Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Page 55
menning 55Helgarblað 5. janúar 2018
1 Ungir strákar - deep mix - Floni
2 Já ég veit - Birnir og Herra Hnetusmjör
3 Út í geim - Birnir
4 Rockstar - Post Malone og 21 Savage
5 B.O.B.A. - JóiPé og Króli
6 Trappa - Floni
7 Labbilabb - Herra Hnetusmjör
8 Oh shit - JóiPé og Króli
9 Perfect duet - Ed Sheeran og Beyoncé
10 Havana - Camila Cabello, Young thug
1 Star Wars: The Last Jedi
2 Jumanji
3 Ferdinand
4 Pitc Perfect 3
5 The Greatest Showman
6 Coco
7 The Disaster Artist
8 Daddy's Home 2
9 Undir trénu
10 Wonder
Vinsælast í bíó
Helgina 29.–31. desember
Vinsælast á Spotify
Mest spilun 4. janúar
Metsölulisti Eymundsson
Vikuna 20.–26. desember
1 Saga Ástu - Jón Kalman Stefánsson
2 Gatið - Yrsa Sigurðardóttir
3 Sakramentið - Ólafur Jóhann Ólafsson
4 Myrkrið veit - Arnaldur Indriðason
5 Mistur - Ragnar Jónasson
6 Þitt eigið ævintýri - Ævar Þór
7 Fuglar - Hjörleifur/Rán
8 Syndafallið - Mikael Torfason
9 Amma best - Gunnar Helgason
10 Elín, ýmislegt - Kristín Eiríksdóttir
gildi og hann sá að myndirnar
gætu átt erindi í sýningarrýmum
og á vettvangi myndlistar. Brautin
lá þó ekki bein áfram. Sköpunar-
þörfin minnkaði svo hann hætti
raunar algjörlega að taka myndir
um nokkurra ára skeið.
„Það kom langt tímabil þar
sem ég var ekki að gera neitt. Þrátt
fyrir að ég væri ekki að taka mynd-
ir fylgdist ég með og hafði mikl-
ar skoðanir á samtímaljósmynd-
un, graffheiminum og öllu þessu,
var mjög gagnrýninn. Ég var al-
gjör áhorfandi en var samt ekkert
bitur út í sjálfan mig, ég vissi að
þetta myndi koma aftur til mín.
Ég var bara í lægð og leyfði mér
að vera það,“ segir hann og rifjar
upp augnablikið sem ljósmynda-
ástríðan spratt óvænt upp aftur.
„Það var fyrir svona tveimur og
hálfu ári þegar ég var að ganga í
gegnum garðinn hjá Landakots-
kirkju. Ég hitti gamlan félaga, að-
eins yngri en ég, sem ég hafði ver-
ið að mynda frá því að hann var
svona 12 eða 13 ára. Hann hafði
verið í mikilli óreglu og sat þarna
með vini sínum þar sem þeir voru
að reykja einhvern vindling, ein-
hverja jónu. Hann kallaði á mig,
sagðist hafa verið útskrifaður af
spítala sama dag, lyfti upp peys-
unni og sýndi mér stungusár.
Hann spurði hvort ég vildi ekki
taka mynd af honum. Ég hafði
ekki verið að taka myndir í svo-
lítinn tíma svo ég gat bara tekið
mynd á símann minn. Þegar ég
gekk heim hugsaði ég að héðan
í frá skyldi ég alltaf vera með
myndavél á mér. Núna skyldi
þetta byrja upp á nýtt. Ég fann
einhvern rosalegan kraft og hef
ekki stoppað síðan.“
Upp frá þessu hefur Þórsteinn
alltaf verið með 35 millimetra
„point-and-shoot“ filmuvél með
sér og segir að í dag fái hann nán-
ast martraðir um að vera ekki
með myndavél til að mynda það
sem drífur á daga hans – ekki fyrir
aðra heldur einfaldlega sem eins
konar skrásetningartæki.
