Morgunblaðið - 01.08.2017, Page 14

Morgunblaðið - 01.08.2017, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 2017 Bæjarhátíðir sumarið 2017 Akureyri skreytt með rauðu Ljósmynd/Linda Ólafsdóttir Keppni Frá kirkjutröppubruni á jaðaríþrótta- mótinu Íslensku sumarleikunum á síðasta ári. Tröppubrunið er aftur á dagskrá um helgina. Ljósmynd/Linda Ólafsdóttir Sparitónleikar Dagskránni lýkur með flugeldasýningu þar sem rauði liturinn er í aðalhlutverki. Á Sparitónleikunum á sunnudagskvöldið koma meðal annars fram Úlfur úlfur og 200.000 naglbítar.  Mikið lagt í hátíðina Eina með öllu í ár  Jaðaríþróttamótið Íslensku sum- arleikarnir haldið í annað sinn  Ókeypis á alla viðburði  Spáir góðu veðri Axel Helgi Ívarsson axel@mbl.is Útlitið hefur sjaldan verið betra, segir Davíð Rúnar Gunnarsson, framkvæmdastjóri bæj- arhátíðarinnar á Akureyri, um stöðuna á Einni með öllu og Íslensku sumarleikunum, sem verða á Akureyri um verslunarmannahelgina. „Við horfum auðvitað mikið á veðurspána. Það er engin rigning í kortunum lengur, heldur lítur út fyrir sól þannig að þetta lítur mjög vel út,“ segir Davíð ennfremur í samtali við Morgunblaðið. Skipulag og samstarf með aðilum og fyrir- tækjum á Akureyri hefur gengið frábærlega að sögn Davíðs. Valinn maður sé í hverju rúmi í tengslum við skipulagningu hátíðahaldanna. Bærinn tekur rauðan lit Sú hefð hefur skapast á Einni með öllu að bæjarbúar á Akureyri skreyti hús sín og götur með rauðum lit. „Þetta hefur tekist mjög vel og verið mjög vinsælt,“ segir Davíð um skreyting- arhluta hátíðarinnar. „Flottir vinningar eru í boði. Gefin eru verðlaun fyrir best skreyttu göt- una og best skreytta húsið.“ Fá sem dæmi íbúar best skreyttu götunnar veglegan grillkjötspakka að verðmæti 100 þúsund í boði Goða. Því er hægt að slá upp heljarinnar grillveislu, að sögn Davíðs. „Mjög skemmtilegt er að fylgjast með því sem bæjarbúar taka til bragðs. Gamla jólaskrautið er rifið fram og allt sem heitir rautt selst upp í verslunum á Akureyri fyrir verslunarmanna- helgina. Kaupmenn grípa til þess að panta auka- lega inn af rauðum skreytingum,“ segir Davíð. Aðspurður hvers vegna hafi verið ákveðið að skreyta allt í einum lit, rauðum, frekar en skipta litum niður á hverfi, segir hann að rauði liturinn sé eins konar sameiningartákn. „Við erum með rautt í stíl við hjartað, sem er í umferðarljós- unum á Akureyri, auk hjartans sem er í Vaðla- heiði. Rauði liturinn hefur því orðið að föstum lið hér á Akureyri,“ bætir Davíð við. Jaðaríþróttir sem vekja athygli Davíð segir að ljós Íslensku sumarleikanna hafi skinið skært á síðasta ári og minna farið fyrir nafni Einnar með öllu. Hátíðirnar eru þó báðar í sviðsljósinu í ár. „Þetta eru í raun tvær hátíðir sem eru í gangi hér á Akureyri. Annars vegar Ein með öllu, eins og hefur verið í langan tíma, og hins vegar Íslensku sumarleikarnir. Leikarnir eru settir upp sem skemmtilegt jaðar- íþróttamót, með keppnum og sýningum. Allt eru þetta mjög áhorfendavænir viðburðir sem vekja mikla athygli, t.d. er keppt í að hjóla niður kirkjutröppur Akureyrarkirkju.