Fréttatíminn - 31.03.2017, Blaðsíða 46
Vinsælu íslensku hálstöflurnar
SagaMedica er leiðandi í íslenskum náttúruvöruiðnaði. Fyrirtækið var stofnað árið 2000.
Upphafið má rekja til rannsókna dr. Sigmundar Guðbjarnasonar, lífefnafræðings og fyrrum rektors Háskóla Íslands.
Unnið í samstarfi við SagaMedica
SagaMedica framleiðir nátt-úruvörur úr íslenskri hvönn en ætihvönn hefur um aldir verið talin afar mikilvirk
lækningajurt.
Ingibjörg Ásta Halldórsdóttir er
sölu- og markaðsstjóri hjá Saga-
Medica. Þegar hún er spurð um
sérstöðu vara fyrirtækisins segir
Ingibjörg:
„Íslenska ætihvönnin er uppi-
staðan í vörum SagaMedica en
mismunandi hlutar plöntunnar
innihalda efni með ólíka lífvirkni.
Hvönnin hefur mikla sögulega þýð-
ingu fyrir íslensku þjóðina enda
hefur hún sem lækningajurt skipað
stóran sess í samfélaginu allt frá
landnámstíð.
Íslenska ætihvönnin hefur ósjald-
an verið nefnd græna gullið því hér
áður fyrr notuðu Víkingar hana
sem gjaldmiðil þegar þeir áttu í
viðskiptum við Suður Evrópu.
Framleiðsluaðferðir SagaMedica
eru mjög náttúruvænar og höfuð-
áhersla er lögð á hreinleika,“ segir
Ingibjörg.
SagaMedica hefur náð góðri fót-
festu á innlendum markaði og hefur
einnig haslað sér völl á erlend-
um mörkuðum bæði í Evrópu og
Ameríku. Hjá fyrirtækinu er unnin
öflug vöruþróun. En hvað skyldi
bera hæst þessa stundina í vöru-
þróun fyrirtækisins?
„Sérfræðingar fyrirtækisins eru
stöðugt að rannsaka og þróa nýjar
afurðir sem stuðla að bættum lífs-
gæðum. Við höfum síðan í gegnum
árin verið að útvíkka vörulínuna
okkar og höfum nýlega tekið í gegn
og sett nýjar umbúðir og tegundir
fyrir Voxis hálstöflurnar. Þessar
umbúðabreytingar eru í takt við
þær breytingar sem gerðar voru
á umbúðum annarra vörutegunda
nú fyrir skömmu. Voxis verður nú
jafnframt fáanlegur sykurlaus og
sykurlaus með engifer. Voxis háls-
töflurnar eru vinsælustu hálstöflur
landsins, samkvæmt síðustu mæl-
ingum (Nielsen tölur, september
2016, Gallup á Íslandi). Töflurnar
gagnast vel við kvefi og særindum
í hálsi og mýkja röddina. Fyrir utan
það eru þær einstaklega bragðgóð-
ir og henta öllum aldurshópum. Við
fáum mikið af pöntunum erlendis
frá en ferðamenn sem hafa kom-
ið hingað til landsins hafa margir
hverjir kolfallið fyrir Voxis. Eins og
aðrar vörur SagaMedica eru Voxis
framleiddar úr hvönn en auk þess
innihalda þær mentól og eucalypt-
us. Til gamans má geta að nafnið
Voxis þýðir íslensk rödd en „vox“
þýðir rödd á latínu og „is“ er svo
landskóði Íslands. Við vitum líka af
því að söngvarar hafa notað Voxis
hálstöflurnar mikið til þess að halda
röddinni mjúkri,“ segir Ingibjörg.
Hvað er svo vinsælast varan sem
SagaMedica býður upp á?
„SagaMedica býður upp á aðrar
mjög áhugaverðar vörur úr hvönn
og fer SagaPro við tíðum þvaglát-
um þar fremst í flokki en SagaPro
er unnin úr laufum hvannarinnar.
Varan hentar vel konum og körlum
með minnkaða blöðrurýmd og
einkenni ofvirkrar blöðru sem er
algengt vandamál. SagaPro bætir
lífsgæði þeirra sem glíma við þetta
vandamál. Það hefur sýnt sig að
SagaPro fækkar mjög salernis-
ferðum jafnt að degi sem nóttu og
bætir svefninn,“ segir Ingibjörg.
Hverjir eru það helst sem kaupa
vöruna?
„Varan hentar vel fyrrgreindum
hópi en eining eru það ákveðnir
lífsstílshópar sem sækja í auknum
mæli í þessa vöru til að geta stund-
að áhugamál sín án vandkvæða,
þetta eru til að mynda golfarar,
hlauparar, göngufólk og fólk sem
stundar hjólreiðar,“ segir Ingibjörg.
Vörur SagaMedica fást í
apótekum, heilsubúðum og stærri
matvöruverslunum um land allt.
Það tók auðvitað smá tíma að átta sig á þessu en maður var fljótur að ná sér niður. Lífið heldur áfram,“ segir Viktor Örn
Andrésson matreiðslumaður sem
hlaut bronsverðlaun í hinni virtu
keppni Bocuse d’Or í lok janúar.
