Fréttatíminn - 31.03.2017, Blaðsíða 2

Fréttatíminn - 31.03.2017, Blaðsíða 2
2 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 31. MARS 2017 Lægra verð í Lyfju lyfja.is Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á wwww.serlyfjaskra.is Liðverkir? Glucosamin LYFIS 1.178 mg glucosamin – 30 skammtapokar 20% afsláttur Einn skammtur á dag Verð: 1.766 kr. Verð áður: 2.208 kr. í apríl Ekki álitshnekkir fyrir Ríkisendurskoðun Rannskóknarskýrslan Sveinn Arason ríkisendurskoðandi hafnar því algerlega að það sé álitshnekkir fyrir embættið að athugun á aðkomu þýska bankans Hauck & Aufhäuser, að einkavæðingu Búnaðarbankans hafi ekki leitt neitt misjafnt í ljós. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir tka@frettatiminn.is „Við höfðum ekki aðgang að þess- um tölvupóstum sem undirbyggja niðurstöðu rannsóknarinnar núna. Það kom skrifleg staðfesting frá stjórnendum og endurskoð- anda bankans á sínum tíma um að þeir hefðu verið eigendur að þessum hlut. Við höfum engar rannsóknarheimildir, við getum ekki kallað menn í yfirheyrslu. Við höfum ekkert að styðjast við nema fyrirliggjandi gögn. Ef menn ætla að svíkja og blekkja, þá gera þeir það. Við getum hins- vegar vísað málum til lögreglu eða annarra stjórnvalda ef ástæða þykir til. Það liggur hinsvegar fyrir að það er ekki hægt að höfða mál á hendur þessum mönnum í dag, þessi mál eru fyrnd. Menn þurfa bara að læra af þessu og til- einka sér ný vinnubrögð. Ég tel að Ríkisendurskoðun hafi hinsvegar farið að leikreglum.“ Ríkisendurskoðun skoðaði líka og fann ekkert athugavert við hæfi Halldórs Ásgrímssonar, þá- verandi formanns Framsóknar- flokksins, til að koma að sölunni til S-hópsins en fjölskyldufyrir- tæki hans, Skinney Þinganes, græddi á einkavæðingu Búnað- arbankans. Finnst þér líklegt að stjórnvöld hafi ekkert vitað um að blekkingum hafi verið beitt? „Því ætla ég ekki að svara.“ Finnst þér ástæða til að rann- saka frekar þátt stjórnvalda? „Því ætla ég heldur ekki að svara.“ Sveinn Arason ríkis- endurskoðandi starf- aði hjá embættinu þegar rannsókn á aðkomu þýska bankans fór fram en tók ekki við embætti ríkisendurskoðanda fyrr en síðar. Stjórnmál „Kemur regluverkið í dag í veg fyrir að þessir hlutir geti endurtekið sig, og eru eftirlits- stofnanir okkar að virka,“ spyr Katrín Jakobsdóttir, þingmaður og formaður VG: „Stjórnvöld eiga að svara því með skýrum hætti áður en þau svo mikið sem snerta hlutina í bönkunum.“ Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra segist fylgjandi frekari rannsókn á einkavæðingu bankanna. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir tka@frettatiminn.is „Við erum að horfa á mjög ein- kennilega bankasölu í dag, þar koma af landsfélög við sögu eins og í þessum viðskiptum. Hvernig eru eftirlitsstofnan- ir að meta orðspor og hæfi eigenda og hvaða tæki hafa þau í höndunum. Er ver- ið að hafa okkur að fífli í viðskiptum samtímans?“ Þetta segir Katrín Jak- obsdóttir í samtali við Fréttatímann. Hún segir ekki hægt að draga aðra ályktun af lestri skýrslu Rannsóknarnefndar Al- þingis um einkavæðingu Búnað- arbankans en að stjórnvöld og almenningur hafi verið vísvit- andi blekkt. Enginn hafi gætt almannahagsmuna, hvorki stjórnvöld né eftirlitsstofnan- ir. Það hafi aldrei verið sann- reynt í raun og veru hver aðkoma þýska bankans Hauck & Aufhäuser var í raun og veru. „Fjármálaráðherra hefur nú boðað sölu á öllum hlut ríkisins í bönkunum nema litl- um hlut í Landsbanka. Við verðum að tryggja að hér sé heilbrigt fjármálakerfi. Það er algerlega skýr krafa að hálfu okkar, að rannsókn á einkavæðingu bank- anna ljúki áður en rík- isvaldið fer að hreyfa við hlutunum í bönk- unum.