Fréttatíminn - 31.03.2017, Blaðsíða 48
4 | helgin. FÖSTUDAGUR 31. MARS 2017helgin
Snúran fagnar
þriggja ára afmæli
Verslunin Snúran er þriggja ára. Í tilefni af því verður boðið til afmælisveislu um helgina í húsakynnum
Snúrunnar að Síðumúla 21, þar sem viðskiptavinum gefst kostur að kaupa fallega hönnun á góðum kjörum.
Unnið í samstarfi við Snúruna
Þessi tími er búinn að vera alveg ótrúlega skemmti-legur og fljótur að líða og magnað að sjá hvað
verslun hérna á svæðinu er í
mikilli sókn. Þegar við fluttum
starfsemina hingað í Síðumúla 21,
fyrir tveimur árum, stóðu nokkur
búðarpláss auð en núna er ekkert
laust og mikil traffík,“ segir Rakel
Hlín Bergsdóttir, sem stóð fyrst
um sinn ein á bak við búðarborðið
en nú eru starfsmenn verslunar-
innar orðnir níu.
Þannig að viðtökurnar hafa
verið góðar? „Já, og hafa farið
langt fram úr væntingum,“ segir
hún glöð.
Snúran selur fallega
hönnunarvöru, allt frá teppum
og púðum yfir í húsgögn, og er
skandinavísk hönnun, einkum frá
Danmörku, áberandi. „Við höfum
reyndar smám saman verið að
fikra okkur yfir í fleiri vöruflokka
og bjóðum nú upp á ýmislegt
fleira tengt heimilinu,“ tekur Rakel
fram. „Svo sem danskt sælgæti
og olíur, krydd og sölt frá Frakk-
landi þannig að við einskorðum
okkur ekki við Norðurlönd.“
Hún segir gæði ráða mestu
í vöruúrvalinu en þó spili fleira
inn í. „Það skiptir auðvitað líka
máli að varan sé spennandi og
flott. Og það sama gildir um
hönnuðina. Því eftir því sem ég
starfa lengur við þetta og pæli
meira í hönnun þá finnst mér ekki
síður mikilvægt að fólkið á bak
við hana sé áhugavert. Og í raun
má segja að allar vörurnar hérna
í búðinni séu vörur sem ég gæti
hugsað mér að eiga sjálf.“
Það er greinilegt að þú hefur
mikla ástríðu fyrir starfinu. „Já,
og stundum líður mér bara hrein-
lega eins og ég sé ekki að vinna,
þetta er svo gaman,“ viður-
kennir hún. „Þegar ég var lítil
þá langaði mig alltaf til að verða
búðarkona en svo fór ég að læra
endurskoðun og vann um tíma á
endunarskoðunarstofu. Það var
ekki fyrr 2010 sem að ég ákvað
að láta drauminn rætast og fara
út í verslunarrekstur. En þá rak
ég verslun til ársins 2011 og
bauðst síðan að taka við Snúrunni
snemma árs 2014. Þetta er búið að
vera svo ótrúlega skemmtilegur
og gefandi tími. Algjört drauma-
starf.“
Rakel segist hafa farið svolítið
rólega af stað með Snúruna og því
haldið sig við netverslunarformið
fyrsta árið. „Mig langaði til að
gera eitthvað sem ég gat sinnt
heiman frá og það gekk bara mjög
vel,“ segir hún. „En þegar það
var orðin full vinna og áhugi við-
skiptavina jókst og jókst þá ákvað
ég að opna verslun.“
Og nú er Snúran þriggja ára.
Hvernig ætlið þið fagna því? „Við
ætlum að halda upp á afmælið
bæði í dag og á morgun með því
að bjóða upp á léttar veitingar á
staðnum. Salka Sól treður upp
á laugardaginn klukkan 15. Svo
verður tuttugu prósent afsláttur
af öllum vörum og þeir sem versla
yfir ákveðna upphæð fá eitthvað
skemmtilegt í kaupbæti.“
Skandinavísk hönnun einkennir Snúruna. Þar er meðal annars að finna vörur
frá danska merkinu Reflections sem er í miklu uppáhaldi hjá Rakel. „Við
erum með mjög fallega spegla og kristal í alls konar litum frá Reflections. En
vörurnar frá merkinu eiga það sameiginlegt að hafa yfir sér fallegt, gamaldags
yfirbragð sem er búið að færa í nútímalegan búning.“ Mynd | Heiða Helgadóttir
„Þetta er algjört draumastarf. Og þessi tími er
búinn að vera ótrúlega skemmtilegur og fljótur að
líða,“ segir Rakel Hlín Bergsdóttir um árin þrjú sem
hún hefur rekið Snúruna. Mynd | Heiða Helgadóttir