Dulúð, hætta og fegurð
Augnablikin sem hann fangaði
úr umhverfi sínu og deildi á sam-
félagsmiðlinum Instagram fóru
smám saman að vekja athygli og
umtal. Eins og áðurnefnd mynd
sem tekin var í garði Landakots-
kirkju voru þær harðar og hráslaga-
legar, þær birtu veruleika sem er
yfirleitt falinn undir yfirborðinu,
djamm og dóp, jaðarhópa og
glæpamenn. Þórsteinn rifjar til að
mynda upp ljósmyndaröð þar sem
hann hafði leitað uppi ólögleg skot-
vopn í undirheimum borgarinnar.
„Þetta var á þeim tíma þegar
það var mikið verið að tala um
hvað það væri mikilvægt að lög-
reglan þyrfti að vopnast. Mig lang-
aði að athuga af hverju lögreglan
væri að hugsa svona, hvort það
væri eitthvað til í þessu. Ég fór með
félaga mínum í að kanna þetta, og
við fundum alls konar stöff sem ég
fékk að taka myndir af. Í eitt skipti
var ég pikkaður upp um miðja
nótt, keyrður út á land, þar sem ég
fékk að kíkja inn í vopnabúr. Þarna
voru árásarrifflar, handsprengjur
og alls konar dót sem ég hafði
aldrei séð áður nema í bíómynd-
um. Ég prófaði árásarriffilinn sjálf-
ur, þetta var alvöru dót, ekki eitt-
hvað blöff. Þetta var allt virkt. Þetta
voru hins vegar ekki vopn sem
voru notuð í neinu glæpatengdu
dæmi, ekki ætlað til að meiða eða
drepa, heldur voru þau keypt sem
safnarahlutir – eins fáránlega og
það hljómar kannski.“
En þó að harka og jafnvel ljót-
leiki hafi stundum einkennt mynd-
irnar leggur Þórsteinn áherslu á
fegurðina sem er oftar en ekki til
staðar: „Ég sæki ósjálfrátt í að-
stæður þar sem er einhver dulúð,
einhver hætta, spenna og jafn-
vel ljótleiki, en um leið og mað-
ur finnur hið mannlega í þessum
aðstæðum verður það sem róm-
antískt og fallegt. Oft eru þetta að-
stæður sem hinn venjulegi maður
vill aldrei lenda í, en það er mann-
eskja þarna og það er fallegt.“
Alsæla ungdómsins
„Með árunum er ég samt að fjar-
lægjast þessa glæpaljósmyndun
og er smám saman farinn að ein-
beita mér að öðru,“ segir Þór-
steinn. En þessi breyting sést
meðal annars á borgarlandslags-
myndum sem hann hefur verið
að vinna að undanförnu, sem og
einkasýningu hans sem haldin var
síðasta sumar – þeirri fyrstu í ára-
tug.
Í verkefninu sem hann kallar
„Juvenile Bliss“, og mætti kannski
íslenska sem Alsæla unglings-
áranna, blandaði hann saman
myndum sem hann hafði tek-
ið af sér og vinum sínum á ung-
lingsaldri og svo myndum af ung-
lingahóp í dag sem hann fékk
„Kannski er þetta
einhver hæfileiki
sem maður þjálfast í eða
er fæddur með en ég á
mjög auðvelt með að fá
fólk til að treysta mér.
… um ógnvænlegar aðstæður
„Ef ég er aðstæðum sem ég er pínulítið
hræddur í, þá fer mér að líða þægilega
vegna þess að þetta á að vera erfitt –
„no pain, no gain“ er sagt í ræktinni. Um
leið og þetta er farið að ganga rosalega
smurt fyrir sig og allt mjög þægilegt,
allar myndirnar mjög flottar, þá er ég að
gera eitthvað vitlaust. Ætli ég hafi ekki
bara verið hræddastur þegar ég var að
taka myndir af unglingunum – saklaus-
asta fólki sem ég hef myndað. Ég var
hræddastur um að þau myndu dæma
mig og finnast ég vera skrýtinn.“
Hirðljósmyndari undirheimanna
Lífið í gámum Að undanförnu
hefur Þórsteinn fylgt eftir
tveimur mönnum sem hafast
við í gámabyggð fyrir heimilis-
lausa úti á Granda. MynD XDeAthrow
Bakgrunnur í veggjalist Þórsteinn hóf ljósmynda-
feril sinn þegar hann skrásetti list og lífsstíl vina sinna
sem voru virkir í að skreyta veggi Reykjavíkur í óþökk
góðborgaranna. MynD XDeAthrow