“ Benedikt Jóhann- esson fjármálaráð- herra sagðist, í um- ræðum á Alþingi um skýrsluna, vera þeirrar skoðunar að rannsaka eigi einkavæðingu bankanna fyr- ir hrun. Hann upplýsti þingheim að hann hefði sent Fjármála- eftirlitinu 11 spurningar sem von- andi yrðu til þess að upplýst yrði hverjir væru raunverulegir eigendur þeirra sjóða sem keyptu þrjátíu prósenta hlut í Arion-banka. Er verið að hafa þjóðina að fífli í viðskiptum samtímans? Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra hefur sent Fjármálaeftirlitinu spurningar um raun- verulega kaupendur Arion-banka. Katrín Jakobsdóttir segir að það sé algerlega skýr krafa, að rann- sókn á einkavæðingu bankanna ljúki áður en ríkisvaldið fer að hreyfa við hlutunum í bönkunum. Viðskipti/Stjórnmál Aðkoma Hauck & Aufhäuser að kaup- unum á Búnaðarbankanum er bara einn angi einkavæðingar bankanna sem verið hefur á huldu. Stóru fréttirnar í skýrslu rannsóknarnefndarinnar um aðkomu þýska bankans er að hann var leppur Kaupþings og Ólafs Ólafssonar sem hagnaðist ævintýralega persónulega á við- skiptunum. Aðkoma fjölskyldufyr- irtækis Halldórs Ásgrímssonar að einkavæðingu VÍS, sem var liður í einkavæðingu Búnaðarbankans og Landsbankans, er ennþá á huldu sem og hvernig Framsókn eignaðist hús sem fyrirtæki Ólafs Ólafssonar átti rétt fyrir einkavæð- ingu Búnaðarbankans. Ingi F. Vilhjálmsson ingi@frettatiminn.is Fjárfestirinn Ólafur Ólafsson er ekki eini aðilinn sem hagnaðist með leynilegum hætti á einkavæð- ingu Búnaðarbankans og tengdum málum árið 2003, eins og rakið er í skýrslu Rannsóknarnefndar Al- þingis um aðkomu þýska bankans Hauck & Aufhäuser (hér eftir H&A) að kaupunum á bankanum. Ein af stóru tíðindunum í skýrslunni, sem leynd hefur verið yfir í 14 ár, er að aflandsfélag í eigu Ólafs fékk greidd- ar 57,5 milljónir dollara til sín í gegn- um aflandsfélagið Marine Choice og voru þessar fjármunir svo notaðir til að kaupa ýmis konar verðbréf í Evrópu á árunum þar á eftir. Skýrslan hefur vakið vakið hörð viðbrögð í samfélaginu en helsta niðurstaða hennar sú að kaup þýska bankans á hlutabréfum í Búnaðar- bankanum í ársbyrjun 2003 hafi ver- ið sýndarviðskipti, blekking sem var til þess að láta yfirvöld á Íslandi og almenning halda að erlendur banki tæki þátt í kaupum S-hópsins á Bún- aðarbankanum. Þessi staðreynd um aðkomu erlends fjármálafyrirtækis að Búnaðarbankakaupunum, sem komið hefur í ljós að var blekking, var lykilatriði í þeirri ákvörðun ís- lenskra stjórnvalda að selja bankann til S-hópsins. Niðurstaðan í skýrsl- unni hefur orðið til þess að ýmsir í samfélaginu hafa byrjað að tala fyrir sérstakri rannsókn á einkavæðingu Landsbankans og Búnaðarbankans árin 2002 og 2003, meðal annars Benedikt Jóhannesson fjármálaráð- herra á Alþingi á fimmtudag. Eignaðist hlutabréf ríkisins Skömmu áður en þær blekkingar sem lýst er í skýrslunni um H&A áttu sér stað, í ágúst árið 2002, eignaðist útgerðarfélagið Skinney- -Þinganes, fjölskyldufyrirtæki Hall- dórs Ásgrímssonar, þáverandi for- manns Framsóknarflokksins og utanríkisráðherra, helmingshlut í eignarhaldsfélaginu Hesteyri á móti Kaupfélagi Skagfirðinga sem þá átti 22 prósenta hlut i eignarhaldsfé- laginu Keri hf. sem meðal annars var í eigu Ólafs Ólafssonar. Í sama mánuði, ágúst 2002, seldi ríkisbank- inn Landsbanki Íslands 50 prósenta hlut sinn í Vátryggingafélagi Íslands til S-hópsins svokallaða sem í janúar átti eftir að kaupa Búnaðarbankann. Í nóvember skipti Hesteyri á hluta- bréfunum í Keri hf. og Vátrygginga- félagi Íslands og átti í kjölfarið 25 prósenta hlut í VÍS. Fjölskylda Halldórs og Framsókn högnuðust á