Morgunblaðið - 01.08.2017, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 01.08.2017, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 2017 Garðs Apótek Sogavegi við Réttarholtsveg Opið kl. 9-18 virka daga | Sími 568 0990 | www.gardsapotek.is Appótek: www.appotek.is Einkarekið apótek í 60 ár Lágt lyfjaverð - góð þjónusta TANGARHÖFÐA 13 VÉLAVERKSTÆÐIÐ kistufell.com Það er um 80% ódýrara að skipta um tímareim miðað við þann kostnað og óþægindi sem verða ef hún slitnar Hver er staðan á tíma- reiminni í bílnum þínum? Hringdu og pantaðu tíma í síma 577 1313 STUTT ● Talið er að spurn eftir raforku í heim- inum muni aukast um 58% fram til árs- ins 2040, samkvæmt spá Bloomberg. IFS greining segir í samantekt um horf- ur á raforkumarkaði að flestir vænti þess að mesta aukningin komi frá ríkj- um í Asíu og Afríku, t.d. Indlandi og Kína, þar sem mestum hagvexti sé spáð. Bloomberg spáir því að notkun á vindorku muni aukast um 349% og notkun sólarorku fjórtanfaldast á um- ræddu tímabili. Fram kemur í samantekt IFS að sam- keppnishæfni endurnýjanlegra orku- gjafa eins og sólar- og vindorku hafi far- ið vaxandi á undanförnum árum eftir því sem þeir tæknin verður betri og ódýrari. Mörg ríki hyggjast nýta end- urnýjanlega orku í meira mæli, m.a. vegna Parísarsamkomulagsins, og því hefur verið fjárfest í tækniþróun og haldið verður áfram á þeirri braut. Spurn eftir raforku gæti vaxið um 58% til 2040 Útilífsmiðstöðin Úlfljótsvatn varð á dögunum fyrsti ferðaþjónustuaðilinn til að hljóta viðurkenningu fyrir að uppfylla gæðaviðmið vegna tjald- svæða og hostela í Vakanum, gæða- kerfi ferðaþjónustunnar. Miðstöðin varð jafnframt 101. þátttakandinn í Vakanum. Guðmundur Finnbogason, fram- kvæmdastjóri Úlfljótsvatns, segir í samtali við Morgunblaðið að ferlið hafi tekið þrjú ár og mikil ánægja sé með að hafa loksins lokið við vott- unarferlið. „Við tókum gæðavottanir fyrir tjaldsvæði og hostel og erum fyrst í því. Svo tókum við vottanir fyrir ákveðna dagskrárliði sem við erum að selja til skátahópa, og svo umhverfisvottun. Samanlagt eru þetta fleiri hundruð atriði á gátlist- anum sem við þurfum að huga að,“ segir Guðmundur. Sem dæmi um atriði sem þarf að uppfylla til að fá vottun er grænt bókhald fyrir umhverfisvottunina, aðstöðumál gesta, öryggismál, og skipulagsmál er snúa að starfsmönn- um. „Til dæmis að starfsfólk sé með skriflega samninga.“ Bættu lesljósum við Guðmundur segir að flest atrið- anna á gátlistanum hafi þegar verið til staðar, en sums staðar voru gerð- ar breytingar. „Eitt atriði var til dæmis að setja upp lesljós í gesta- herbergjum, sem allir njóta þá góðs af, þó að það snúi ekki endilega að okkar hefðbundnu viðskiptavinum, sem eru krakkar í skátastarfi.“ Guðmundur segir að vottunin hjálpi til í samskiptum við erlenda skátahópa og muni almennt hafa mikla þýðingu í framtíðinni. „Í dag hefur þetta kannski ekki mikla þýð- ingu en þetta mun hafa mikla þýð- ingu fljótlega,“ sagði Guðmundur Finnbogason. tobj@mbl.is Ljósmynd/Útilífsmiðstöðin Úlfljótsvatn Viðurkenning Glaðir starfsmenn Úlfljótsvatns við afhendinguna. Markmið með Vakanum er að efla gæði, öryggi og umhverfisvitund í ferðaþjónustu. Fyrsta hostel- og tjaldsvæðavottun  Fleiri hundruð atriði á gátlistanum Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Verulega hefur dregið úr fjölgun gistinátta