“ Hátíðin Ein með öllu er enn á sínum stað og segir Davíð að hún sé stór og vegleg í ár. Há- tíðahöldin hefjast á fimmtudag með opnun tívolís í miðbæ Akureyrar auk miðnæturopnunar Gler- ár þar sem fjöldi tónlistaratriða verður í boði. „Á föstudagskvöldið verður mikil tónleikadagskrá í miðbænum, svo er barnadagskrá á laugardaginn auk annarra stórtónleika um kvöldið. Hátíðinni lýkur með svokölluðum Sparitónleikum á flötinni við samkomuhúsið á sunnudagskvöldið,“ segir Davíð um helstu viðburði á Akureyri um versl- unarmannahelgina. Veðurfar hefur mikil áhrif Mætingin norður á Akureyri um verslunar- mannahelgina í fyrra var ekkert sérstök, að sögn Davíðs. Veðurfar hafði þá mikið að segja. „Fjög- urra gráða hiti var í hér í fyrra og 20 gráður fyr- ir sunnan þannig að helgin í fyrra var ein af þessum helgum sem við vorum ekkert ægilega ánægð með. Þetta snýst fyrst og fremst um veð- urspána. Þegar fólk leggur af stað í ferðalag heillar það ekkert að fara í átt að rigningunni,“ segir Davíð í áframhaldi. Mikill meðbyr og áhugi er fyrir hátíðunum á Akureyri í ár, svarar Davíð aðspurður, og því von á að fleiri leggi leið sína norður um helgina. Ókeypis á alla viðburði Davið segir eitt af því góða við Eina með öllu og Íslensku sumarleikana á Akureyri að frítt sé á alla viðburði hátíðanna. „Það kostar ekkert að koma hingað og skemmta sér. Fólk kemur bara ef það vill koma og er jafnframt hjartanlega velkomið,“ segir Davíð. Dagskrá hátíðar- halda á Akureyri Fimmtudagur  Miðbær Akureyrar Tívolí á plani við Skipagötu.  Miðnæturopnun Gler- ártorgs DJ Jakob Möller, Aron Brink, Dansatriði frá Steps Dance- center o.fl.  Græni hatturinn Hvanndalsbræður Föstudagur  13.00 Glerártorg Atlantsolíudagurinn. Skúffu- kaka og kakó. Leikjaland.  16.00 Akureyrarkirkja Kirkjutröppuhlaup.  18.00 Lystigarður Leikhópurinn Lotta sýnir Ljóta andarungann.  19.00 Sundlaug Akureyrar „Aqua Zumba“.  20.00 Akureyrarkirkja Óskalagatónleikar.  20.00 Miðbær Föstudagsfílingur: tónleikar. 20.00 Ráðhústorg Tían mótorhjólaklúbbur. Laugardagur  9.30 Átak líkamsræktarstöð Spinning.  10.00 Ráðhústorg Góðgerðarganga Slökkviliðs Akureyrar.  12.00 Ráðhústorg Markaður á torginu.  14.00 Miðbær Hátíðardagskrá.  16.00 Lystigarður Mömmur og möffins.  17.00 Hlíðarfjall Íslandsmót í fjallabruni.  21.00 Miðbær tónleikasvið Stórtónleikar.  22.00 Menningarhúsið Hof Dynheimaball N3-plötusnúða. Sunnudagur  12.00 Ráðhústorg Markaður á torginu.  13.00 Glerártorg Leikjaland.  14.00 Listagil Götuhjólakeppni.  14.00 Glerártorg Hæfileikakeppni.  15.30 Akureyrarkirkja Kirkjutröppubrun á hjólum.  