Fréttatíminn - 31.03.2017, Blaðsíða 56
Ætli ég æfi ekki svona níu sinnum í viku. Ég hlusta á líkamann og tek hvíld þegar ég finn
að ég þarf á því að halda,“ segir Inga
Arna Aradóttir crossfitþjálfari.
Inga Arna byrjaði að æfa crossfit
í nóvember árið 2014 og féll fyrir
sportinu strax í upphafi. „Já, nefni-
lega. Ég mætti á grunnnámskeið og
vissi strax að þetta langaði mig alltaf
að gera. Ég hafði verið í allskonar
íþróttum frá því ég var krakki en
aldrei enst í neinu. Ég sagði vinkonu
minni hvaða æfingar ég væri að gera
í ræktinni og hún sagði mér að koma
og prófa, ég væri í raun bara að gera
crossfit-æfingar,“ segir Inga en fram
að þessu hafði hún talið að crossfit
væri of erfitt fyrir sig.
„Ég vissi greinilega ekki alveg
hvað þetta var og hélt að maður
þyrfti að vera rosalegur íþróttamað-
ur. Svo sá ég fljótt að crossfit er gert
fyrir alla.“
Inga Arna hefur ekkert verið að
hika við hlutina. Hún hóf strax að
æfa af kappi og tæpum tveimur
árum eftir að hún byrjaði var hún
farin að kenna í Crossfit Reykja-
vík. „Ég er náttúrlega næstum því
alltaf þarna og langaði líka að geta
kennt fólki,“ segir Inga sem sótti sér
kennsluréttindi á námskeiði í Sví-
þjóð. Slík námskeið eru þó einnig
haldin hér á landi tvisvar á ári.
Inga segir að það gefi sér mikið að
fá að kenna öðrum crossfit. „Ég fann
hvernig ég var alltaf að verða betri
og betri og langaði að hjálpa fólki að
ná því líka. Ég man vel eftir tilfinn-
ingunni þegar kennari hjálpaði mér
að ná réttum tökum á tækninni og
mig langar að allir finni fyrir því að
ná þessu svona vel.“
Er crossfitið alltaf að verða stærra og
stærra sport?
„Já, nefnilega. Það er gríðarleg aukn-
ing í þessu, myndi ég halda. Ég var
einmitt að tala við einhvern um
daginn um Open-mótin sem eru
fyrsta skrefið fyrir Evrópuleikana
og það taka eiginlega allir þátt, þó
ekki nema til að sjá bætingu frá ári
til árs. Í fyrra voru 24 þúsund karl-
menn sem tóku þátt í Evrópu en
núna voru þeir 31 þúsund. Það er
því mikil samkeppni í þessu sporti.“
Svo eigum við svo mikið af afreks-
fólki hér á landi, sérstaklega kon-
um...
„Já, og það alltaf að bætast við
þann hóp,“ segir Inga sem kveðst
sjálf stefna á að keppa á stórum mót-
um í framtíðinni. Hún er 22 ára og er
að læra sjúkraþjálfun við Háskóla Ís-
lands. Aðspurð segir hún það óneit-
anlega flóknara að ætla að ná árangri
í sportinu meðfram kröfuhörðu
námi. „Ég held að maður komist
lengst ef þetta er atvinna manns, ef
þetta er það eina sem maður gerir.
En það er á fimm ára planinu mínu
að keppa á stóru mótunum og já, ég
ætla að ná góðum árangri.“
Eins og áður segir þá æfir Inga
Arna níu sinnum í viku og þegar þú
bætir náminu ofan á það er ekki mik-
ill tími eftir. Sérstaklega því fólk sem
æfir mikið þarf líka að hvíla sig vel.
„Nei, ég kannast alveg við það,“ segir
hún og hlær. „Ef ég fæ að sofa út þá
nýti ég það í botn.“
Inga Arna Aradóttir hefur
náð langt í crossfit á
tveimur og hálfu ári. Hún
stefnir á að keppa á stór-
um mótum í framtíðinni.
