Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Síða 62
62 lífsstíll - kynlíf Helgarblað 5. janúar 2018
R
æktaðu sambandið við
ÞIG. Sjálfsfróun er mikil-
væg fyrir alla – líka fólk í
samböndum. Það er hvim-
leiður misskilningur að sjálfs-
fróun sé á einhvern hátt svik við
kærastann eða eiginkonuna.
Þvert á móti er hún fyrirtaks leið
til að halda góðri tengingu við lík-
ama sinn, leyfa safaríkum kynór-
um að baða heilafrumurnar og
njóta allra þeirra gæða sem hver
og ein fullnæging getur veitt okk-
ur.
Leyfðu kynorkunni að koma
fram – líka í daglega lífinu.
Kynorka okkar snýst ekki um að
vera í sífelldum samförum, held-
ur um að finna fyrir henni og finna
að við erum kynverur og taka eftir
því lostafulla í tilverunni. Það get-
ur verið æsandi að velja mangó í
ávaxtadeildinni í Bónus. Hand-
leika mjúka og stinna ávextina,
þrýsta létt þar til sá rétti liggur
skyndilega í lófa þínum. Lyktin
sem þú finnur af konu sem geng-
ur framhjá þér í apótekinu er sú
sama og var af konunni sem þú
áttir villta nótt með á Benidorm
fyrir fimmtán árum. Lagið í út-
varpinu á meðan þú keyrir í
vinnuna er það sama og var spilað
þegar þú sást elskhuga þinn fyrst.
Njóttu fegurðarinnar og lostans í
umhverfinu!
Ræktaðu sambandið við þá
sem þú sefur hjá. Hvort sem það
hefur verið sami kunnuglegi
kroppur eiginmannsins síðustu
15 árin, eða sjóðheitt samband
við sjö ástkonur, alltaf er hægt að
rækta, næra og gera betur. Mundu
að snerting og atlot þurfa ekki
alltaf að enda með fullnæging-
um í svitabaði. Faðmlag sem var-
ir 20 sekúndur eða lengur nægir
til að koma framleiðslu ham-
ingjuhormóna líkamans af stað.
Hnoðumst meira á nýja árinu! n
Ræktaðu sambandið við þig
Kæra Ragga
Ég er kona á besta aldri (að nálg-
ast fimmtugt). Fyrir tveimur árum
skildi ég við manninn minn til
20 ára og hef nánast lifað eins og
nunna síðan. Skilnaðurinn var
töluvert áfall fyrir mig en líklega
óhjákvæmilegur þar sem kynlíf-
ið var orðið nánast jafnsjaldgæft
og jólin, og sambandið frekar eins
og hjá systkinum. Núna bý ég við
þann lúxus að vera ein í kotinu
aðra hverja viku því við deilum
forræði barnanna. Það kom mér á
óvart hversu fljótt eftir skilnaðinn
vinir og kunningjar fóru að spyrja
mig hvort ég væri ekki komin með
elskhuga, en fátt var fjær mínum
hugsunum fyrstu mánuðina á eft-
ir. Síðasta hálfa árið hef ég þó verið
að vakna úr dvalanum og finna hjá
mér löngun til að tengjast nýjum
manni. Mig langar í einhvern til
að eiga góðar stundir með, stunda
kynlíf, fara í fjallgöngur og horfa
á Netflix – en ALLS EKKI sambúð
eða flækjur. Þá kem ég að vandan-
um sem ég hef kosið að sundurliða
á eftirfarandi hátt:
1) Ég hrífst mest af mun yngri
mönnum, og held að það sé gagn-
kvæmt, en ég óttast almenningsá-
litið.
2) Ég get ekki hugsað mér að
fara á Tinder. Fyrsta tilraun mín
þar varði í tvær vikur og endaði
þegar ég var búin að sjá of marga
vini elsta sonar míns á appinu. Því
síður nenni ég að pikka einhvern
upp á barnum. Hvar á ég að finna
mann?
3i) Þessi tvö ár (og gott betur
vegna doða í sambandi undir lok-
in) hef ég ekki farið í rúmið með
manni. Ég er smeyk um að muna
hreinlega ekki hvað ég á að gera og
verða mér til skammar.
Þessi spurning er auka: Hvernig
stendur á því að karlmenn eru
svona snöggir að ná sér í nýja eft-
ir skilnað? Minn var kominn í nýja
sambúð innan nokkurra mánaða.
