Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Blaðsíða 52
Vikublað 5. janúar 2018
Birta mælir með...
Kaffivagninum
Grandinn er nýi Laugavegurinn. Á
gamla góða Kaffivagninum
er hægt að fá flatköku með
hangikjöti og fína fiskrétti. Þar eiga
heimamenn líka enn svolítið athvarf frá
blessuðum túristunum – þó að við elsk-
um þá auðvitað helling (í jöfnu hlutfalli
við evrurnar og dollarana).
Sundi
Auðveldara aðengi að einstakri
heilsubót er varla hægt að
finna. Í sundi sameinast útivera,
hreyfing og slökun. Allt fyrir örfáar krón-
ur í hvert skipti. Mælum með að keypt
séu að minnsta kosti tíu tíma sundkort.
Það fæst niðurgreitt hjá stéttarfélögum.
Black Mirror
Frábærir vís-
indaskáldsögu-
þættir á Netflix.
Hver þáttur er
um klukkutíma
langur og
allar sögurnar
eru spunnar
út frá áhrifum
samfélags- og
netmiðla á
hegðun okkar
og samskipti.
Magnaðir
þættir.
Hafragraut með
eplakökubragði
Blandaðu rifnum eplum eða eplamauki,
smá hnetusmjöri og kanil út í hafragraut-
inn og þú borðar eplaköku í morgunmat.
Algjört sælgæti.
LifeFactory
drykkjar-
flöskum úr gleri
Helstu eigin-
leikar þess að
nota vatnsbrúsa
úr gleri er sá
að gler er
náttúruleg afurð
og gefur ekki
frá sér óbragð
sem smitast út
í innihaldið.
Vatnsbrúsana
frá LifeFactory
má setja í
uppþvottavél
og þeir halda
vökvanum jafn
vel og peli.
Fást hjá Muffin-
topkiller.is og
kosta rúmar
5.000 kr.
Lax er og verður alltaf herra-manns matur. Hann er fullur af góðum næringarefnum
og vítamínum og hver sem er
duglegur að borða lax mun hafa
gott af. Þó ekki sé nema bara fyrir
allt D-vítamínið sem í honum er.
Fyrir fólk sem vill draga úr
kjötneyslu er laxinn líka alveg
frábær valkostur á grillið en eins
og við Íslendingar vitum er hægt
að grilla úti allt árið um kring.
Þessi ljúffengi réttur kemur
úr smiðju Guðbjargar Finns-
dóttur, íþróttakennara hjá G-Fit í
Garðabæ. Hann er mjög fljótlegur
og því tilvalinn helgarmatur fyrir
upptekið fólk sem langar að fá sér
eitthvað gott og heilsusamlegt að
borða en nota líka helgina til að
slaka svolítið vel á og eyða ekki
óþarfa tíma í eldamennsku svona
rétt eftir áramótin.
Rétturinn inniheldur jafnframt
mangósultu eða Mango Chutney,
sem er mikið notað með ind-
verskum mat og gefur skemmti-
lega sætt en um leið kröftugt
bragð.
n 1 stórt laxaflak
n 1 krukka af góðu Mango Chutney
aÐfERÐ
Laxinn er settur á álpappír, Mango
Chutney er smurt ofan á flakið og
látið bíða, eða marinerast, í tvo til
þrjá klukkutíma. Síðan er laxastykk-
ið grillað í um tíu mínútur á háum
hita eða haft í ofni á 210 gráðum í
jafn langan tíma.
n 5% sýrður rjómi, ein dós
n Steinselja
n Vorlaukur
n Pipar
aÐfERÐ
Saxið steinselju og vorlauk mjög fínt og
hrærið út í sýrða rjómann. Kryddið með
grófum pipar og látið standa í svolitla
stund, gjarna inni í ísskáp.Með þessum
fljótlega og heilsusamlega rétti er gott að
bera fram sætar kartöflur í ofni eða brún
hýðishrísgrón, fer eftir smekk. Gott og
ferskt salat er líka frábært með sem og
ískalt kranavatn með sítrónu eða lime.
LAXINN LÉTT SÓSA
uPPSKRifT
Fljótlegur og
heilsusamlegur lax í ofni
„Fyrir fólk sem vill draga úr kjötneyslu
er laxinn líka alveg frábær valkostur
á grillið en eins og við Íslendingar vitum er
hægt að grilla úti allt árið um kring.
