmyndirnar spretta oftast
upp úr góðum samtölum ólíkra
hópa. Í stóru helgarblöðunum
víðast hvar erlendis eru svona
umræður mjög áberandi en hér fer
lítið fyrir þeim, þrátt fyrir einlægan
áhuga almennings. Við viljum og
þurfum á svona upplýsingum og
samtölum að halda alveg eins og
fréttum og fréttaskýringum,“ segir
Auður sem er þessa dagana að taka
saman efnivið í bók sem tengist
þessum áhyggjum. Bókina vinnur
hún í samstarfi við blaðakonurnar
Steinunni Stefánsdóttur og Báru
Huld Beck. Titillinn, Þjáningar-
frelsið, er vel við hæfi en bókin,
sem Forlagið gefur út, er væntan-
leg í búðir eftir nokkrar vikur.
Blaðamenn ekki síður
mikilvægir en góðir læknar
„Gæði, eða skort á gæðum, í
íslensku fjölmiðlaumhverfi má
líklega fyrst og fremst rekja til þess
að hér er ekki borin nægilega mikil
virðing fyrir blaðamönnum – þver-
öfugt við það sem tíðkast í flestum
öðrum löndum. Sjálfri finnst mér
góðir blaðamenn ekki minna
mikilvægir en góðir læknar eða
lögmenn. Það þarf hins vegar að
gera þeim kleift að sinna starfi sínu
vel og búa þeim starfsumhverfi
sem byggir á alþjóðlegum gildum
og er í takt við það sem tíðkast í
öðrum virkum lýðræðislöndum,“
segir hún alvarleg í bragði.
Í Þjáningarfrelsinu skoða höf-
undarnir starfsemi innlendra fjöl-
miðla og blaðamennsku frá mörg-
um hliðum og varpa fram ýmsum
spurningum til fjölda viðmælenda
sem hafa unnið, eða eru enn starf-
andi, í fjölmiðlabransanum.
„Þessi skortur á virðingu hefur
leitt til þess að margir blaðamenn
bera varla sjálfir virðingu fyrir
framlagi sínu af því að viðhorf
samfélagsins í þeirra garð hafa
verið of neikvæð. Þetta smitast yfir
á eigendur fjölmiðla og kemur út
með neikvæðum afleiðingum, ekki
aðeins fyrir blaðamennina sjálfa
heldur samfélagið í heild. Fjöl-
miðlafólki með mikla reynslu hefur
til dæmis verið sagt upp af því að
það er komið með „of há laun“
miðað við kjarasamninga. Reynslan
er einfaldlega rekin í burtu og gæð-
in með. Hvernig dettur fólki þetta í
hug?“ spyr hún og hristir höfuðið.
„Það skýrir sig kannski sjálft hvers
vegna fólk endist ekki alltaf lengi í
faginu. Léleg laun og lítið starfsör-
yggi er ekki almennt það sem fólk
sækist eftir í lífinu. Það velur að
fara annað með reynsluna.“
Reynsluboltar úr blaðamennsku
gerast frekar almannatenglar
Hún tekur dæmi um blaðamenn
með tíu til tuttugu ára reynslu sem
velja frekar að gerast almanna-
tenglar, eða upplýsingafulltrúar hjá
stórum fyrirtækjum.
„Þá erum við kannski með þaul-
vana manneskju sem þekkir allar
hliðar viðskiptalífsins á Íslandi en
í stað þess að vinna við greiningu
og upplýsingamiðlun hjá fjölmiðli
sem síðan er deilt með almenningi
þá velur viðkomandi frekar að ráða
sig sem upplýsingafulltrúa eða al-
mannatengil. Það starf gengur svo
út á að matreiða upplýsingar fyrir
blaðamenn sem hafa kannski verið
eitt ár á ritstjórn. Það segir sig
sjálft að svona ójafnvægi getur ekki
orðið samfélaginu til góða. Eigend-
ur fjölmiðla þurfa nauðsynlega að
axla ábyrgð og sýna hana í verki,
meðal annars með því að halda í
góða blaðamenn og umbuna þeim
í takt við framlagið,“ segir hún.
„Annars kemur þetta bara niður á
gæðunum og það fer ekki framhjá
neinum.“
Hún tekur dæmi um netblaða-
menn sem vinna undir kröfu um
mikla framleiðslu á fréttum. Enda
velgengni margra vefmiðla enn
mæld í smellum.
„Það þarf allt að gerast svo
hratt. Vinnulagsreglurnar geta
orðið undir og það er kannski
enginn ritstjóri að fylgjast al-
mennilega með nýliðum á
ritstjórn. Hraðinn verður mikil-
vægari en gæði framleiðslunnar og
það gefst lítill tími til að vinna
Auður Jónsdóttir er flestum landsmönnum kunn
fyrir skemmtilegar skáldsögur sínar en færri tengja
hana við blaðamennsku þótt hún hafi starfað við hvort
tveggja um margra ára skeið. Margrét H. Gústavsdóttir
heimsótti Auði í nánast galtóma íbúð við Barónsstíg
á öðrum degi nýárs. Þær ræddu meðal annars um
þjáningarfrelsi og arfaslæmt vinnuumhverfi íslenskra
blaðamanna, lífsfögnuðinn í miðaldra krísunni og
hvernig fólk birtist í öðru ljósi eftir skilnað.
Margrét H. gústaVsdóttir
margret@dv.is
Þjáningarfrelsi
íslenskrA BlAðAMAnnA
„svo giftist
ég fertugum
sjómanni fyrir vestan
þegar ég var um
tvítugt og náði þar
með einhvers konar
botni.
„Ef við, sem
samfélag,
byrjum á því að
sýna framlagi
blaðamanna
meiri virðingu þá
getum við gert
skýrari kröfu á
eigendur um að
koma betur fram
við þessa stétt.