Árangur Viktors vakti að vonum
mikla athygli enda ekki á hverj-
um degi sem Íslendingur kemst á
verðlaunapall í keppninni. Raunar
þarf að fara 16 ár aftur í tímann til
að finna viðlíka árangur. Þeir sem
fylgjast með í veitingaheiminum á
Íslandi vita vel að Viktor er hæfileik-
aríkur og hefur hann margoft hlot-
ið verðlaun fyrir störf sín, var með-
al annars matreiðslumaður ársins
2013 og matreiðslumaður Norður-
landanna 2014.
Var boðið til Víetnam
Viktor kveðst hafa tekið sér smá tíma
til að ná áttum eftir keppnina en hef-
ur síðan tekið að sér smá verkefni,
„hingað og þangað“ eins og hann
orðar það.
Á miðvikudaginn sneri hann heim
úr þriggja vikna reisu þar sem hann
heimsótti Bandaríkin og Víetnam. Í
Víetnam fór hann á matreiðsluhátíð
en það bauðst eftir frábæran árang-
ur á keppninni í Frakklandi.
„Svo verð ég frílans fram á sum-
arið en þá fer ég að kokka í veiði-
húsi. Ég ætla að ferðast meira og
verð gestakokkur úti. Til að mynda í
Chicago í næsta mánuði en þá mun
ég kynna íslenskan fisk og lamba-
kjöt.“
Flókin eldamennska
Fyrsta stopp er þó á Grillinu á Hótel
Sögu á laugardagskvöld en þar mun
Viktor elda á sérstöku Bocuse d’Or
kvöldi. Viktor og Siggi Helga, Bocuse
d’Or fari árið 2015 og þjálfari Vikt-
ors í keppninni 2017, hafa útbúið sér-
stakan matseðil úr hráefnum sem
þeir unnu með í keppninni á sínum
tíma. Matseðillinn verður einungis
framreiddur þetta eina kvöld.
Er ekki löngu orðið uppselt?
„Jú, ég held að það séu hundrað
manns bókaðir. Það er meira en við
bjuggumst við. Við ráðum reyndar
ekki við meira í einu, þetta er ótrú-
lega flókinn matur,“ segir Viktor
sem telur að gestir verði ekki svikn-
ir af matseldinni. „Þetta verður alveg
dúndur menjú.“
Margt spennandi framundan
En aftur að framtíðinni. Hvað gerir
maður eftir að hafa náð þriðja sæti í
Bocuse d’Or?
„Nú er ég bara að hugsa um að
vera skynsamur og velja skemmti-
leg verkefni. Ég hugsa bara um sjálf-
an mig og nýt þess að fá verkefni sem
ég hefði annars ekki fengið. Eins og
þetta í Víetnam. Það er allt í lagi að
bíða aðeins og sjá hvaða dyr opnast.
Það er margt spennandi í boði og
maður er að skoða margt.“
Bocuse d’Or
veisla á Grillinu
Viktor Örn Andrésson hlaut bronsverðlaun í
Bocuse d’Or keppninni í Frakklandi á dögunum.
Hann og Siggi Helga, þjálfari hans, sem sjálfur
keppti árið 2015, hafa tekið höndum saman og
bjóða til veislu á Grillinu á laugardagskvöld.
Uppselt er á viðburðinn en gestir geta gætt sér
á keppnisréttum þeirra félaga.
Matseðillinn
Villisveppa hraun. Reyktur
þorskur & sýrð agúrka. Ísbúa
flögur.
Sjóurriði, ostrur, laukar & dill
vinaigrette – 2015
Andalifur, grísaskankar, selju-
rót & blaðlaukur – 2014
Bocuse bronze „vegan“, Jarð-
skokkar, rauðrófur, epli & lauk
gljái – 2017
Bocuse bronze „Bresse
kjúklingur & humar“ Bresse
kjúklingaleggir, andalifrar- og
jarðsveppa kúla, gulbeður,
kartöflur, kjúklinga- og humar-
gljái – 2017
Skyr, aðalbláber & kryddjurtir
Tenórinn Gissur Páll Gissurarson
notar Voxis hálstöflurnar og þær
hafa reynst honum mjög vel.
Hvað er það við hálstöflunar sem
Gissur er svona hrifinn af?
„Margir atvinnusöngvarar eru með
eitthvað svona við hendina og eiga
alltaf einhverjar hálstöflur, þar sem
röddin er okkar aðal vinnutæki.
Ég hef verið mjög hrifinn af Voxis
hálsbrjóstsykrinum því að hann
er búinn til úr ætihvönn sem er
handtínd í íslenskri náttúru. Þegar
ég prófaði hann í fyrsta skipti þá
fannst mér hann mjög góður strax
og hentaði mér mjög vel. Auk þess
að hugmyndafræðin í kringum hann
fannst mér heillandi og af því er
Voxis hálsbrjóstsykurinn mitt fyrsta
val,“ segir Gissur Páll.
Gissur Páll Gissurarson
2 | helgin. FÖSTUDAGUR 31. MARS 2017helgin