Mynd | Heiða Helgadóttir
MS Léttmál –
bragðgott og
fljótlegt millimál
Gæddu þér á bragðgóðu Léttmáli þegar hungrið
lætur á sér kræla og njóttu þess að borða með góðri samvisku.
Unnið í samstarfi við MS
MS Léttmál er ný kynslóð millimála og frábær kostur fyrir þá sem kjósa fljót-
lega, bragðgóða og umfram allt
holla millimáltíð í amstri dags-
ins. Fyrstu tvær vörurnar sem
komnar eru á markað eru annars
vegar Grísk jógúrt með döðl-
um, möndlum og fræjum og hins
vegar Kotasæla með berjum og
möndlum, en báðar vörurnar eru
hreinar í grunninn án hvíts sykurs
og sætuefna ásamt stökkum og
hollum toppi. Léttmálin frá MS eru
próteinrík, einstaklega handhæg
og bragðgóð og auðvelt er að
grípa þau með sér og neyta hvar
sem er og hvenær sem er.
Við erum sífellt að reyna að
finna hinn gullna meðalveg í
mataræðinu og reynum flest að
gera okkar besta á degi hverj-
um og vanda valið á því sem við
neytum. Við viljum borða holla og
fjölbreytta fæðu úr sem flestum
fæðuflokkum og reynum hvað við
getum að sneiða framhjá óholl-
ustu þegar hungurtilfinningin
lætur á sér kræla. Marga dreymir
um að hafa nægan tíma til að út-
búa millimál og nesti frá grunni
en dagskrá hversdagsins er víða
ansi þétt og því verður gjarnan
lítið úr háleitum hugmyndum með
tilheyrandi svekkelsi og skyndi-
lausnum. MS Léttmál er frábær
valkostur fyrir fólk sem vill velja
hollt en hefur ekki tíma í að gera
allt frá grunni.
Við val á innihaldi í toppana,
sem fylgja Léttmálunum, var
vandað sérstaklega til verka.
Topparnir eru sérvaldir og bland-
aðir hjá vottuðum birgjum og
þess gætt til hins ítrasta að
tryggja besta mögulega hráefnið.
Möndlur, ber, döðlur og fræ passa
fullkomlega við hreina gríska
jógúrt og hreina kotasælu og
eru Léttmálin því handhægur og
hollur kostur þegar þig langar í
góða næringu í amstri dagsins.
Á næstu misserum mun vörulín-
an stækka en tvær spennandi
vörunýjungar eru í kortunum sem
verður spennandi að sjá hvernig
neytendur taka.
Fann strax
að crossfit
er mitt sport
Inga Arna Aradóttir mætti fyrst á
crossfitæfingu fyrir tveimur og hálfu ári og
féll strax fyrir sportinu. Í dag er hún farin að
kenna í Crossfit Reykjavík og stefnir á að
keppa á stórum mótum á næstu árum.
Grísk jógúrt
Ofurfæða! Stútfull af góðri fitu og próteini
Lífrænar
mjólkurvörur
www.biobu.is
Morgunmatur:
Grísk jógúrt, múslí, sletta
af agave
Eftirréttur:
Grísk jógúrt, kakó, agave
chia fræ
Köld sósa:
Grísk jógúrt, handfylli rifin gúrka,
2 hvítlauksrif, salt og pipar
LÆKNA
R
MÆLA
MEÐ
HUSK!
NÁTTÚRULYF
Á SÉRLYFJASKRÁ
Náttúrulegar trefjar sem halda
meltingunni í góðu formi
ehb@ebridde.is, www.ebridde.is
HUSK fæst í apótekum, heilsubúðum og Fjarðarkaupum
8 FÖSTUDAGUR 31. MARS 2017HLAUPOGCROSSFIT