Bara 10 mínútur á grilli eða í ofni
um helgina
Stórtónleikar Rótarý og afhending styrkja
Tvær listakonur fá 800 þúsund hvor á Rótarý tónleikum í Hörpu á sunnudag
Stórtónleikar Rótarý á Ís-landi verða haldnir í Norð-urljósasal í Hörpu sunnu-
daginn 7. janúar klukkan 17.00, en
tónleikar þessir hafa verið árlegur
viðburður í tónlistarlífinu í meira
en tvo áratugi.
Rótarýhreyfingin veitir
árlega styrk til framúrskarandi
tónlistafólks sem er við það að
ljúka háskólanámi á sínu sviði
og er hópurinn sem hlotið hefur
styrkinn úr tónlistarsjóði Rótarý
afar glæsilegur. Þær Jóna G.
Kolbrúnardóttir söngkona og
Hrafnhildur Marta Guðmunds-
dóttir sellóleikari hljóta styrkina
í ár, fjárstyrk að upphæð 800.000
króna hvor.
Um tónleikana sjá þau Ólafur
Kjartan Sigurðarsonar barítón-
söngvari og Helga Bryndís
Magnúsdóttur píanóleikari sem
flytja fjölþætta efnisskrá á forræði
Rótarýklúbbs Mosfellsbæjar.
Ólafur Kjartan Sigurðarson
nam við Söngskólann í Reykja-
vík hjá Guðmundi Jónssyni og
Ólafi Vigni Albertssyni, við Royal
Academy of Music og við Royal
Scottish Academy of Music and
Drama. Hann var fastráðinn
söngvari við Íslensku Óperuna
2001–2004 og meðal hlutverka
hans þar eru Scarpia, Macbeth,
Papageno, tveir Fígaróar (Rossini
og Mozart), Schaunard og
Tarquinius. Ólafur Kjartan var
fastráðinn við óperuna í Saarbrüc-
ken en hefur undanfarin misseri
starfað sjálfstætt og syngur víða
um heim.
Helga Bryndís Magnúsdóttir
hóf tónlistarnám við Tónlistar-
skólann í Vestmannaeyjum. Síðar
nam hún við Tónlistarskólann í
Reykjavík og lauk þaðan prófi sem
einleikari og píanókennari árið
1987. Aðalkennari hennar þar var
Jónas Ingimundarson píanóleikari.
Framhaldsnám stundaði Helga
Bryndís hjá Leonid Brumberg í
Vínarborg, Liisu Pohjola og Tuiju
Hakkila í Helsinki. Eftir að námi
lauk hefur hún tekið virkan þátt
í tónlistarlífinu á Íslandi bæði
sem einleikari og í kammermúsik
ýmiss konar og þá ekki hvað
minnst með söngvurum.
Hún starfar nú sem píanóleik-
ari við Listaháskóla Íslands og
tónlistarskólana í Reykjanesbæ
og Kópavogi. Hún er meðlimur í
Caput-hópnum. Skömmu fyrir jól
kom út geisladiskur þar sem Helga
Bryndís leikur tvö öndvegisverk
eftir Schumann.
Styrkþegar hafa jafnan látið
í sér heyra við verðlaunaaf-
hendinguna og að þessu sinni
mun Jóna syngja fyrir gestina en
Hrafnhildur Marta verður erlendis
og þarf því að láta í sér heyra síðar.
Hins vegar mætir sérstakur
gestur á tónleikana, ung og sérlega
efnileg stúlka, Ásta Dóra Finns-
dóttir sem stundar nám í píanóleik
hjá Kristni Erni Kristinssyni. Hún
mun leika unaðsverk eftir Frédéric
Chopin á tónleikunum.
Miða á tónleikana má kaupa á
vefnum TIX.is eða í Hörpu.
ÓlafuR KjaRTan SiguRÐaR-
Son Nam við Söngskólann í
Reykjavík hjá Guðmundi Jónssyni
og Ólafi Vigni Albertssyni, við
Royal Academy of Music og við
Royal Scottish Academy of Music
and Drama.
HElga BRyndíS magnúS-
dÓTTiR Helga hóf tónlistarnám
við Tónlistarskólann í Vest-
mannaeyjum. Síðar nam hún við
Tónlistarskólann í Reykjavík og
lauk þaðan prófi sem einleikari og
píanókennari árið 1987.
HRafnHilduR maRTa guÐ-
mundSdÓTTiR SEllÓlEiKaRi
Hrafnhildur Marta verður erlendis
en mun spila síðar fyrir Rótarý
félaga.
jÓna g. KolBRúnaR-
dÓTTiR Jóna hlýtur styrk
800.000 króna styrk og Hrafn-
hildur fær sömu upphæð.