Fréttatíminn - 31.03.2017, Blaðsíða 26

Fréttatíminn - 31.03.2017, Blaðsíða 26
26 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 31. MARS 2017 Halla Harðardóttir halla@frettatíminn.is Þegar ég var stödd hér á kvennadeildinni fyr-ir mörgum árum síðan, ólétt að fyrsta barninu mínu, talaði ég enga ís- lensku og það var mjög erfitt fyr- ir starfsfólkið að giska á hvaðan ég væri. Ég lít út fyrir að vera einhvers- staðar frá Asíu en svo tala ég eins og Bandaríkjamaður því ég er þaðan,“ segir Edythe Mangindin sem er fædd og uppalin í San Fransisco en for- eldar hennar eru frá Filippseyjum. Edyth kom hingað í fyrsta sinn með íslenskum kærasta frá San Frans- isco fyrir nítján árum. „Ég heillað- ist algjörlega af þessu fallega landi og flutti hingað tveimur mánuðum síðar og varð ólétt um leið!,“ seg- ir hún og hlær. „Skyndilega var ég óléttur innflytjandi sem skildi ekk- ert í tungumálinu og þekkti engan. Það var dálítið erfitt,“ viðurkennir Edythe. „Ég fann strax að ég yrði að læra tungumálið en það var erfitt því ég þekkti engan nema manninn minn og við töluðum alltaf saman á ensku. Þegar ég var svo farin að ná íslensk- unni átti ég barnið mitt og þurfti aftur að byrja að tala ensku því það er mælt með því að þú talir móður- málið við barnið fyrstu árin. Ég skal viðurkenna að það var mjög krefj- andi að aðlagast móðurhlutverkinu og ég fékk mikla heimþrá á þessum tíma,“ segir Edythe sem komst á þessum tíma í samband við Samtök kvenna af erlendum uppruna sem hún segir hafa bjargað sér. „Ég man alltaf þegar ég var í skoðun hérna, nýflutt og óörugg með mig og sagði við ljósmóðurina að þetta hlyti að vera besta starf í heimi. Og hún sagði mér að drífa mig bara í að læra tungumálið og fara í nám, ég gæti það alveg ef ég vildi. Og ég gerði það. Auðvitað hélt ég að ég að ég kæmist aldrei inn, en sem bet- ur fer gekk allt upp! Það er allt hægt ef maður vill það,“ segir Edythe sem byrjaði í hjúkrun þegar eldri strák- urinn hennar fór á leikskóla. Hún átti sitt annað barn þegar hún var á öðru ári í náminu, útskrifaðist vorið 2015 og vann á hjartadeild Landspít- alans þar til hún byrjaði svo í fram- haldsnámi í ljósmóðurfræði síðast- liðið haust. „Þetta hefur verið mjög krefjandi því ég var að læra íslensku á sama tíma en þetta bjargaði mér samt alveg. Ég vissi að mig langaði til að gera eitthvað við líf mitt hér, ég þurfti að taka ákvörðun um það hvort ég myndi fara að vinna starf sem krefðist ekki íslenskukunnáttu og sem mér myndi líklegast leiðast í, eða láta drauminn minn rætast og gera eitthvað gagn í samfélaginu.“ Auk þess að verða ljósmóðir þá dreymir Edythe um að aðstoða kon- ur í hennar stöðu. „Ég þurfti mik- ið á heilbrigðisþjónustu að halda allt fyrsta árið mitt og það var svo erfitt því ég talaði ekki tungumálið. Starfsfólkið gerði oft ráð fyrir því að ég talaði hvorki íslensku né ensku og ávarpaði stundum manninn minn án þess að líta á mig, og það er mjög algengt. Það er ekkert mál að breyta þessu og það vil ég gera því innflytjendur eru sístækkandi hópur á Íslandi. Um daginn var ég að skoða nöfn mæðranna sem áttu að eiga þann daginn og ég tók eftir því að öll nöfnin voru erlend. Þetta er orðið svo fjölbreytt samfélag og mig langar að tryggja að þessar konur fái allan þann stuðning sem þær þurfa. Ég var einu sinni þessi kona sem gat ekki talað og vissi ekkert hvað ég ætti að gera í þessu landi. Það þarf að valdefla þessar konur því þannig verður samfélagið betra. Það geta allir tekið þátt í samfélaginu og það hafa allir sitt að gefa.“ INNFLYTJANDINN Edythe Mangindin „Starfsfólkið gerði oft ráð fyrir því að ég talaði hvorki íslensku né ensku og ávarpaði stundum manninn minn án þess að líta á mig, og það er mjög algengt.“ Það er allt hægt ef maður vill það Það styttist í að draumur Edythe Mangindin um að verða ljósmóðir rætist en leiðin þangað var ekki auðveld. Draumur Edythe Mangindin um að verða ljósmóðir er að rætast. Hún vill tryggja að konur af erlendum uppruna fái allan þann stuðning sem þær þurfa. Mynd | Heiða FULL BÚÐ AF NÝJUM VÖRUM Á FRÁBÆRU VERÐI Fákafeni 9, 108 RVK | Sími 581-1552 | www.curvy.is STÆRÐIR 14-32 EÐA 42-58
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.