einkavæðingunni Þetta skiptir máli því Halldór Ásgrímsson og Framsóknarflokk- urinn settu það sem skilyrði varð- andi sölu Landsbanka Íslands til Björgólfs Guðmundssonar og sonar hans, Björgólfs Thors, árið 2002 að bankinn myndi selja hlut sinn í VÍS. Í grein í Fréttablaðinu um einkavæð- ingu bankanna árið 2005 var meðal annars sagt frá því að Ólafur Ólafs- son hefði hringt í Halldór Ásgríms- son til að þrýsta á um það við hann að hlutur Landsbankans í VÍS yrðu seldur frá bankanum. Fjölskyldufyrirtæki Halldórs eignaðist svo VÍS-bréfin í kjölfarið og hagnaðist verulega á þeim árið 2006 eftir að VÍS hafði runnið inn í eignarhaldsfélagið Exista. Skinn- ey seldi hlutabréf í Exista fyrir 4.9 milljarða árið 2006 með bókfærð- um hagnaði upp á 2.6 milljarða. Voru þessir fjármunir geymdir inni í dótturfélagi útgerðarinnar sem hét Fjörur ehf. þar til árið 2012 þegar félagið sameinaðist Skinney- -Þinganesi. Eignir Fjara ehf. námu þá 5.6 milljörðum króna. Í viðtali við DV árið 2011 sagði Halldór Ásgrímsson að hann hefði aldrei heyrt talað um félagið Fjörur og að hann vissi ekkert um starfsemi Hest eyrar. „Félagið Fjörur ehf. hef ég aldrei heyrt nefnt og hef engar upp- lýsingar um. Félagið Hesteyri ehf. hef ég heyrt getið um, en hef engar upplýsingar um starfsemi þess.“ Afsalaði sér húsi til flokksins Annar aðili sem tengist þessari einkavæðingarsögu Búnaðarbank- ans og VÍS sem hagnaðist um þetta leyti var Framsóknarflokkurinn sjálfur. Innan við einum mánuði áður en skrifað var undir kaupsamn- ing Búnaðarbankans, með meintri aðkomu H&A, afsalaði eitt af fyrir- tækjunum sem keypti bankann, Ólafur Ólafsson var ráðandi hluthafi í Keri hf. sem afsalaði sér húsi til Fram- sóknarflokksins í desember 2002 og hlutabréf í þessu sama félagi voru not- uð þegar Skinney-Þinganes eignaðist hlutabréf í VÍS sem íslenska ríkið hafði áður átt. Mynd | Pressphotos.biz Ker hf., sér húsi á Hverfisgötu 33 til Framsóknarflokksins, eða dótturfé- lags þess, Skúlagarðs hf. Ólafur Ólafsson var ráðandi hlut- hafi í Keri hf., sem áður hét Olíufé- lagið hf., í gegnum félag sitt Kjalar. Í afsalinu um viðskiptin er ekki tek- ið fram hvert kaupverðið var en þó kemur fram að það sé að fullu greitt. Einn af þeim sem skrifaði undir skjöl vegna eigendaskiptanna á húsinu var Halldór Ásgrímsson en einnig varaformaður f lokksins, Guðni Ágústsson. Á það skal einnig bent að Ker hf. er sama félagið og Skinney-Þinganes átti hlutabréf í, í gegnum Hesteyri, þar til í nóvember 2002 þegar Hest- eyri skipti á þeim hlutabréfum og hlutabréfum í VÍS sem íslenska ríkið hafði selt skömmu áður. Háður Keri hf. Ker hf., einn af kaupendum Bún- aðarbankans, var þar með leigu- sali Framsóknarflokksins um árabil fyrir einkavæðingu Búnaðarbank- ans. Hlutabréf í þessu sama fyrir- tæki, Keri hf., voru líka notuð í við- skiptunum með hlutabréf í VÍS sem Skinney-Þinganes hagnaðist ævin- týralega á. Nákvæmlega hvernig liggur í viðskiptunum með húsið á milli þessara aðila er ennþá óljóst og alls ekki fullrannsakað, ekki frekar en hlutabréfaviðskipti Skinneyjar- Þinganess í VÍS. Sama mátti segja um aðkomu Häuck & Aufhauser að kaupunum á Búnaðarbankanum þar til í vikunni að sannleikurinn um þau kom fram í dagsljósið eftir nærri 15 ára umtal og vangaveltur um þau. Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins, var lykilmaður í einkavæðingu VÍS og Bún- aðarbankans og tengist bæði þeirri ákvörðun að selja hlutabréf ríkisins í VÍS sem og viðskiptum Framsóknar- flokksins með hús sem áður var í eigu Kers hf., fyrirtækis Ólafs Ólafssonar og eins kaupanda Búnaðarbankans.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.