21.00 Leikhúsflötin Sparitónleikar. Flugeldasýning. Urður Egilsdóttir urdur@mbl.is „Við höfum í raun og veru ekkert á móti því að sveitarfélög rukki inn á sitt svæði. Við setjum hins vegar ákveðið spurningarmerki við hvort það sé eðlilegt að taka ákveðinn hóp fyrir og meina honum aðgengi. Þarna erum við að hugsa um þann almannahag að geta ferðast um landið,“ segir Indriði Ragnar Grét- arsson, formaður Skotvís, en um- ræða hefur skapast í facebookhópn- um Skotveiðispjallið um hvort Húnaþing vestra hafi verið að rukka fyrir veiði á þjóðlendunni á Víðidals- tunguheiði. Það sé hins vegar ólög- legt að selja veiðileyfi á þjóðlendum, en heiðin er að hluta til eignarlönd landeigenda og hins vegar þjóð- lenda. Réttur til að afla sér matar „Sveitarfélagið er ekki að leigja út þjóðlendu,“ segir Júlíus Guðni Antonsson, sem fer með eftirlit á svæðinu fyrir hönd sveitarfélagsins og sér um að leigja út þá skála á heiðinni sem eru í eigu sveitarfé- lagsins. Hann bætir þó við að sveit- arfélagið leigi út skálana á Víðidals- tunguheiði og svæðinu um kring sem sé í eigu sveitarfélagsins. Indriði segir að þess séu dæmi að sveitarfélögin hafi rukkað skot- veiðimenn fyrir aðgang að þjóð- lendum. „Á meðan hafa aðrir fengið að keyra og ganga þarna um óáreitt- ir, svo sem hópar hestamanna, gönguhópar og fleiri. Í fyrra var það síðan staðfest af forsætisráðuneyt- inu með úrskurði að það sé óhemilt að selja veiðileyfi til fuglaveiða á þjóðlendum, þrátt fyrir að þær séu í afréttareign eða í annarri óbeinni eign. Það er hins vegar leyfilegt á jörðum í einkaeigu eða í eigu sveit- arfélaganna,“ segir hann. Hann nefnir að það hljóti að vera umhugsunarefni fyrir íbúa sveitarfélaga ef það sé farið að tak- marka afnot íbúa á því svæði sem þeir búi á. „Það hefur í áranna rás verið talinn réttur hvers og eins að geta aflað sér matar í íslenskri nátt- úru, þetta er eins og ef sveitarfélagið myndi banna berjatínslu á landi nema fólk borgaði fyrir það.“ Að sögn Indriða mun Skotvís ekki gera neitt annað í bili en fylgj- ast með málinu í Húnaþingi vestra, en hann bendir einnig á að það vanti nákvæmari kort sem sýna gps- punkta þjóðlendna og eignalanda. „Við hjá Skotvís erum komnir af stað með þá vinnu en við teljum þó að ríkið ætti að taka þátt í korta- gerðinni.“ Skotveiðimenn ósáttir við mismunun sveitarfélaga  Óhemilt að selja veiðileyfi til fuglaveiða á þjóðlendum Morgunblaðið/Ingó Veiði Skotveiði er vinsæl iðja. EIN MEÐ ÖLLU& ÍSLENSKUSUMARLEIKARNIR 2017 Það verður nóg um að vera á Akureyri um versló Tivoli, vatnaboltar, Downhill í kirkjutröppunum, upphill í gilinu, styrktarganga slökkviliðsins. Það verður Rautt þema á Akureyri um Versló #raut tAk Páll Óskar KK Aron Can Úlfur Úlfur Rúnar Eff Greta Salóme200.000 naglbítar Leikhópurinn LottaMarina og MikaelBirkir BlærGB9 ÓskalagatónleikarMömmur og MöffinsHjólabrettanámskeiðStrandblak Hópkeyrsla Tíunnar KÁ-AKÁ Sylvia Aron HannesKiller QueenVoice stjörnurVísinda VilliHæfileikakeppni unga fólksins Og svo margt margt fl.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.