á heilsárshótelum hér á landi á síðustu tveimur mánuðum. Leita þarf aftur til júlímánaðar 2014 til að finna minni fjölgun. Fjölgun gistinótta heilsárshótela er minni en sem nemur fjölgun ferðamanna á sama tímabili, segir í Hagsjá Lands- bankans. Gistinóttum erlendra ferðamanna fjölgaði um 8% í júní frá sama mán- uði í fyrra og nam 369 þúsundum. Aukningin í maí nam 6% á milli ára, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Í maí og júní fjölgaði ferðamönnum um 18-19%. Á fyrstu fjórum mán- uðum ársins jókst fjöldi gistinótta um 17-49% á fyrstu fjórum mánuð- um ársins. Í júlí var verð á þjónustu hótela og gistiheimila 17% hærra en í sama mánuði í fyrra mælt í er- lendri mynt. AirBnB sækir á „Dvalarlengd á ferðamanna á fyrri árshelmingi var 1,8 nætur að meðaltali og hefur hún dregist sam- an á hverju ári síðan árið 2012. Þessa þróun má líklegast skýra að mestu leyti með tvennu. Annars veg- ar hefur verð á hótelgistingu farið verulega hækkandi á síðustu árum í erlendri mynt og ferðamenn af þeim sökum leitað í ódýrari gistingu. Hins vegar hefur hegðun ferðamanna breyst á síðustu árum og þá ekki bara hér á landi. Ferðamenn kjósa í auknum mæli heimagistingu s.s. AirBnB og það hefur leitt til minnk- andi hlutdeildar hótela og gistiheim- ila á gistimarkaðnum,“ segir í Hagsjá. Þar kemur fram að meðalverð á hótelgistingu á fyrri hluta ársins hafi verið tæpum þriðjungi hærra en á sama tímabili í fyrra. „Þrátt fyrir að þá hækkun megi að bróðurparti rekja til styrkingar á gengi krón- unnar hafa verðhækkanir hótela og gistiheimila í krónum einnig verið töluvert miklar og langt umfram þróun verðlags hér á landi. Þannig var meðalverð á þjónustu hótela og gistiheimila tæpum 11% hærra en á sama tímabili í fyrra mælt í krónum. Verðið var 24% hærra en á sama tímabili 2015. Verðbreytingin milli fyrstu sex mánaða ársins 2016 og sama tímabils 2015 nam 12,2%. Þessar verðhækkanir í innlendri mynt eru töluvert meiri en var á ára- bilinu 2013-2015 þegar þær lágu á bilinu 1,5-4,8%,“ segir í Hagsjá. Hægir á fjölgun gistinótta hótela  Hótelgisting hefur hækkað í erlendri mynt  Sömuleiðis leita ferðamenn almennt í auknum mæli í heimagistingu  Verðhækkanir hótela í krónum hafa verið umfram þróun verðlags hér á landi Ferðamenn Meðalverð hótela mælt í krónum hefur hækkað umfram þróun verðlags á fyrri hluta árs. Morgunblaðið/Ómar Ferðamönnum fjölgar hraðar en gistinóttum » Gistinóttum erlendra ferðamanna fjölgaði um 8% í júní frá sama mánuði í fyrra og nam 369 þús- undum. » Aukningin í maí nam 6% á milli ára. » Í maí og júní fjölgaði ferðamönnum um 18-19%. » Á fyrstu fjórum mánuðum ársins jókst fjöldi gistinótta um 17-49%. » Í júlí var verð á þjónustu hótela og gistiheimila 17% hærra en í sama mánuði í fyrra mælt í erlendri mynt. 1. ágúst 2017 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 103.37 103.87 103.62 Sterlingspund 135.16 135.82 135.49 Kanadadalur 82.32 82.8 82.56 Dönsk króna 16.264 16.36 16.312 Norsk króna 12.961 13.037 12.999 Sænsk króna 12.691 12.765 12.728 Svissn. franki 106.52 107.12 106.82 Japanskt jen 0.9289 0.9343 0.9316 SDR 145.2 146.06 145.63 Evra 120.96 121.64 121.3 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 148.9639 Hrávöruverð Gull 1266.35 ($/únsa) Ál 1891.0 ($/tonn) LME Hráolía 51.6 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.