Með kærri kveðju,
Rósa ráðvillta
Kæra Rósa
Til hamingju með nýja lífið og
með þá miklu hamingju að vera
að vakna úr eftirskilnaðardvalan-
um. Fyrst þú settir spurningar þín-
ar fram svona skýrt og skipulega,
ætla ég að svara í sömu mynt:
Í menningu okkar hefur á ein-
hvern hátt þótt hneykslanlegra að
konur leggi lag sitt við yngri menn,
en að málum sé háttað á hinn
veginn. Við kippum okkur ekki
upp við að eldgamlir kallar sjáist
með kornungar konur upp á arm-
inn og staðalmyndir poppmenn-
ingarinnar festa þá hefð í sessi. Ég
hvet þig til að gefa skít í umhverf-
ið og fara eftir eigin sannfæringu
og smekk. Vertu Madonna eða
Demi Moore eða Brigitte Macron
eða Brynja Nordquist – allt stór-
kostlega flottar konur með miklu
yngri kærasta. Hafðu bara tjald-
stæðaregluna (e. Campsite rule)
svonefndu í huga ef þú skyldir
rugla saman reytum við mun yngri
mann. Skildu við hann í jafngóðu
eða betra ástandi en þegar sam-
bandið hófst.
Halló! Þú átt ekki heima í New
York eða Tókýó, heldur örsam-
félaginu Íslandi. Þess vegna eru
önnur lögmál sem gilda við notk-
un stefnumótaforrita eins og Tind-
er. Ég er mikill aðdáandi Tinder
enda hef ég séð urmul ljómandi
fallegra sambanda hefjast á þeim
miðli. Þú verður bara að þola að
þekkja eitt og eitt andlit þarna inni
og einfaldlega „lækar“ ekki vini
sonar þíns eða barnunga syni vin-
kvenna þinna.
Ég skil mætavel að þú nenn-
ir ekki að táldraga menn heim af
barnum, en barinn má þó ekki
vanmeta sem tækifæri til að sýna
sig, daðra smá og skapa eftirspurn.
Á Tinder er hins vegar líklegra að
allir málsaðilar séu með fulla
dómgreind og þar er hægt að gera
óskir sínar og væntingar ljósar
með skýrum hætti. Gefðu Tinder
annan séns! Svo er alltaf hægt að
nota aðrar klassískar aðferðir eins
og að byrja í kór, fara í fjallgöng-
ur með Vesen og vergangi, hella
sér í pólitískt starf eða einfaldlega
gerast frökk og gefa sig á tal við
huggulega menn í Melabúðinni
eða heita pottinum.
Þú kannt þetta alveg kona!
Ástar leikir og skylt hnoð er eins og
hjólreiðar – eitthvað sem líkaminn
getur nánast ekki gleymt. Samt er
ekkert skrítið að stressast eftir langt
hlé – finna fyrir frammistöðukvíða.
Farðu þér bara hægt, vertu hrein
og bein í stað þess að þykjast vera
heimsmethafi í kynlífi innanhúss
án atrennu. Það er nákvæmlega
ekkert að því að segja eins og er, að
þú hafir ekki stundað kynlíf lengi
og sért dálítið stressuð. Það er var-
ið í náunga sem sýnir því skilning!
Aukaspurningin þín hefur
ósjaldan verið rædd svo ég heyri
til undanfarin ár. Mér finnst þetta
líka – að karlar sem skilja séu
eldsnöggir að koma sér í ann-
að sambandi, eða jafnvel komn-
ir með annan fótinn á fast land
áður en þeir ákveða að skilja. Án
þess að hafa grjóthörð tölfræði-
leg rök föst í hendi held ég að við
getum gengið út frá því að þetta sé
rétt. Ein skynsamlegasta skýringin
sem ég hef séð snýst um aðgengi
kynjanna að félagslegu stuðnings-
neti. Konur eiga yfirleitt hóp ná-
inna vinkvenna og vinna úr tilf-
inningum sínum og sársauka með
samtölum og samveru. Því miður
er síður algengt að karlar búi yfir
þéttu stuðningsneti og geti far-
ið á trúnó í góðra vina hópi. Þess
vegna er auðveldara að kasta sér í
fang næstu konu sem verður á vegi
þeirra. Mikil einföldun – alls ekki
algilt – en þó einhvers konar nálg-
un að einhvers konar sannleika.
Ég óska þér alls hins besta á
nýju ári,
Ragga
Hægt er að senda
spurningar til Röggu á netfangið
raggaeiriks@gmail.com
Sjálfsfróun
Er mikilvæg
fyrir alla.
Rósa hrífst af yngri mönnum
Ragnheiður Eiríksdóttir Svarar
spurningum lesenda um kynlíf.