Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Síða 56

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Síða 56
56 menning Helgarblað 5. janúar 2018 að fylgja eftir og ljósmynda í sínu hversdagslega lífi. Sem hluta af seríunni tók hann einnig portrett- myndir af einstaklingum í hópn- um á „large-format“ filmu, en það gerir honum kleift að framkalla myndirnar mjög stórar og ná- kvæmar. „Við könnumst öll við það að vera á þessum aldri, áður en ábyrgðin, áhyggjurnar, stressið og óöryggi varðandi framtíðina kemur. Þú ert frjáls undan þessu og laus við það. Þér er í raun al- veg sama hvað þú gerir því þér finnst ekki vera neinar afleiðingar. Þetta endurspeglast í því hvernig þú talar, hvernig þú hagar þér og hvaða skoðanir þú hefur. Og mér finnst það endurspeglast í mynd- unum. Mér finnst þetta vera svo dýrmætt tímabil í lífi hverr- ar manneskju. Þess vegna lagði ég svona mikla vinnu í að mynda þessa krakka, það er einhver neisti sem að mað- ur sér. Á meðan ég var að gera þetta fékk ég að vera partur af þessu, fékk þessa vímu aftur, og ætli maður hafi ekki ver- ið að sækjast eftir því að ein- hverju leyti líka.“ Fannst þér mikið hafa breyst á þessum áratug, eru þessir krakkar öðruvísi en þinn vinahópur þegar þú varst unglingur? „Minn hópur var talsvert agressífari, meira glæpagen í okkur. Það var miklu meira verið að dæma. Kannski eru einhverjir svoleiðis vitleys- ingar ennþá þarna úti, en þess- ir krakkar eru miklu hreinni, óhræddari við að klæða sig eins og þeir vilja án þess að vera dæmd- ir fyrir það. Ég held að samfélag- ið sé að batna mikið hvað þetta varðar – það er allt í lagi að vera samkynhneigður, vera skringi- lega klæddur, eða vera nörd. Það er bara kúl að vera þú sjálfur.“ Heimili í gámum Eitt ef þeim verkefnum sem Þór- steinn einbeitir sér að um þess- ar mundir er ljósmyndaserían Container Society, í henni fylgir hann eftir tveimur mönnum sem hafast við í gámabyggð fyrir heimilislausa á Grandanum. „Ég hef svolítið verið að taka svona deadpan borgarlands- lagsmyndir að undanförnu. Sem hluta af því átti ég leið framhjá þessum skúrum úti á Granda, ég hafði vitað af þeim í mörg ár og hafði eiginlega verið smá hræddur við þá – vissi að þar byggju einhverjir ógæfumenn. Einn daginn manaði ég mig svo upp í að banka upp á, kynna mig og athuga hvert það leiddi mig. Á móti mér tók mjög indæll mað- ur sem var með gest hjá sér þann daginn. Ég spurði hvort ég mætti taka portrettmyndir, þeir tóku vel í það og daginn eftir kom ég til að mynda,“ segir Þórsteinn. „Ég hef verið í miklu sambandi við þessa menn í nokkra mánuði. Þetta eru bara skemmtilegir gaur- ar og við erum orðnir góðir vin- ir. Ég hjálpa þeim þegar ég get og svo mynda ég þá reglulega í hvers- dagsleikanum, bæði heima hjá þeim og í ýmsum verkefnum um bæ og borg, hvort sem það er að kaupa í matinn, heimsækja vin eða redda einhverjum efnum. Sumir sem hafa séð myndirnar hafa talað um hvað það sé hræði- legt hvernig þeir búa og lifa – en það er ekki endilega markmið- ið hjá mér. Þótt þetta sé að mörgu leyti ömurleg tilvera er ég ekkert að taka myndir svo fólk geti vor- kennt þeim. Þetta eru fullorðnir menn sem að taka ábyrgð á sínu lífi. Ég er ekki að reyna að búa til einhverja dramatíska sögu sem endar ógeðslega illa. En við þurfum að sjá inn í þenn- an veruleika eins og hvern ann- an. Það eru svo margir sem eru að gera tískumyndir eða taka sætar myndir af vinum sínum en ég hef ekki áhuga á því. Ég hef gaman af því að vinna með eithvað sem er undir niðri og setja það á sama stall, á sama vettvang og í sömu gæði og hitt.“ En er ekkert erfitt að fá fólk til að hleypa þér svona nálægt sér til að skrásetja lífsstíl eða tilveru sem er litin hornauga af stærstum hluta samfélagsins? „Kannski er þetta einhver hæfileiki sem maður þjálfast í eða er fæddur með en ég á mjög auð- velt með að fá fólk til að treysta mér. En ég passa mig líka á að fara aldrei yfir línuna. Ég leyfi fólki að njóta ákveðinnar friðhelgi. Ég held að þessir menn hafi bara skynjað að mér væri alvara, hafi fundið að mér var annt um þeirra réttindi og væri ekki að fara að eyðileggja eitt- hvað fyrir þeim. Þeir hleyptu mér alveg að sér strax, ég á mjög nánar og persónulegar myndir af þeim, en þeir voru alveg opnir fyrir því. Ef þú er heiðarlegur þarna úti þá treystir fólk þér.“ n Alsæla ungdómsins Í ljósmyndaseríunni Juvenile Bliss hefur Þórsteinn ljósmynd- að hóp unglinga til að fanga þann neista sem fylgir frelsi og ábyrgðarleysi unglingsáranna. Mynd XdeAtHrow … um filmuljósmyndun „Mér finnst skemmtilegra að mynda á filmu, að þurfa að bíða eftir myndunum og sjá þær seinna. Það er eitthvað við þetta augnablik þegar þú veist ekki alveg hvort þú hafir náð myndinni, svo færð þú hana í hendurnar og skannar inn og þá kemur víman – annaðhvort „þetta er beautiful“ eða í hina áttina „þetta er ekki nógu gott.“ Þá þarf maður að fara aftur og gera betur. Ég held að það sé mjög hollt fyrir ungan ljósmyndara að nota filmuna.“ … um Instagram „Instagram er frábær miðill til að koma sér á framfæri en að einhverju leyti fer hann líka að stjórna myndunum sem þú setur inn, af því að hann snýst svo mikið um að fá „like“, fá hjörtun góðu. Ég ætla bara að vera nógu mikill maður til að viðurkenna að þessi hjörtu fara alveg rangt í mig. Mér finnst þetta vera óholl skilaboð fyrir mig sem listamann. Ég gæti hafa lagt mikla vinnu í eina mynd og fæ lítil viðbrögð en svo mynda ég einhvern rappara sem er svolítið frægur þá fær sú mynd hundruð hjartna. Smám saman gæti ég þess vegna farið að birta fleiri og fleiri myndir af þekktum andlitum. Ég vil alls ekki fara að láta stjórnast af því hvað öðrum finnst, en maður gerir það samt óvart.“ Fjölbreytt mannlíf Þórsteinn hefur skrásett mannlíf og borgarlandslag Reykjavíkur í myndum sínum. Mynd XdeAtHrow Mynd XdeAtHrow

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.